Tíminn - 14.09.1982, Blaðsíða 11

Tíminn - 14.09.1982, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 11 ■ Árni Benediktsson. • Rekstur minni skuttogaranna hefur borið sig betur en önnur útgerð. • Laun sjómanna hafa verið miklu hærri • Skipin eru stærri og traustari og öryggi sjómannanna því meira. • Skuttogararnir hafa tryggt jafna og stöðuga vinnslu í frystihúsunum, þannig að það árvissa atvinnuleysi sem áður var allt í kringum landið hefur horfið. • Tilfærsla starfsfólks milli landshluta er nú hverfandi miðað við það sem áður var. • Vinnutími hefur jafnast og styttst. • Nýting fjármagns í fiskvinnslustöðv- unum hefur stórbatnað. • Vegna stöðugleika vinnuaflsins og vaxandi þjálfunar starfsfólks hefur nýting hráefnisins batnað. Fyrstu ár þessarar þróunar bötnuðu vörugæði einnig, en nú er þar aftur á móti við ýmis vandamál að etja. En það er af öðrum orsökum. Flotinn stækkaði ekki nema um 18% fyrir norðan, austan og vestan Neikvæðu hliðarnar við þessar breyt- ingar eru hins vegar þær að flotinn hefur orðið of stór og að myndast hafa innan sjávarútvegsins hagsmunaárekstrar sem erfitt hefur verið að ráða við. Sú vísvitandi stefna að byggja upp öruggt atvinnulíf hringinn í kringum landið hefði átt að leiða til þess að einhver samdráttur yrði við suður- og suð-vesturströndina, eða í besta falli að flotinn stæði í stað á þessum stöðum. Stækkun flotans og aflaaukning hefði komið á þá staði þar sem nauðsynlegt hefði verð að byggja upp atvinnulífið. Þessi varð þó ekki raunin og ég hygg að það komi mörgum á óvart að á síðasta áratug þá stækkaði flotinn ekki nema um 18% á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum, á því svæði þar sem gjörbreyting varð í atvinnuháttum. Á Suður-og Suðvesturlandi, þeim lands- svæðum sem sífellt hefur þótt á sig hallað á þessum áratug, hefur flotinn stækkað um 56%. Aukin sókn - lakari fískgæði Stækkun flotans við suðurströndina hefur valdið því að þau veiðisvæði sem flotinn hefur haft til umráða hafa þrengst. Bátaflotinn á þessum slóðum sækir stöðugt á dýpra vatn og hrekur togaraflotann burtu. Þetta á bæði við á Selvogsbankanum og Jökultungunni. Þar sem þetta eru ekki heppileg mið fýrir báta kemur þetta fram í lakari fisk- gæðum. Þróunin hefur orðið sú að togararnir hafa þurft í vaxandi mæli að fiska verðminni fisktegundir og það gerir rekstrarstöðu þeirra verri en efni standa til. Þetta hefur einnig haft mjög neikvæð áhrif á rekstur frystihúsanna sem aðallega byggja á afla togaranna. Þorskurinn er nú ekki nema um rúmur þriðjungur af framleiðslu frystihúsanna, í stað þess að fyrir fáum árum var hann allt að 2/3 hluta framleiðslunnar. Þorskveiðiflotinn stækkaði um 25% Það er ekkert óeðlilegt og reyndar óhjákvæmilegt að röskun verði þegar jafn umfangsmiklar breytingar verða og orðið hefur í sjávarútveginum. Ný skip koma inn örar en eldri skip falla út, vegna þess að þegar séð verður hvaða árangur verður af breytingunum þá verða allir staðir að taka þátt í þeim þegar í stað. Þetta misvægi verður til þess að á árinu 1981 þegar heildarflotinn er orðinn of stór, þá vantar samt sem áður skip á nokkra staði. Síðan gerist það á sl. ári og kannski enn þá fekar á þessu ári að ljóst er að loðnustofninn er að verulegu leyti hruninn og loðnuflotinn stendur uppi verkefnalítill. Loðnuflotanum var beint að þorskveiðum, hvort sem það var rétt eða rangt og við það eitt stækkaði þorskveiðiflotinn, sem í ýmsum greinum var þegar orðinn of stór, um 25% og það er höfuðvandamálið sem við eigum við að glíma í dag. Þessi ákvörðun að leyfa loðnuskipunum að fara yfir í þorskveið- amar orkaði mjög tvímælis og ég held í stöðunni núna, að þá hefði verið auðveldara að leysa málin fyrir loðnu- flotann á annan veg. Sú viðbót sem varð er loðnuflotinn bættist við olli mikilli röskun á vinnslunni, því að ekki var svo auðvelt að koma loðnuflotanum að í vinnslustöðvunum sem nægt hráefni höfðu fyrir. Þetta leiddi m.a. til þess að sumir eigendur loðnuskipanna komu sér upp nýjum vinnslustöðvum, en þó að það gerist þá fjölgaði því fólki sem við fiskvinnslu starfar lítið sem ekkert. Þannig að nýjar fiskvinnslustöðvar búa aðeins til ný vandræði. Vissulega voru vandamál loðnu- flotans gífurleg, en þegar það sama gerðist með síldina þá fundu skipin sér önnur verkefni, svo sem loðnuveiðarnar og veiðarnar í Norðursjónum. Ég hef ekki mikla trú á kolmunna veiðum og að þær leysi þennan vanda, en ég tel að það hefði verið auðveldara að afla því stuðnings að loðnuskipin væru ríkis- styrkt á meðan þau biðu nýrra verkefna. Bæta verður vörugæðin Um sl. áramót var rekstrargrund- völlur flotans betri en oft áður og reyndar nálega hallalaus, ef miðað var við sama skipafjölda og sókn sem var á árinu áður. Sú mikla fjölgun skipa á þorskveiðum sem varð á þessu ári ásamt minnkandi afla, veldur þeim erfið- leikum sem við er að fást. Það er orðin brýn nauðsyn að menn komi sér niður á aðferðir til þess að draga úr sókninni og minnka flotann vegna þess að þessi vandamál verða ekki Ieyst með gengisfellingum einum saman. Núna sækja ýmsar samkeppnisþjóðir okkar á okkur í vörugæðum, en okkar stærsta tromp hefur einmitt verið að við höfum staðið þessum þjóðum framar hvað vörugæðin varðar. Síðustu þrjú til fjögur árin hafa aftur á móti verið ýmsar blikur á lofti og ég held að við gætum ekki fundið heppilegri lausn á hluta rekstrarvandamála flotans en að bæta vörugæðin. Ef netafiskur færi t.d. allur í fyrsta gæðaflokk þá hefði það í för með sér 10-15% hækkun á hráefnisverði frá því sem nú er. Fyrir togaraflotann er einnig mikið að vinna í þessu efni og ég hygg að það mætti í heild bæta stöðu flotans um 5% eða meira með bættum hráefnisgæðum á stuttum tíma. -ESE ■ Pétur Blöndal. fengið að láni og alltaf dálítið meira, þ.e. vexti. - í stað þess að áður borguðu þeir ekki nema helminginn? - Það er einmitt regin munurinn. Áður borguðu menn oft ekki nema helminginn í íbúðinni sinni. Nú þurfa þeir að borga hana að fullu og dálítið í viðbót. Menn þurfa því að fara að breyta um hugarfar í sambandi við lántökur. - En borgar sig þá að spara, t.d. fyrir bíl eða slíku? - Að sjálfsögðu. Það borgar sig að kaupa slíka hluti meira fyrir eigið fjármagn, leggja inn á verðtryggðan reikning ákveðna upphæð mánaðarlega, og kaupa bílinn fyrir eigið fé í stað þess að taka mjög dýr lán. Aukinn frítími eða ferða- lög - eða of stór hús? - En hvað þá með húsnæði? - Það er alveg á mörkunum að það standi undir verðtryggðum lánum. íbúðarhúsnæði hefur hækkað svipað og lánskjaravísitalan, en svo koma vext- irnir að auki. Að sjálfsögðu þurfa allir menn húsnæði. Hins vegar þurfa þeir að vega og meta hversu stórt þeir vilja byggja. Hvort þeir vilja e.t.v. ekki veita sér frekar ýmislegt annað en kannski óþarflega stórt húsnæði, t.d. minni vinnu, meiri ferðalög, betri bíl eða hvað annað sem menn kjósa. Jafnvel þótt menn eigi skuldlausar íbúðir, þá kostar það samt sem áður verulegt fé, því ella gætu menn lagt féð í annað, t.d. spariskírteini, sem gefa af sér töluvert meiri ávöxtun en íbúðarhúsnæði gerir. - En samt vex lánseftirspurnin-jatnt og þétt? - Hún datt mikið niður fyrst eftir að verðtryggingin var tekin upp, en síðan virðast menn hafa farið af stað aftur með lántökur. E.t.v. eiga verri lánamögu- leikar í bönkunum þarna hlut að máli, en einnig virðist sú gagnrýni sem fram kom á þessi verðtryggðu lán fyrst, nú vera að slævast. Að fólk sé aftur farið að halda að þetta séu nákvæmlega sömu lánskjörin og í gamla daga. Afborganir af ellilífeyri geta verið erfíðar - Nú eru menn samt í stórum stíl farnir að borga af verðtryggðum lánum og ættu að að vita betur? - Fyrstu afborganirnar blekkja e.t.v. að vissu leyti, því þær eru ekki svo háar. En menn þurfa að huga betur að eftirstöðvunum. Sem dæmi má nefna að kaupi menn íbúð með fullverðtryggðu láni til 20 ára, þá eiga þeir ekki nema hálfa íbúðina eftir 10 ár. Það er gjörbreyting frá því sem áður var, þegar algengast var að íbúðir yrðu svo til skuldlausar á 5 árum. Getur orðið lítið eftir - Er þá kannski sérstök ástæða til að vara fólk sem orðið er miðaldra við verðtryggðum lánum til langs tíma? - Við bendum sérstaklega á í bæklingnum okkar að fólk þurfi að athuga lánstímann mjög vel, ekki síst þeir sem komnir eru á þann aldur að lánstíminn nái fram á ellilífeyrisaldur- inn. í slíkum tilvikum verða menn t.d. að athuga hvort þeir hafi þann kraft sem þarf til að borga af þessu og eins minnkar vinnugeta jafnan með aldrinum, sem þýðir minni yfirvinnu, þannig að þá eru menn ekki eins vel í stakk búnir til að greiða þungar afborganir á hverju ári. í þessu dæmi öllu mega menn heldur ekki gleyma skattheimtunni á tekjur. Sé fólk búið að ráðstafa 2-3 mánaðarlaun- um á ári í 25 ár til afborgunar á íbúð og svo vill skatturinn fá sitt, þá getur farið að verða lítið eftir til annarra þarfa. -HEI Nýir bílar — Notaðir bílar Leitid upplýsinga ÞU KEMUR - OG SEMUR BÍLASALAN BUK s/f SlÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVlK S(MI: 86477 G/obus? GOTT LOFT - AUKIN ARÐSEMI Nú er rétti tíminn til að panta. Flestar gerðir fyrirliggjandi. LAGMCLI 5, SIMI 81555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.