Tíminn - 07.07.1983, Blaðsíða 4
MOGULQKAR Á
AUKINNIEFNA-
HAGSSAM VIN Nll
TIL ATHUGIINAR
— Vígbúnaðar- og
afvopnunarmál
annars höfuðmál í
viðræðum Bush við
íslenska ráðamenn
■ „Við byrjuðum á að ræða efnahags-
málin og við gerðum grein l'vrir okkar
erfiðleikum þar og mikilvægi Banda-
ríkjamarkaðarins fyrir fiskafurðir okkar.
I'að var einnig rælt um samvinnu milli
ríkjanna á sviði efnahagsmála. Banda-
ríkjamenn hafa kvartað undan því að
tollar séu of háir hér á þeirra viirum og
við tjáðum okkur fúsa til að skoða það
og þá í tengslum við cinhvers konar
efnahagssamvinnu, en þeir hafa t.d.
bent á að þeir leyfa erlendum togurum
veiðar í fiskveiðilögsögu sinni og það á
eftir að kanna hvort við gætum. átt
hagsmuni þar.
Síðan var langsamlega mest rætt um
varnarsamstarf vestrænna þjóöa. Bush
gerði allítarlega grein fyrir viðræðum
sínum við Evrópuleiðtoga og viöhorfum
þeirra gagnvart kjarnorkukapphlaupinu
og afvopnunarmálum. Málefni her-
stöðvarinnar hér bár auðvitað einnig á
góma og cg gerði honum grein fyrir því
að við vildum ekki að þangað kæmu
kjarnorkuvopn og hann lýsti yfir að
engaróskirværu um slíkt af þeirra hálfu.
Við ræddum einnig ástandið í Mið-
Ameríku og ég gerði honum grein fyrir
því að margir hér hefðu áhyggjur af
þróun mála þar og ég lýsti vonbrigðum
mínum með það að þar skyldi ekki hafa
tekist að koma á því lýðræði sem við
vildum gjarna að þjóðir byggju við.
Hann tók út af fyrir sig ákveðið undir
það og kvað margt hafa farið þar á annan
veg en ætlað hafði verið, en lagði áherslu
að markmið þeirra væri að stuðla að
lýðræðisþróun í þcssum heimshluta."
Af hálfu Bandaríkjamanna tók
Marshall Bremcnt sendiherra þátt í
viðræðunum með Bush ásamt flciri em-
bættismönnum, en af hálfu íslands tóku
auk Steingríms þátt í viðræðunum Geir
Hallgrímsson utanríkisráðherra, Hans
G. Andersen sendiherra, Guðmundur
Benediktsson ráðuneytisstjóri, og Ingvi
lngvason sendiherra.
-JGK
■ Steingrímur og Bush heilsast í upphafi viðræðnanna. Geir stendur hjá.
■ Halldör Laxness og Barbara Bush á hlaðinu á Gljúfrasteini.
(Tímamyndir GE)
■ Þyrla Landhelgisgæslunnar kemur með George Bush og Steingrím Hermannsson
úr laxveiðinni í Þverá. Tímamynd Árni Sæberg.
„Vid tökum
öllum jafnt”
— Opinberir gestir koma á
Gljufrastein á hverju
sumri,segir Audur Laxness
■ „Við höfum afskaplega oft verið
með svona múttökur fyrir opinbera
gesti, ciginlega meira og niinna á hverju
sumri. Við höfum tekiö á móti fólki bæði
úr austri og vestri og kippum okkur
ekkert upp viö það. Maður er orðinn hálf-
gerð stassjón að því leyti að við tökuin
■ Frú Bush kemur að þjónustuhcimili
aldraðra við Dalbraut
(Timamyndir GE)
öllum jafnt og ef ríkisstjórnin, hver sem
hún er, biöur okkur að hafa móttöku
fyrir gesti hennar, þá geruin við það,“
sagði Auður Laxness í samtali við blaðið
í gær, en þau hjónin hún og Halldór
Laxness tóku á móti frú Barböru Bush á
Gljúfrasteini í gærmorgun.
„Við buðum upp á kaffiveitingar og
sýndum frú Bush staðinn og þetta var
ósköp þægileg stund, það var gott veður
og afskaplega fallegt hér úti í garðinum.
Það fylgdu varaforsetafrúnni eitthvað 15
íslenskar konur og síðan var örygg-
isvarsla úti fyrir sem veitti nú litla
athygli, en það var nú heldur með meira
móti miðað við það sem maður er vanur.