Tíminn - 04.04.1984, Blaðsíða 7
MlÐVÍkUDAGUR 4.' APRIL 1984
B.St. og K.L.
■ Paul Newman aetti að
hneppa jakkanum.
■ Burt Keynolds - alltaf í
gallabuxum.
■ Woody Allen er eins og
blindur betlari.
■ Sly Stallone fylgist ckki
með tískunni.
■ Maria Burton er xvinlega
þakklát Elizabcth Taylor og Ric-
hard Burton fyrir það, sem þau
hafa gert fyrir hana. Nú
vill hún láta eitthvert þurfandi
barn njóta góðs af þeirri
reynslu, sem hún
hefur sjálf notið.
OG RICHARD BURTON
ÆTTLEIDDU HANA
— nú vill hún sjálf
ættleiða barn
■ Sjálf var hún í heiminn borin
fyrir 33 árum í Augsburg í
Þýskalandi, dóttir bláfátækra
foreldra og með meðfæddan
galla í mjöðmum. En lánið var
með henni. Elizabeth Taylor og
Richard Burton voru einmitt um
það leyti að leita sér að bami til
að ættleiða og athygli þeirra var
vakin á þessu stúlkubarni.
Stúlkan heitir Maria Burton
og hún lítur á það sem sitt mesta
lán í lífinu að hafa eignast þessa
foreldra, sem hvorki spöruðu
tíma né fyrirhöfn, þegar hún átti
i hlut. Þau sáu um að hún fengi
þá bestu Ixknishjálp, sem væri
að hafa, og hún gekkst undir ótal
uppskurði, enda ber hún engar
menjar fæðingargallans nú. Mar-
ia varð því snemma ákveðin í
því, að einhvern tíma ætlaði hún
sjálf að ættleiða barn, sem væri
hjálpar þurfi og ætti engan að.
Nú er Maria sjálf orðin móðir,
á 14 mánaða gamla dóttur með
eiginmanni sínum, Steve
Carson, en hún er þó engan
veginn fallin frá fyrirætlun sinni.
Og maður hennar, sem styður
hana dyggilega, segir: - Við
viljum gefa einhverju barni sama
txkifæri og Maria fékk á sínum
tíma.
Þau hjón eru því um þessar
mundir önnum kafin við að leita
dyrum og dyngjum að heppilegu
barni til að ættleiða.
■lllilííí
erlent yfirlit
■ Maó Tsetung
■ Deng Xiaoping
Beijing á að verða borg
fornrar og nýrrar frægðar
Gamli tíminn verður varðveittur við hlið hins nýja
■ ÞEIR menn, sem nú ráða
mestu i Kína undir forustu hins
aldna leiðtoga Dengs Xiaoping,
vinna nú að tvíþættum skipulags-
og byggingaráætlunum í höfuð-
borg Kína, Beijing (áður
Peking). Með fyrri áætluninni er
stefnt að endurnýjun borgarinn-
ar, þar sem framtíð hennar er
höfð meira í huga, en með seinni
áætluninni. að gamli tíminn
varðveitist við hlið hins nýja.
Þessu er nánara lýst í eftirfar-
andi grein Zhengs Zhu,' sem
blaðinu hefur borizt í fréttabréfi
frá kínverska sendiráðinu í þýð-
ingu, sem það hefur látið gera:
Meðal þeirra byggingarverk-
efna, sem verið er að vinna að
samkvæmt fyrrnefndu áætlun-
inni, má nefna nýja járnbrautar-
stöð í Vestur-Beijing sem verð-
ur í engu eftirbátur aðaljárn-
brautarstöðvarinnar í austur-
hluta miðborgarinnar. Við aðal-
götu Beijing, sem liggur í gegn-
um alla borgina frá austri til
vesturs, er verið að byggja fjölda
nýrrabygginga. Þarerm.a. verið
að reisa nýja sjónvarpsmiðstöð,
fullkomna símstöð og það er
búið að leggja drög að nýrri
póstmiðstöð þar sem nýjasta
tækni verður notuð. Þá hafa
verið gerðar tvær göngubrýr yfir
umferðargötur en þær þekktust
ekki áður í Beijing. í úthverfum
borgarinnar hefur mikill fjöldi
háhýsa sprottið upp og það er
verið að byggja ný íbúðarhverfi
í norðaustur-hluta borgarsvæðis-
ins. Einnig er unnið að fram-
kvæmdum við nýja sýningarsali,
rannsóknarmiðstöðvar, hótel,
sjúkrahús, skrifstofubyggingar
og ýmislegt fleira.
í síðarnefndu byggingaráætl-
uninni er hins vegar verið að
vinna að endurreisn gamalla
borgarhluta þannig að upphaf-
legt yfirbragð þeirra varðveitist.
Sem stendur er aðallega verið að
endurreisa gamla verslunargötu
nokkurn spöl fyrir suðvestan
Torg hins himneska friðar (Tian-
anmen-torg). Þessi gata heitir
Liu Li Chang og þar hafa ýmiss
konar listmunabúðir verið starf-
ræktar öldum saman. Arkitektar
frá Verkfræði- og skipulagsstofn-
un Beijingborgar rannsaka nú
með hvaða hætti bezt verði að
endurnýja 54 smáverzlanir svo
að þær verði sem líkastar því
sem þær voru á seinustu öld, á
seinnihluta valdatíma Qing-keis-
araættarinnar (1644-1911). Þá
urðu menntamenn hvaðanæva
að í Kína að koma til Beijing til
að þreyta keisaraleg próf, sem
voru notuð til að ákveða hverjir
skyldu fá æðstu embætti ríkisins.
Það var einmitt í smáverzlunum
í Liu Li Chang, sem þessir mennta-
menn keyptu bækur, skrifpensla
og pappír. Síðar fóru þessar
búðir að sérhæfa sig í .sölu á
gömlum bókum, endurprentun-
um á gömlum ritum og rnyndum,
gömlu postulíni og leirmunum,
skrautmunum úr jaðe, fílabeini,
bambus o.fl.
Ríkisráð Kína samþykkti
aðalskipulag fyrir Beijingborg
haustið 1983. í áætluninni er
bent á aö Beijing sé ekki aðeins
stjórnmálaleg og menningarleg
miðstöð Kína, heldur sé borgin
einnig höfuðborg fornra tíma
með sérstakan stíl sem verði að
varðveita.
í Beijing eru nú um níu mill-
jónir íbúa. Þar af búa um fimm
milljónir í úthverfum. Auk þess
kemur mikill fjöldi ferðamanna
á hverjum degi til borgarinnar
og þangað koma líka margir til
að sinna ýmsum málefnum um
lengri eða skemmri tíma. í Beij-
ing dvelst að staðaldri mikill
fjöldi útlendinga, sem starfa við
sendiráð erlendra ríkja, stunda
viðskipti þar, eru nemendur eða
koma í stuttar heimsóknir sem
ferðamenn.
Beijing hcfur líka verið kölluð
„safn" hefðbundinnar menning-
ar Kínaveldis því að fjölmargar
konungs- og keisaraættir hafa
gert Beijing að höfuðborg sinni.
Fyrir meira en tvö þúsund árum
var Beijinghöfuðborg Yan-rtkis.
Frá því á 10. öld e. Kr. hafa
fimm kcisaraættir haft Beijing
fyrir höfuðborg, þ.e. ættirnar
Liajo, Jin, Yu an. MingogQing.
Þessar kcisaraæltir létu byggja
keisarahallir, klaustur, hof. keis-
aragarða og keisaragrafir. í út-
hverfum Beijing-borgar er hægt
að skoða hluta af Kínamúrnum
heimsfræga og á borgarsvæðinu
er líka að finna 500.000 ára
gamlar minjar um hinn svokall-
aða Peking-mann.
Borgarmúrarnir, sem áður
umkringdu borgina að mestu,
voru sléttaðir við jörðu svo að
hægt væri að gera hraðbrautir.
Nú er aðeins eftir smáhluti af
borgarmúrnum fyrir sunnan
Torg hins himneska friðar, sem
er kallaður Zheng Yang Men, og
fyrir norðan borgina við De
Sheng Men.
Gamli borgarhlutinn í Beijing
ber öll merki hefðbundins skipu-
lags kínverskrar höfuðborgar til
forna. Keisarahöllin er fyrir
miðju og fyrir norðan og sunnan
hana liggja umferðaræðar, sem
aftur eru tengdar beinum götum.
sem liggja frá norðri til suðurs
sitt hvorum megin við keisara-
höllina, þannig, að allar götur
liggja annað hvort samsíða eða
hornrétt hver á aðra. Keisara-
höllin, sem einnig er þekkt undir
nafninu Forboðna borgin, crum-
kringd tveimur háum veggjum á
alla vegu. Fyrir vestan og norð-
vestan keisarahöllina eru þrír
keisaralegir garðar, Shi Cha Hai,
Beihai og Jingshan, en þeir voru
upphaflega einkagarðar keisar-
ans.
Fcrðamenn, sem heimSækja
keisarahöllina núna, dást að
stórkostlegum byggingum, verð-
mætum eðalsteinum og öðrum
listmunum. Margir þeirra hljóta
samt að velta því fyrir sér að
þeim þætti sjálfum óþægilegt að
eiga heima þarna jafnvel í kcis-
arahöllinni sjálfri, þar sem ýmis
nútímalífsþægindi vantar. Fyrir
stofnun Alþýðulýðveldisins 1949
fóru flutningar aðallega fram
með handvögnum. ræsin voru
opin, vatnið var stundum
mengað, göturnar breyttust í
leðjusvað í rigningum og hitun
húsa yfir vetrarmánuðina, var
ákaflega ófullkomin.
En eftir stofnun Alþýðulýð-
veldisins hafa breytingar verið
mjög örar. Innri veggirnir í
austur- og vesturhluta keisara-
hallarinnar voru rifnir og Torg
hins himneska friðar var opnað
fyrir almenningi. Nú er stöðug
umferð um torgið og það hefur
verið stækkað úr 11 í 40 hektara.
A móti keisarahöllinni hefur
Höll alþýðunnar verið reist. Þar
eru fundir Alþýðuþings Kína
haldnir.cn þaðeræðstastjórnar-
stofnun Kínverska alþýðulýð-
vcldisins.
Fjöldi húsa í Beijing hefur
fjórfaldazt frá því árið 1949.
Margar verksmiðjur hafa risið
og úthverfi í norðvestur Beijing
er miðstöð fyrir háskóla: og
aðrar æðri menntastofnanir.
Flutningakerfi borgarinnar batn-
aði líka mikið þegar 24 km löng
neðanjarðarbraut var tekin í
notkun árið 1969.
En nútíminn hefur líka fætt af
sér ný vandamál í Beijing eins og
í öðrum stórborgum. Þróun iðn-
aðarins, ör fólksfjölgun og of
mikil samþjöppun á vcrksmiðj-
um og ríkisstofnunum í miðborg-
inni hcfur leitt til húsnæðis-
skorts, skorts á landi fyrir ný-
byggingar, mengunar, og erfið-
leika við llutninga vegna umferð-
arþrcngsla auk þess sem vatns-
og orkuskortur er alvarlegt vanda-
mál. Fornleifafræðingar og
sagnfræðingar, sem sérhæfa sig í
listasögu, kvarta oft yfir því.að
þegar nútíminn hclt innreið sína
í Beijingborg, hafi ekki verið
gætt nægjanlega að því að varð-
veita forn verðmæti og sögu-
staði. Þannig hafa t.d. verið
byggð háhýsi í Zhong Nan Hai,
sem er hluti af keisarahöllinni.
Svo að annað svipað dæmi sé
nefnt þá var orkuver með hiniin-
háum skorsteini reist við hliðina
á hinu forna Tian Ning hofi.
Samkvæmt hinu nýja aðal-
skipulagi fyrir Beijing-borg verð-
ur frekari útþensla í iðnaði mjög
takmörkuð. Ný fyrirtæki í þunga-
iðnaði verða bönnuð og það verð-
ur aðeins leyft að stofna ný
fyrirtæki eða stækka þau sem
fyrir eru í matvælaiðnaði, raf-
cindaiðnaði eða öðrum greinum
léttaiðnaðar. Ný íbúðahverfi,
verksmiðjur og önnur fyrirtæki
verða reist í fjórum nýjum út-
borgum, þ.e. Changping fyrir
norðan Beijing, Yanshan fyrir
suðvestan Bcijing, Huangcun
fyrir sunna Beijing, og Tongxi-
an. sem er austur af Beijing. í
gamla hluta borgarinnar hefur
verið bannað að byggja hús, sem
eru meira en sex hæðir. Sérstök
áherzla verður lögð á útivistar-
svæði og grænum svæðum með
trjám og blómum verður fjölgað.
I áætluninni er einnig gert ráð
fyrir því að aðalstrætið í Beijing,
Friðargatan langa (Chang An
Jie), verði lengt enn frekar og að
byggingar meðfram strætinu
verði endurnýjaðar í samræmi
við hefðbundinn kínverskan stíl,
en Friðargatan langa liggur ein-
mitt í gegnum alla borgina
frá austri til vesturs og yfir Torg
hins himneska friðar. Þess verð-
ur einnig gætt að varðveita nokk-
ur hverfi þar sem íbúðarhúsnæði
er byggt samkvæmt fornum kín-
verskum hefðum, þ.e. fjögur
smáhýsi sem standa í kringum
lítinn húsagarð („Si He Yuan“).
Til að tryggja enn betur varð-
veizlu sögulegra bygginga hefur
ríkið friðlýst nokkrar þeirra eins
og Hof hins himneska friðar.
Þorarinn
Þorarinsson,
ritstjóri, skrifar