Tíminn - 04.04.1984, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.04.1984, Blaðsíða 13
ir-r ,'/le V í’.V/r, MIÐVIKUOAGUR 4. APRIL 1984 11 'S'lllití 17 heimilisfíminn umsjón: B.St. og K. Soðin hrogn með sellerísalati HVERNIG BEST ER AÐ URBEINA KIÚKUNG OG AÐRA FUGLA ■ Þó það sé nokkuð seinlegt að úrbeina fugl, þá margborgar það sig, t.d ef nota á fuglinn á kalt borð, því að þá er hann bæði glæsilegur réttur á borði, bragðgóður og mjög drjúgur, þegar fyllingin tekst vel. Það er þægilegt að skera hann og létt að vinna hann sér til matar. ★ Snúðu fuglinum þannig á borðinu, að hálsinn snúi að þér. Losaðu um skinnið, með fingrum frekar en með hnífi (sjá mynd 1), en það á ekki að hamfletta fuglinn. ★ Skerið og skrapið „óskabeinið“ úr fuglinum með beittum hnífi (sjá mynd 2). ★ Snúið nú fuglinum á bringuna. Skerið á sinar, þar sem vængbeinið tengist bringunni, og togið svo beinið frá og skerið hægt og varlega á liðamótin, og reynið að skera sem minnst í kjötið. ★ Stingið hnífnum inn í vængbroddana og skerið burt vængbeinið og sinar. (sjá mynd 3). ★ Lyftið upp skinninu á lærunum, og skerið varlega kjöt frá beini, en aðgætið að kjötið á að vera fast við fuglskroppinn, og togið í beinið og losið það frá. (sjá mynd 4). ★ Skerið með fram hryggbeininu (sjá mynd 5) og gerið það stórt op, að hægt sé að taka þar út það sem eftir er af beinagrindinni. ★ Eftir að innvolsið og beinin hafa verið tekin út (sjá mynd 6), þá setjið fyllinguna inn í fuglinn. ★ Setjið líka fyllingu inn í lærin og þar sem vængbeinin voru og reynið svo að ná kjötinu saman svo það þeki fyllinguna. Tyllið kjötinu saman með pinnum meðan verið er að matreiða fuglinn og þar til hann er vel kaldur. ★ Togið skinnið saman í hálsinn, vel yfir fyllinguna. Reynið nú að móta fuglinn með fyllingunni svipað og hann var áður en hann var úrbeinaður. (sjá mynd 7). Ymislegt til leiðbeiningar Aðgætið að nota nógu mikla fyllingu í fuglinn, því að það er betra að skera hann ef hann er vel fylltur. Hér kemur uppskrift að fyllingu, sem á að nægja í fugl sem er ca 2Vi kg (t.d. önd, - en helmingur ætti þá að nægja í venjulegan kjúkling). Blandið saman 350 g af svínakjöti (skinku eða annarri svínakjöts- pylsu). Kjötið á að vera smásaxað, 2 matsk. af söxuðum graslauk eða rifnum venjulegum lauk, 2 matsk. söxuð steinselja, 2 tesk. af rifnum sítrónuberki, 1 tesk. blóðberg (thyme), 60 g brauðmylsna, 30 g bráðið smjör, 1 egg og annað krydd eftir smekk. Sjóðið fuglinn í 20-25 mínútur á hvert pund + 25 mínútur. Hlauplag utan á fuglinn Sjóðið fuglabeinin í saltvatni í 11/2-2 tíma með lauk og svolitlu af sítrónuberki. Gott er að setja í vatnið 2 matsk. sherry. Síið soðið og sjóðið áfram þar til það er orðið tæpur hálfpottur. Bræðið nú 15 g af matarlími í 1 matsk af sítrónusafa og 2 matskeiðum af sherry. Setjið út í soðið. Kryddið eftir smekk og bætið 2 matsk. af sherryi út í. Látið fuglinn kólna vel. Látið hlaupið aðeins ná að storkna. Setjið nú fuglinn á grind yfir ofnskúffu eða skál. Ausið hlaupinu yfir fuglinn. Setjið í kæliskáp, en látið hlaupið sem eftir er vera í stofuhita. Þegar hlaupið hefur storknað á fuglinum, er hægt að setja annað lag yfir hann. Ef afgangur verður af hlaupinu, og það hefur kannski náð að storkna alveg, þá má skera það í lengjur eða bita til að skreyta fuglinn, eða fatið sem hann er borinn fram á. ■ Soöin hrogn, lifur og ýsa mcð kartöflum er hcrramannsmatur og þannig er þetta sælgæti algengast á horöum íslcndiiiga, en þaö cr enginn kominn til með aö scgja, að ekki megi framrciöa hrognin á annan hátt. T.d. er ágætt að bera fram meö hrognunum scllcrísalat og sílrönuháta, ásamt brauöi eða kartöflum, og bræddu smjöri, ef vill. Uppskriftin fyrir Ijóra er eftirfarandi: U.þ.b. 500 g hrogn vatn, salt N Sellerísalat: 300 g hrátt sellerí, vatn, salt, örlítill sítrónusafi, 1 dl sýrður rjómi 50 g majónes JVi tsk karry Vt tsk jurtasall 1-2 msk sitrónusafi u.þ.b. Vi dl saxaö dill, steinselja eða graslaukur. Skoliö hrognim pakkið þau inn í álpappír. Látið koma upp suðuna á vatninu með saltinu, setjið hrognin út í og sjóðið við vægan hita í 30-40 mín. eftir stærö, cða þangað til þau eru gcgnsoðin. Hreinsið og sneiðið selleríð niður t örþunnar sneiðar eða rifið það gróft á rifjárni. Látið sjóða örstutt í daufsölt- uðu vatni með sítrónusaía, látið renna af því. Hrærið sáman sýrða rjómann, majónesið og kryddið. bragðbætið með sítrónusafa eítir smekk og krydd- jurtunum. Dreiíið sellerfsneiðunum út i og blandið salatiö vcl saman. Hátíða-terta (Geymið þessa uppskrift til páskanna) ■ Þessi terta er mjög Ijúffeng. Hún heitir „Mokka-marengs-terta“ og er létt og sæt, svo hún gæti alveg eins sómt scr sem cftirréttur eins og meðlæti með kaffi. í tcrtuna þarf: 4 eggjahvítur 2 dl strásykur V4 I rjóma 2 matsk duftkaffi (Nescafé eða annað) 1 matsk koníak eða viskí 50 g möndluflögur Þeytið hvíturnar mjög stífar og þeytið sykurinn saman við. Skiptið þessu í þrjá botna (í form sem eru 20-22 cm í þvermál) og bakið botnana við lágan hita 150 gr C) í 30-45 mín. Þeytið hclminginn af rjómanum og þeytið duft- kaffið saman við. Þeytið svo hinn helm- inginn ogsetjið koníakið í hann. Leggið síðan tertuna saman þannig, að byrjað er á botni, en svo lagt til skiptis rjómi með kaffi eða koníaki á milli botnanna. Ofan á er svo sett rjómalag (hvítt) og skreytt með möndluflögum. Ef lítill tími er til að baka er cinfalt að kaupa tcrtubotna og/eða marengs-botna hjá bakara og leggja botnana svo saman eins og áður segir. Tcrtan er bara betri ef hún stendur tilbúin í ísskápnum cins og tvo klukku- tíma.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.