Tíminn - 21.11.1986, Side 1
Endurskipulagning bankakerfisins:
FRESTUR TIL að sækja um I
stöðu fréttastjóra útvarpsins rann út á
miðvikudag. Utvarpsráð mun fjalla um |
þær fjórar umsóknir sem bárust um |
stöðuna á fundi sínum í dag. Nöfn |
umsækjenda verða ekki látin uppi fyrr i
en eftir útvarpsráðsfundinn.
MAÐURINN sem lést af slysför- 1
um á Hótel KEA á Akureyri aðfaranótt |
sl. mánudags hét Jóhann Pálsson,
Skaftahlíð 28 ReykjavífT Jóhann var
fæddur 15.janúar 1952
SJÓPRÓF fóru fram í Vest-
mannaeyjum í gærmorgun vegna á-
siglingar Laxfoss á Naustshamars-
bryggju á mánudaginn. Niðurstöður úr
sjóprófunum verða síðan sendar til
viðkomandi aðila, þar á meðal sak-
sóknara. Dómkvaddirmatsmenn unnu
í gær að því að meta skemmdirnar á
bryggjunni.
BORGIN OKKAR nýtt ís
lenskt tónverk eftir Skúla Halldórsson
með texta eftir Matthías Johannessen
verður frumflutt af Sinfóníuhljómsveit
íslands og Karlakór Reykjavíkur á
morgun kl. 15.00 í Laugardalshöll.
Einnig verða á dagskránni erlend verk,
t.d. Finlandia eftir Sibelius og 2 verk
eftir Verdi. Tónleikarnir eru haldnir í
tilefni 60 ára afmælis Karlakórsins og
200 ára afmælis Reykjavíkurborgar.
Miðasala verður við innganginn og
kostar miðinn kr. 400,-
BÍLVELTA var á Keflavíkurvegi
á miðvikudagskvöld. Ökumaður var
fluttur á slysadeild en bifreiðin sem var
af Mazda gerð skemmdist mjög mikið
við veltuna. Talið er að hálka hafi
valdið óhapþinu.
GERT ER RÁÐ FYRIR að
um 3000 manns taki þátt í prófkjöri
Framsóknarflokksins í Reykjavík, sem
fram fer helgina 29.-30. nóvember.
Þegar lokað var fyrir skráningu á
kjörskrá í fyrrakvöld, höfðu 1604 skrif-
að undir ósk um að taka þátt í
prófkjörinu og yfirlýsingu um að þeir
væru ekki félagsbundnir í öðrum
stjórnmálasamtökum. Til viðbótar á
kjörskrá bætast um 2400 félagsmenn
Framsóknarfélaganna í Reykjavík.
Nú er unnið að frágangi kjörskrár
og mun hún að öllum líkindum verða
tilbúin annað kvöld. Nokkur brögð eru
að því að fólk í öðrum stjórnmálasam-
tökum hafi vegna misskilnings á aug-
lýsingum óskað eftir þátttöku í prófkjöri
framsóknarmanna. Viðkomandi munu
falla út af endanlegri kjörskrá.
YVES ST. LAURENT,
franski tískuhönnuðurinn, og forseti
fyrirtækis þess sem hann á eru orðnir
sérlegir ráðgjafar kínverskra fatafram-
leiðenda. Á blaðamannafundi í Pekíng
kom fram að St. Laurent á að gefa
Kínverjum ráð varðandi hönnun á
gæðafatnaði og forseti fyrirtækisins
Pierre Berger mun veita aðstoð við
stjórnun fyrirtækja er framleiða föt.
HUÓMSVEITARSTJÓR-
inn vestur-þýski Wolfang Rennert fékk
hjartaáfall í Óportó í Portúgal í fyrra-
kvöld. Rennert datt sem dauður niður
skömmu eftir að hann tók að stjórna
flutningi á verki Wagners; „Hollend-
ingnum fljúgandi". Hann hvílist nú í
sjúkrahúsi í Óportó.
KRUMMI
Mér sýnast val-
kostirnir vera tveir:
Útbúnaðar-banki
Úthluta-fé-banki
“Seðlabankaleiðin“
könnuð til þrautar
Sameining Utvegs-
leiðin, segir Steingrí
„Ég trúi því ennþá að það muni
sýna sig þegar upp verður staðið að
sameining Útvegsbanka og Búnað-
arbanka verði langsamlegasta fljót-
virkasta og skynsamlegasta leiðin,"
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra í samtali við Tím-
ann í gær.
Endurskipulagning bankakerfis-
ins var til umræðu á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun. Að sögn
Steingríms voru umræður þar mál-
efnalegar og menn lýstu skoðun
sinni á málinu. Niðurstaða fundar-
ins varð sú að fjórum ráðherrum,
og Búnaðarbankans
mur Hermannsson
þeim Steingrími Hermannssyni,
Halldóri Ásgrímssyni, Þorsteini
Pálssyni og Matthíasi Bjarnasyni,
var falið að kanna til þrautar þá
lausu enda sem cru á „Seðlabanka-
leiðinni", að sameina Útvegsbanka
Iðnaðar- og Verslunarbanka í öfl-
ugan einkabanka. „Á meðan verð-
ur endanlegri afgreiðslu málsins
frestað,“ sagði Steingrímur.
Hann var spurður hvort þetta
þýddi að ekki yrði skoðuð frekar
leið sú sem Framsóknarflokkurinn
hefur samþykkt.
„Það eru allir sammála um að
skynsamlegasta
kanna hana. Hún er bara út af fyrir
sig miklu einfaldari og eins og við
höfum sagt, við getum afgreitt
hana í dag og lagt inn frumvarp á
mánudag. Þetta eru hvorutveggja
bankar sem eru í eigu ríkisins og
þurfa lítillar könnunar við,“ sagði
Steingrímur
Hann tók skýrt fram að báðir
flokkar hefðu gefið eftir í kröfum
sínum, þegar samþykkt var að
kanna til þrautar „Seðlabankaleið-
ina“.
Með því að báðir flokkarnir gáfu
eftir af kröfum sínum í viðræðun-
Á stjórnarfundi Skeljungs í gær var ákveðið að fresta umræðu um samrunann og því gæti orðið bið á að
starfsmenn fyrirtækjanna tveggja sveifluðu saman dælum. Tímamynd Svernr.
Stjórnarfundur Skeljungs haldinn í gær:
Skeljungur ákvað
að fresta málinu
Fundurinn veitti umboð til áframhaldandi viðræðna, um
samruna Olís og Skeljungs
Á stjórnarfundi Skeljungs sem
haldinn var í gærdag var ákveðið
að veita Indriða Pálssyni forstjóra
og Birni Hallgrímssyni stjórnarfor-
manni áframhaldandi umboð til
viðræðna um sameiningu olíufélag-
anna tveggja, OIís og Skeljungs.
Leynilegar viðræður hafa farið
fram um samruna olíufélaganna
tveggja. Fyrir stjórnarfundi Skelj-
ungs lá ákvörðunartaka um áfram-
haldandi framvindu mála varðandi
sameininguna. Niðurstaðan varð
áframhaldandi viðræður.
Mikill þrýstingur er á Skeljungs-
menn, að af sameiningunni verði.
Rekstur Olís er erfiður, þar sem
miklar skuldir hvíla á fyrirtækinu.
Tíminn fékk staðfest hjá einum af
stjórnarmönnum félagsins að
skuldirnar væru í kringum 1,1
milljarð. Pórður Ásgeirsson for-
stjóri Olís sagði í samtali við Tím-
ann í gær að samkvæmt níu mán-
aða uppgjöri væri ljóst að rekstur-
inn hefði verið réttum megin við
strikið og mun jákvæð eiginfjár-
staða fyrirtækisins vera 450 mili-
jónir króna.
í dag verður haldinn fundur hjá
Olís, með starfsmönnum og for-
stjóra, þar sem níu mánaða upp-
gjörið verður lagt fram og málin
rædd við starfsfólkið. Eða eins og
einn hluthafi Olís orðaði það:
„Fundurinn verður líka haldinn til
þess að kveða niður gróusögur um
sölu á félaginu."
Þrálátar sögusagnir ganga meðal
starfsfólks olíufélaganna tveggja
um að bráðlega verði af sameining-
unni, en stjórnarmenn eru þögulir
sem gröfin.
Indriði Pálsson forstjóri Skelj-
ungs sagði í samtali við Tímann í
gær að það væri ekki hans vani að
láta uppi það sem fram færi á
stjórnarfundum Skeljungs. _ES
um í gær, var þá stjórnarslitum
i forðað?
„Ég trúi því nú alls ekki að
stjórnarslit hefðu getað hlotist af
þessu. Alþýðubandalagið hcfur
lýst yfir stuðningi við sameiningar-
leið Útvegs- og Búnaðarbanka og
mér skilst Alþýðuflokkur vcra með
haltu mér slepptu mér stefnu í
þessu máli,“ sagði Steingrímur.
Boðaður hefur verið fundur í
dag, þar sem Halldór Ásgrímsson
og Matthías Bjarnason munu hefja
viðræður um „Seðlabankaleiðina"
og kalla til sérfræðinga innan banka-
kerfisins.
-ES
Síldarsöltun:
Skip með
40 þúsund
tunnurá
í fyrrakvöld var búið að saita
síld í 174, þúsund tunnur á
þessari síldarvertíð. Mikil veiði
hefur verið fyrir austan og er
stór og góð sí(d þar inni í
fjörðunum. Alls verður saltað
í um 260 þúsund tunnur á
þessari vertíð, um 2(K) þúsund
til Sovétríkjanna, rúm 50 þús-
und til Skandinaviu, um 10
þúsund á innanlandsmarkað og
til annarra landa.
í gær var vcrið að salta á
flestum höfnum á svæðinu frá
Vopnafirði til Keflavíkur, en
talsvert var farið að hægjast
um sums staðar vcgna tunnu-
skorts. ,
Um síðustu helgi komu til
landsins þrjú skip með um 64
þúsund tunnur og af þeim var
um 45 þúsund dreift á Aust-
fjörðumenum 19þúsundtunn-
ur fóru á Suðurland, enda var
tunnuskorts farið að gæta á
nokkrum stöðum á Reykja-
nesi. Nú virðast þessar tunnur
vera að verða búnar, en af
þeim 174 þúsund tunnum sem
saltað hefur verið í var saltað i
139 þúsund fyrir austan. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Síldar-
útvegsnefnd er eitt skip á leið-
inni með um 40 þúsund tunnur
og er væntanlegt um helgina og
verið er að lesta þrjú til viðbót-
ar með samtals um 58 þúsund
tunnur og er það restin af
tunnunum. Skipin sem koma
ineð tunnurnar eru Hvalvík
sem er á lciðinni með 40 þús-
und tunnur, en verið er að lesta
Keflavík, ísafold og Skeiðsfoss
í Noregi og Finnlandi.
-BG