Tíminn - 16.05.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 16.05.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn Laugardagur 16. maí 1987 Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf: Kanar ætla sér að stöðva okkur Hvalvertfðin er að hefjast. í byrjun júnímánaðar munu tveir hvalveiði- bátar leggja úr höfn til veiða á sandreyð og langreyð. Alls er fyrir- hugað að veiða 120 dýr í vísinda- skyni. Á sama tíma ög Hvalur hf er að búa sig undir vertíðina hafa nýjar óveðursblikur skotið upp ■ kollinum. Svo getur farið að stríð verði fyrir ströndum. Rætt er um fríverslunarsamning milli Bandaríkjanna og Kanada. Raddir vestra segja að sá samning- ur, ef af verður, og aukinn þrýst- ingur á Bandaríkjastjórn um refsi- aðgerðir við íslendinga vegna hval- veiðanna geti gert stöðu okkar erfiðari á Bandaríkjamarkaði. En þetta eru ekki nýjar sögusagnir. Tíminn hafði samband við Kristján Loftsson framkvæmda- stjóra Hvals hf og spurði hann hvort hann ætti von á að vertíðin í ár yrði fyrireinhverja hluti sérstök. Hvort hann hefði fengið formlegar hótanir frá umhverfisverndunar- samtökum um aðgerðir. Kristján sagði ljóst að Kanarnir væru með eitthvað í bígerð. „Þeir ætla sér að koma þessum veiðum fyrir kattarnef, með hvaða ráðum sem tiltæk eru. Það hefur verið yfirlýst stefna þeirra síðastliðin fimmtán ár. Þetta er ekki að byrja núna. Hvað gerist í ár er erfitt að segja til um. Þeir hafa mjög frjótt ímyndunarafl þarna vestra. Bandaríkjamenn myndu ekki leggja slíkan kraft í þessar aðgerðir gegn okkur nema þeir hafi eitthvað ákveðið markmið með þeim. Ég er sannfærður um það að þessar að- gerðir eru samkvæmt langtíma áætlun sem síðar meir á að skila árangri, og er hann reyndar þegar farinn að koma í ljós. Þessar að- gerðir þeirra gegn hvalveiðum eru ekkert nýtt. OIl höfum við fylgst með hvernig Kaninn hefur beitt sér í sambandi við selinn og tókst í samvinnu við Efnahagsbandalagið að eyðileggja selinn sem útflutn- ingsvöru. Það kostar okkur um tíu milljónir dollara á ári að tína selorminn úr fiskinum. Sjómenn suður með sjó segja mér að selur- inn eigi verulegan þátt í hversu léleg vertíðin hefur verið. Ein stærstu selalátrin við landið eru í Surtsey. Ég spyr: Af hverju er selurinn orðin þessi bannvara út um heim? Þetta á að þjóna ein- hverjum tilgangi. Bandaríkja- stjórn vinnur að því að taka úr okkur tennurnar, til þess eins að bjóða okkur síðar efnahagsaðstoð á þeirra skilmálum. Þá verðum við að dansa eftir þeirra nótum.“ sagði Kristján. Um veiðarnar sjálfar sagði hann að hvalurinn yrði á sínum stað og þeir myndu veiða sín dýr í rólegheitum. Þessar ásakanir í garð Banda- ríkjastjórnar eru mjög alvarlegar. „Menn hafa nú enn leyfi til þess að hafa persónulegar skoðanir. En ég segi: Einhverjum tilgangi á þetta að þjóna. Mín skýring er sú að þetta sé langtíma áætlun með þau markmið sem ég nefndi hér að ofan. Menn hafa komið með aðrar skýringar og jafnvel haldið því fram að ég sé ruglaður. Ég spyr á móti: Af hverju keyra Bandaríkja- menn þessa pólitík svona, þegar allar þær rannsóknir sem fram- kvæmdar hafa verið á hvalastofnin- um hér við land sýna að hann þolir mjög vel þá veiði sem stunduð hefur verið“ Ertu með þessu að segja að Greenpeace og samtök á borð við World Wildlife Fund vinni mark- vist að því að ná fram þessum markmiðum Bandaríkjastjórnar? „Já. Þetta eru krossberar stefnu Bandaríkjastjórnar. Ef við tökum sem dæmi Paul Watson og aðra líka kóna, þá réttlætir hann ofbeld- isaðgerðir sínar með samþykkt hvalveiðiráðsins um alsherjarbann á hvalveiðum. Þeir sem pressuðu þetta bann í gegn voru Kanarnir. Hugmyndir um slíkt bann hafa verið uppi í Alþjóða hvalveiðiráð- inu síðan 1972, og hafa Banda- ríkjamenn jafnan beitt sér fyrir því. Það var síðan ekki fyrr en Alþjóða hvalveiðiráðið var fyllt af hinum ýmsu þjóðum sem málið kemur lítið við, og bandarískir ríkisborgarar mættu sem fulltrúar fyrir marga þessara nýju meðlima, að bannið var samþykkt 1982. Um leið og bannið var komið í gegn fóru menn á borð við Watson af stað og vinna á þessum forsendum. Ég verð að segja það að mér finnst afskaplega undarlegt ýmislegt í sambandi við þessi umhverfisverndunarsamtök í Bandaríkjunum. Þau hafa svipaða stöðu og Hjálpræðisherinn. Eru skattlaus, en þurfa einu sinni á ári að gera grein fyrir því í hvað þau eyða sínum fjármunum, en eru aldrei krafin upplýsinga um hvaðan þeir peningar koma. Þessi starf- semi er ekki fjármögnuð af með- limunum sjálfum eða hvað? Ég hef tilhneigingu til þess að halda að þarna sé eitthvað samstarf á milli. Umhverfisverndunarsamtökin bíða eftir þeim tillögum sem Bandaríkjastjórn fær samþykktar ' og fara síðan af stað með þær sem bakhjarl." sagði Kristján Loftsson -ES Starfsmenn Hvals hf. eru nú farnir að dytta að hvalbátunum. fyrir vertíðina. Tíraamynd BREIN 1—i * » Fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins: Islendingar kynna fyrstu niðurstöður vísindaveiða Bandaríkjamenn með nýja tillögu í tengslum við vísindaveiðar, sem lögð verður fram á fundinum. Fyrstu niðurstöður úr rannsókn- um íslenskra vísindamanna á hvalastofnum við landið verða kynntar á fundi vísindanefndar Al- þjóða hvalveiðiráðsins. Þessa stundina er verið að leggja síðustu hönd á frágang þeirra. Veiðar þær sem Hvalur hf. stundar eru grunn- urinn að þeim rannsóknum sem framkvæmdar eru. Ekkert hefur enn verið látið uppi um hverjar þær niðurstöður eru, en þær munu þó vera jákvæðar fyrir áframhald hvalveiða hér við land. Fundur Alþjóða hvalveiðiráðs- ins verður haldinn seinnipart júní- mánaðar. Þar er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram nýja tillögu í tengslum við vísindaveið- ,ar, sem m.a. íslendingar stunda. „Því er ekki að leyna að Banda- ríkjamenn hafa hugsað sér að flytja nýja tillögu um hvalveiðar í vís- indaskyni. Sú tillaga gerir ráð fyrir því að settar verði nýjar reglur um veiðarnar," sagði Halldór Ás- grímsson sjávarútvegsráðherra í samtali við Tímann í gær. Halldór upplýsti jafnframt að viðræður hefðu farið fram við Bandaríkja- menn um tillöguna og að það væri skoðun íslendinga að nýjar reglur um þessar veiðar væru ekki tíma- bærar, fyrr en menn hafa komist að niðurstöðu um hvernig staðið verð- ur að endurmati hvalastofnanna. „Það er það mál sem við höfum viljað reka á eftir í ráðinu og þykir sem svo að þvf hafi ekki verið sinnt sem skyldi í ráðinu. Ég býst við því að sú tillaga verði rædd mikið í ráðinu. Hinsvegar tel ég of snemmt að segja til um mögulega niður- stöðu af þeim umræðum," sagði Halldór. Hvaða reglur eru það sem Bandaríkjamenn eru að reyna að fá í gegn? „Þeir vilja fá nánari umfjöllun um vísindanefndir Alþjóða hval- veiðiráðsins og að auki skuli fylgja í einu og öllu þeirri niðurstöðu. Það er nú einu sinni svo að ekki er auðvelt að greiða atkvæði um hvað eru rétt vísindi. Að mínu mati er það háð vísindalegu mati í viðkom- andi landi. Þarafleiðandi held ég að meirihlutasamþykkt í vísinda- nefnd á þessu sviði sem öðrum geti verið mjög vafasöm," sagði Halldór. Áttu von á að fram komi tillögur um breytingar á sjálfu Alþjóða hvalveiðiráðinu? „Það geta menn ekki gert nema breyta stofnsamningi ráðsins. Sá samningur er að sjálfsögðu aðal- atriðið. Tillögur sem hafa verið fluttar upp á síðkastið hafa flestar gengið í þá veru að þrengja ákvæði stofnsamningsins, sem í reynd er ekki hægt. Stofnsamningur er aðal- atriði í störfum ráðsins og tillögur sem ganga út á það að þrengja heimildir samkvæmt honum eru mjög vafasamar svo ekki sé nú meira sagt. Ef menn vilja setja einhverjar nýjar reglur um þessi mál þá ættu þeir að gera það með þeim hætti að breyta stofnsamn- ingi, og eru þá komnir út í allt aðra hluti.“ - ES

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.