Tíminn - 08.09.1988, Side 20
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrír þig
Okeypis þjónusta
RIKISSKJP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
686300 Timinn
STRUMPARNII f
SMU& *
HRESSA . __
| Iiminn
Þjóöverji seldi góöhest gegn vægu gjaldi vegna rangra merkinga á tveimur tvístjörnóttum viö skipshlið:
Gæðingurinn Seifur fór
í misgripum fyrir lítið
V-þýsk kona, Edit Uffenbach,
er nú stödd í Skagafirði til að lcita
leiðréttinga á óförum sínum í
hestakaupum, um leið og hún er
hér stödd í kauphugleiðingum á
ný. Vegna mistaka við merkingar
á þremur íslenskum hestum sem
hún festi kaup á í haust sem leið,
varð hún fyrir því óláni að sclja
verðlaunaðan gæðing á vægu verði,
en situr nú uppi með klárhest sem
hún ætlaði að losna við strax og
hann kæmi utan. Kom hún til
landsins í byrjun vikunnar, m.a. til
að leita leiðréttingar sinna mála,
þar sem henni hefur reynst ókleift
að rifta gerðum hestakaupum í
Þýskalandi. Ekki komst upp um
mistökin fyrr en fullreynt þótti að
ekkcrt skeið fengist úr meintum
gæðingi og bornar höfðu vcrið
saman þær myndir sem hér sjást
með fréttinni.
Aðdragandi þessa máls er sá að
Klárhesturinn sem ranglega var merktur sem Seifur býr nú við yfirlæti
gæðinga. Ef vcl er að gáð eru stjörnurnar ólíkar á góðhestinum og
klárhcstinum. Ljósmynd UfTcnbsich
Uffenbach, sent er auðugur gyð-
ingur, festi kaup á þremur hestum
á Islandi í fyrra. Voru tveir þeirra
tvístjörnóttir og rauðir að lit og
erfitt að þekkja þá í sundur í sjón.
Þegar kom að því að merkja hest-
ana þrjá með því að klippa númer
á lendar þeirra, áður en þeir voru
færðir á skipsfjöl hjá Skipadeild
Sambandsins, urðu þau leiðu mis-
tök að klipparinn ruglaðist á þeim
tvístjörnóttu.
Gæðingurinn er Seifur frá
Keldudal, en hann er undan verð-
launahryssunni Nös 3794 frá
Keldudal, sem er í eigu Leifs
Þórarinssonar og stóðhestinum
Þætti 722 frá Kirkjubæ. Var Seifur
einna síðast sýndur hér á landi á
sýningunni Bú ’87 sem dæmi um
gæðing undan ættbókarfærðum og
landsþekktum úrvalsforeldrum.
Seifur varð efstur í gæðingakeppn-
inni á Vindheimamelum '86 og var
metinn á 4-500 þúsund krónur.
Klárhesturinn sem Uffenbach
situr uppi með er liins vegar hestur
sem ekki hefur unnið til verðlauna
í flokki klárhesta og er því lauslega
metinn á rúmlega hundrað þúsund
krónur.
Eessi verðmunur segir ekki alla
söguna þar sem sá ódýri verður
ekki seldur nema á viðmiðunar-
verði markaðarins í Þýskalandi
hverju sinni og þar er verðgildi
hans nálægt því að vera tvöfalt það
verð sem hann kostar hér á landi
vegna tolla og flutningsgjalda.
Gæðingurinn er hins vegar nær
ómetanlegur til fjár þegar utan er
komið þar sem hann getur hækkað
gífurlega í verði á uppboðum sem
oft fylgja því þegar unnið er til
verðlauna. Vinni hestur sem þessi
t.d. landskeppnina eða standi sig
vel á næsta heimsmeistaramóti er
Iíklegt að boðið verði ríflega í.
Dæmi eru um að sambærilegur
góðhestur hafi verið seldur á marg-
földu matsverði eftir að hafa unnið
til hæstu verðlauna. Það er því
verið að horfa á eftir einhverjum
milljónum vegna þessara mistaka.
En versta tjónið er þó ekki
peningalegs eðlis þarsent markmið
fiúarinnar var eðlilega að láta Seif
koma fram í keppni í Þýskalandi.
Nú er hann í eigu eins þeirra fjölda
Þjóðverja sem ekki er umhugað
um annað en að eiga sinn hest út
af fyrir sig og njóta sambandsins
milli manns og klárs á eigin leiðum.
Seifur kemur því varla til með að
koma fram á næstunni þar sem
eigandinn er ófáanlegur til að selja
þennan nýja fjölskylduvin sinn.
Ekki er talið líklegt að Edit
Uffenbach muni fá leiðréttingu
mála sinna í Skagfirði fremur en
hjá þeim sem sáu um merkingarnar
á sínum tíma. Hún er samt ekki
búin að gefast upp á hestamennsk-
unni og er nú að líta í kring um sig
eftir nýjum gæðingum til að kaupa
og flytja út. KB
....
Hinn eini sanni Seifur á Vind-
heimamelum við sýningu á af-
kvæmum Nasar. Knapi er Rúna
Einarsdóttir.
Ljósmynd Eiðfaxi, Sigurður Sigmundsson.
Reglugerö um endurgreiðslu söluskatts:
Iðgjöld af bifreiða-
tryggingum fatlaðra
Fjármálaráðuneytið gaf út í gær
reglugerð unt endurgreiðslu sölu-
skatts af iðgjöldum af ábyrgðatrygg-
Hluthafafundir í Verðbréfasjóði
Ávöxtunar hf. og Rekstrarsjóði
Ávöxtunar hf. hafa nú ákveðið að
slíta félögunum og var það gert eftir
ítarlega athugun bankaeftirlits
Seðlabanka íslands. Er hagsmunum
eigenda fjármuna talið best borgið
með þessari ákvörðun sem byggð er
á ákvæðum hlutafélagslaganna.
Kusu hluthafafundirnir jafnframt
ingunt bifreiða í eigu fatlaðra.
Endurgreiðslan nær til bifreiða í
eigu fatlaðra og forráðamanna fatl-
skilanefnd til að koma eignum sjóð-
anna í verð og úthluta fjármunum til
kröfuhafa og taka við hlutverki
stjórna sjóðanna. Skilanefndina,
sem viðskiptaráðherra hefur þegar
löggilt, skipa þeir Gestur Jónsson,
hrl., Ólafur Axelsson. hrl. og Símon
Gunnarsson. löggiltur endurskoð-
andi. KB
aðra barna, annarra en þeirra sem
njóta örorkustyrkja undir50% niati.
Miðast endurgreiðslan við þá sem
njóta bótagreiðslna í upphafi vá-
tryggingartímabils bifreiðar.
Rétt til endurgrciðslu eiga: ör-
orkulífeyrisþegar (75% örorkumat
eða meira); örorkustyrkþegar lífeyr-
istrygginga og slysatrygginga (50-
74% örorkumat); foreldrar barna
sem njóta barnaörorkustyrkja sam-
kvæmt lögum um almannatrygging-
ar; og foreldrar barna sem njóta
greiðslna samkvæmt lögum um mál-
efni fatlaðra.
Umsóknir um endurgreiðslu skulu
skráðar á eyðublöð sem Trygginga-
stofnun ríkisins og umboð hennar
láta í té. Með umsókn skulu fylgja
kvittanir tryggingafélags fyrir
greiðslu ábyrgðatryggingar.
Hlutafélagasjóöir Ávöxtunar:
SJÓDUM SUTW
BANASLYS
í hádeginu í gær varð banaslys í
malargryfjunum suður af Kópavogi
í grennd við gömlu steypustöðina,
ekki langt frá nýju Reykjanesbraut-
inni.
28 ára gamall Reykvíkingur ók á
mikilli ferð fram af háu barði og lenti
undir hjólinu er niður kom.
Talið er að hann hafi látist sam-
stundis. Hann var hjálmlaus.
Að svo stöddu er ekki unnt að skýra
frá nafni hins látna. -sá
Ráðherra stöðvaði
Byggðaverk
Félagsmálaráðherra stöðvaði í
gær byggingaframkvæmdir á lóð
Fjalakattarins í Aðalstræti 6.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
keypti á sínum tíma lóðina og hóf
að byggja sér skrifstofuhúsnæði
eftir að Fjalakötturinn hafði verið
rifinn.
SH hætti síðar við bygginguna
og keypti þá Byggingaverktakafyr-
irtækið Byggðaverk lóðina ásamt
samþykktum teikningum. breytti
þeim lítillega og bætti m.a. við 9
íbúðum sem snúa eiga að Bröttu-
götu þannig að húsið verður ekki
eingöngu skrifstofuhús.
Óskar Valdimarsson hjá Byggða-
verk sagði í gærkvöldi að úrskurði
ráðherra yrði hvergi áfrýjað og ef
Itann yrði látinn standa, væri þeini
sú leið ein fær að höfða skaðabóta-
mál á hendur borginni, en hún hef-
ur samþykkt allar teikningar og veitt
öll leyfi til byggingarinnar. -sá