Tíminn - 28.05.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 28.05.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 28. maí 1992 Endurskipulagning sem tókst eins og til var ætlast. Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tanga á Vopnafirði: Gott starfsfólk lykillinn að bættum rekstri Tanga hf. Eftir Hall Magnússon Þaö hefur vakið athygli hve mikil umskipti hafa oröið í sjávarútvegi á Vopnafirði und- anfarin tvö ár. Tángi hfM sem er undirstöðufyrirtæki í at- vinnulífi á Vopnafirði, rekur þar bæði útgerð og fisk- vinnslu. Eins og fleiri fyrirtæki í sjávarútvegi átti Tangi hf. í gífurlegum rekstrarerfiðleik- um árin 1988 og 1989 og skipti rekstrartap fyrirtækisins tugum milljóna króna. En árin 1990 og 1991 varð hagnaður af rekstri fyrirtækisins. Friðrik Mar Guðmundsson er fram- kvæmdastjóri Tánga hf. Blaða- maður Tímans tók fram- kvæmdastjórann taU nýlega. Hver er ástæða þessara um- skipta í rekstri Tanga hf.? „Fyrir tveimur árum fór félagið gegnum mikla fjárhagslega endur- skipulagningu. Þá var seldur bátur og loðnubræðsla, en auk þess kom inn hlutafé frá Hlutafjársjóði og fleiri aðilum. Ef við erum að tala um árið 1990, þá voru ytri aðstæð- ur góðar: afurðaverð var hátt og vextir lágir. Vaxtaliðurinn var því óverulegur. En auk hagstæðra ytri aðstæðna vil ég fyrst og fremst þakka bætta afkomu góðu starfs- fólki bæði til sjós og lands. Þá höf- um við einnig góð tæki í höndun- um, — nýleg skip með góðan að- búnað og tækjakost og aðstaðan er góð í frystihúsinu. Þá hefur stór- aukið aðhald í rekstri skilað sér með ágæturn." Verður áframhald á þessariþró- un? „í sjálfu sér kom fyrri hluti síð- asta árs betur út en sá síðari. SI. haust fór aðeins að halla almennt undan fæti í sjávarútvegi og sú þróun hefur haldið áfram fram undir daginn í dag. Við höfum aft- ur á móti ekki komið alveg eins illa út úr þessu og almennt gerist Við vorum ekki með tap síðari hluta ársins, heldur örlítinn hagnað. Að svo stöddu held ég að best sé að segja sem minnst um afkomuna sem af er þessu ári, en við verðum með endurskoðað uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins og þá Friðrik Mar Guömundsson, framkvæmdastjóri Tanga hf. á Vopnafiröi. Fyrir aftan hann standa Friörik Blomsterberg og Ellert Árnason. Tímamynd hm Hvert er umfang Tanga hí í dag? „Tangi velti eitthvað um 650 milljónum króna samanlagt á síð- asta ári. Á þessu ári áætlum við að vera með svipaða veltu, þrátt fyrir kvótasamdrátt. Það byggist á því að við fluttum þó nokkum kvóta milli ára, þar sem annað skip okk- ar, Eyvindur Vopni, var í vélar- skiptum í fimm mánuði og kvóti skipsins því að mestu ónýttur. Stærra skipið okkar er hins veg- ar Brettingur. Honum var breytt mikið: skipt var um vél og skipið lengt árið 1988. Þar er nú mögu- leiki á að heilfrysta aflann um borð, svo sem karfa sem er mjög erfiður til vinnslu í landi. Auk þess er hægt á Brettingi að frysta undir- málsfisk og utankvótategundir svo sem skráplúru og tindabikkju. Auk frystihússins og saltfísk- verkunarinnar, sem ég hef þegar minnst á, rekum við síldarsöltun, söltum grásleppuhrogn og vinn- um hörpuskel. Alls starfa um 110 manns hjá Tánga hf.“ Hverjar eru framtíðarhorfum- ar? „Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Ég held að framtíðar- horfur okkar séu ekki slæmar. Ég er sannfærður um að Vopnafjörð- ur á framtíð fyrir sér. Það er gott að búa hér og fólki líður vel. Hvað Tánga hf. viðkemur, þá er fyrirtæk- ið vel búið tækjum og því ekki þörf mikilla fjárfestinga, nema að menn vilji smátt og smátt auka við kvóta. Það er enginn vafi í mínum huga að sjávarútvegur á mikla framtíð fyrir sér. Hann skaffar nú um 80% af útflutningstekjum þjóðarinnar. En mér er það ljóst að ef menn ætla að lifa af í þessari grein, verður að fara ákaflega var- lega og taka stutt en örugg skref fram á við.“ kemur þetta í Ijós. En hins vegar er ekkert nú, sem bendir til þess að farið sé að halla verulega undan fæti í rekstri hjá okkur.“ Hvemig er að virma að sjávarút- vegi í núverandi rekstrarumhverfi? „Það er mikill munur að hafa fast land undir fótum hvað varðar efnahagslegan stöðugleika. En það er engin launung á því að það hef- ur orðið ákveðin gengishækkun, þannig að kostnaður innanlands hefur hækkað verulega á meðan færri krónur fást fyrir þann gjald- eyri sem greiddur er fyrir afurðim- ar. En ef verðbólgan heldur áfram að vera eins lág og hún er nú, þá ætti örlítið af þessum mun að skila sér til baka, þ.e. ef verðbólgan verður meiri í grannlöndunum en hér heima. Það hefur hins vegar aldrei gerst áður og ég trúi ekki að það verði fyrr en ég tek á því.“ Hafið þið nægjanlegan kvóta? „Það hefur enginn nægjanlegan kvóta í dag og það kemur alvarlega við ansi mörg fyrirtæki. Það er orðinn verulegur samdráttur þeg- ar á heildina er litið í greininni. Við höfum brugðist við þessu með því að hagræða í samræmi við minnkandi kvóta. Við erum búnir að vera með lokaða saltfiskverk- unina í tvö ár og keyrt okkar aðai- deild, sem er frystihúsið, af meiri krafti fyrir bragðið. Þannig hefur minnkandi kvóti ekki komið svo mjög niður á frystihúsinu, en hins vegar harkalega á saltfiskverkun- inni en þar verkum við nú einung- is hausa. Það má geta þess að við erum búin að framleiða um 10 þúsund pakka af þurrkuðum hausum á rúmum tveimur árum og fýrir þá hafa fengist um 35 milljónir króna.“ Sjúkrapúð- ar í alla bíla Sjálfboöaliðar Rauða kross íslands og Landsbjargar, landssambands björgunarsveita, ganga fyrir hvers manns dyr á næstu dögum og selja sjúkrapúða. í púðunum eru nauðsynlegustu sjúkragögn til að búa um flest opin sár, sem oft eru fýlgifiskar slysa. Tal- ið er að hér á landi séu sjúkragögn í tólfta hverjum bíl, en í mörgum ná- grannalöndum okkar er skylt að hafa sjúkrapúða í bílum líkt og öryggis- belti. Söluátakið hefst í dag, uppstign- ingardag, og stendur fram yfir hvíta- sunnu. Markmiðið er að gefa sem flestum tækifæri til að eignast sjúkrapúða áður en fólk leggur land undir fót í sumarleyfi. iAfiOw■ > : BELGRAD Hersveitir Serba vörpuðu þrem sprengjum með sprengjuvörpum að hópi fólks, sem beiö eftir afgreiðslu á mjólkurís og brauöi i verslun í Sarajevo. Minnst 20 manns létust og um 160 aörir særðust, misalvarlega að sögn heilbrigðisyfirvalda í Bosníu. BRÚSSEL Sendifulltrúar Evrópubandalags- ríkja í Brússel áttu með sér fund í gær, tilhvattir af Bandarikja- stjóm. Tilgangurinn með fundin- um var að ræða þrýstiaðgerðir gegn Serbíu, sem hugsanlega gætu dugaö til að fá Serba til að breyta hernaðarstefnu sinni gagnvart grönnum sínum. Vonast var til í gær að á fundin- um tækist að fá Frakka ofan af þeirri kröfu sinni aö viðskipta- bann gagnvart Serbíu verði ekki sett á nema eftir atkvæða- greiðslu í öryggisráöi S.Þ. MOSKVA Yfirvöld Moldóvu og slavneskir uppreisnarmenn í Dnéstr-héraði, sem lýst hafa yfir sjálfstæði, hafa sæst á vopnahlé þar sem ný friðarviðræðulota er að heljast, að þvi er segir í frétt útvarpsins í Moldóvu. BRÚSSEL Varnarmálaráðherrar Atlants- hafsbandalagsríkjanna hafaoröið ásáttir um að hersveitir bandalagsins gegni áfram friöargæsluhlutverki því, sem þær hafa gegnt frá stríðslokum, og að það veröi gert enn víðtækara en áður. Hins vegar ríkti mikil óeining um það hvemig skipulag landvama í Evrópu skyldi verða á því tímabili, sem nú er í garð gengiö að loknu kalda stríðinu. GAZA Palestínumaður stakk til bana rabbína, gyðingaprest, sem búsettur var á herteknu svæði Israelsmanna á Gazasvæöinu. Morðið varð til þess að israelskir landnemar óðu um svæðið og gengu í skrokk á þeim Palestinumönnum sem þeir mættu. NABATIYEH, Líbanon Skæruliðar Hizbollah-samtak- anna, sem hliðholl eru klerka- stjórninni í fran, gerðu árás á ísraelska varðstöð í S-Líbanon og skiptust á fallbyssuskotum við ísraelska hermenn, þrátt fyrir ítrekuö alþjóöleg tilmæli til beggja aðila um að halda aftur af bardagagleði sinni. BANGKOK Flestir stjórnmálaforingar í Thailandi eru enn í ýmsum bandalögum og samtökum, sem þeir bundust ýmist með eða gegn stjóm Suchindas Kraprayoon, sem setti herinn í að drepa landsmenn í hrönnum í síöustu viku. Suchinda hefur nú látiö af völdum og farið í útlegð, en enginn hefur tekiö við stjórn landsins í hans stað. ISLAMABAD Innanríkisráðherra Afghanistans hefur vísað á bug áætlunum um kosningar í landinu innan hálfs árs. Hann segir að fjöldi fólks krefjist þess að hann verði leið- togi hins stríðshrjáða lands. HÖFÐABORG Stjórn S-Afríku liggur undir höröum ásökunum, sem einkum er beint gegn de Klerk forseta og umbótastefnu hans. Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að nú verði verkin í þeim efnum að fara að tala. Hveitibrauösdögunum meö Nelson Mandela og Afríska þjóð- arráðinu sé nú lokið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.