Tíminn - 28.05.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 28.05.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 HEIÐI Bl LAPART ASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir Kaupi bíla til niðurrifs HEIÐI • BÍLAPARTASALA Flugumýrl 18D ■ Mosfellsbœ Sfmar 668138 & 667387 AUÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 Oðruvísi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR•VARA- HLUTIR. MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SfMI 6T9225 09| ýo HOGG- ,> DEYFAR Versiið hjá fagmönnum GS varahluti LH. Hamarshöföa 1 - s. 67-67-44, Tíminn FIMMTUDAGUR 28. MAl 1992 Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra um kröfu aðalfundar SÍF: „Kerfinu verður ekki breytt að svo stöddu“ „Sá tími kemur að ríkisvernduð einokun verður ekki lengur við lýði. Stefna ríkisstjómarinnar hefur verið sú að biðja menn um að iaga sig að þeirri skipan mála á aðlögunartíma. Þannig að ef SÍP ályktar um að þeir vilji viðhalda kerfinu þá er svarið þetta. Því verð- ur ekki breytt frá því sem verðið hefur á næstunni. Að svo stöddu á það einnig við um kröfuna um afnám leyfisveitingakerfis," sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra um kröfu aðalfundar SÍF um að það fái áframhaldandi sérleyfi á útflutningi á saltfiski eða frelsi verði veitt til útflutnings ella. „Einkaleyfi SÍF byggist á gömlu stjórnvaldsbréfi frá tíð Ólafs Thors. Það breytir ekki því að leyfisveiting- arnar eru í höndum ráðuneytisins og allir ráðherrar sem þar hafa stjórnað, með undantekningum þó, hafa veitt mönnum utan SÍF leyfi. Framtíðin í markaðsmálum er nokkurri óvissu undirorpin. Þess vegna hefur SÍF verið ráðlagt, af hálfu ráðuneytisins, að líta svo á að þeir væru á aðlögunartímabili og þeir ættu að búa sig undir að sá tími kæmi að ríkisvaldið hætti afskiptum af þessu. SÍF getur hins vegar vel haldið velli án þess að styðjast við eitthvert ríkisleyfi. Það er tvennt sem mun breyta markaðsaðstæðunum. Annars vegar EES- samningurinn. Engin ein grein í íslenskum sjávarútvegi hagn- ast eins mikið á honum og saltfisk- útflutningur og það viðurkennir SÍF. Hins vegar er á það að líta að nú þeg- ar þessir samningar liggja fyrir er ekkert ákvæði í bókun 9 (um sjávar- útvegsmál) sem kveður á um það að okkur sé ekki heimilt að hafa óbreytt kerfið. Samkvæmt EES-samningn- um er það hins vegar meginreglan að það sé frjálsræði í milliríkjavið- skiptum og að leyfakerfi sé ekki beitt sem útflutningshindrun. Skuld- binding okkar að gera það ekki er aftur á móti fólgin í GATT. Henni hefur ekki verið framfylgt sam- kvæmt bókstafnum. Náist nýtt sam- komulag um GATT, sem þykir nú líklegra en áður, þá verður þessum skuldbindingum framfylgt með meiri þunga en áður,“ sagði Jón Baldvin. -EÓ 150 börn, sem aðstoðuðu Ríó tríó og Landgræðsluna við að stöðva landið í að fjúka burt, í heimsókn í Gunnarsholti: „Töðugjöld“ vegna landgræðsluplötu „Ég vil minna ykkur á það, krakkar, að fyrir 50 árum var þessi staður ein sandeyðimörk," sagði Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjórí þegar hann í gær tók á móti hópi 150 barna sem kom í kynn- isferð í Gunnarsholt á Rangárvöllum, en si. haust seldi þessi sami hópur hljómplötuna Landið fýkur burt sem Ríó tríó gaf út til stykrt- ar Landgræðslunni. Hljómplata þessi fékk ágætar við- tökur en með henni vildi Ríó tríóið leggja sitt af mörkum til upp- græðslu. Börnunum sem komu að Gunnarsholti í gær var kynntur staðurinn, en síðan tók Ríó tríóið lagið. Að síðustu var boðið upp á góðgerðir sem ýmsir aðilar gáfu. í heimleiðinni tóku krakkarnir sjálfir til hendinni við land- græðslustörf og sáðu fræi í ná- grenni Þorlákshafnar en þar hefur stór hluti af starfi Landgræðslunn- ar farið fram undanfarin ár. —SBS, Selfossi Samstarf Olís og Land- græöslunnar: Bensín til landgræðslu Olíuverslun íslands hf., Olís, og Landgræðslan efna nú til landgræðsluátaks, en Óli Kr,. Sigurðsson forstjóri hefur ákveðið að ákveðinn hluti af hverjum seldum lítra af bensíni renni tii landgræðslu. Miðað við markaðshlutdeild Olís gæti þetta orðið 10 mðljónir kr. á ári en gæti hæglega aukist f 14 milljón- ir. Þetta var kynnt á blaðamanna- fúndi í Gunnarsholti í fyrradag. Framlag Olis er það stærsta sem einn aðili hefur Bl þessa Iagt tfl stuðnings landgræðslu. Oli Kr. Sigurðsson afhenti fyrstu ávísunina tfl Landgræðslunnar á þriðjudaginn og var hún að upp- hæð þrjár mifljónir kr. Landgræðslunni verður í sjálfs- vald sett hvar unnið verður fyrir það fjármagn sem Olís leggur tfl, en ætlunin er þó að græða upp þau landsvæði sem allra verst eru á sig komin. —SBS, Selfossi SIF vill að sérleyfi SIF til útflutnings á saitfiski verði endurnýjað eða að útflutningurinn verði gefinn frjáls: Dagbjartur vill skila inn ,,sérleyfi“ SÍF „Ef einhver heldur, að SÍF hafi ennþá sérleyfi á útflutningi á saltfiski, þá er rétt að sá hinn sami íhugi hvað hugtakið „sérleyfi" þýðir. Nei, það er deginum Ijósara að sérieyfi Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda á saltfiskútflutningi hefur verið afnumið í verki og þvf er rétt að gera það einnig í orði. En það sem verra er, að útflutningur hefur ekki verið gefinn frjáls, heldur er verið að veita örfáum út- völdum leyfi. Því er aðeins eitt fyrir okkur að gera; — viðurkenna staðreyndir, skila því sérieyfi sem við höfum haft að nafninu til undanfarin misseri og krefjast þess, að öllum verði gefinn kostur á því að flytja út saltfisk." Þetta sagði Dagbjartur Einarsson, for- öðrum en SÍF útflutning á saltfiski til maður stjómar Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda, á aðalfúndi sambandsins í gær. Fundurinn sam- þykkti ályktun þar sem segir að núver- andi staða í útflutningsmálum saltfisks sé óviðunandi og skorað er á ríkis- stjómina að endumýja sérleyfi SÍF eða gefa útflutning á saltfiski algerlega firjálsan. Dagbjartur og Sigurður Haraldsson, framkvæmdastjóri SÍF, voru harðorðir í garð utanríkisráðherra á fundinum í gær. Þeir sögðu að utanríkisráðherra hefði margbrotið reglur sem hann setti í apríl í fyrra, en þær bönnuðu öllum Evrópulanda. Á síðasta ári heimilaði utanríkisráðu- neytið öðmm en SÍF að flytja út tæp 2.700 tonn af saltfiskafurðum. Auk þess sem Aflamiðlun heimilaði útflutning á 3.400 tonnum af ferskum, flöttum fiski, en verulegur hluti af honum fer tii söltunar erlendis og síðan á saltfisk- markaði okkar. Fyrstu tuttugu vikur þessa árs er búið að flytja út 2.500 tonn af saltfiskafúrðum af öðrum en SÍF, nær sama magn og allt árið í fyrra. Dagbjartur segir að af þessum tölum sé ekki hægt að draga nema eina álykt- un, að SÍF hafi ekki lengur sérleyfi til Dagbjartur Einarsson í ræðu- stóii á aöalfundi SÍF í gær. Tímamynd Ámi Bjarna útflutnings á saltfiski. Því sé rétt að við- urkenna í orði það sem hefúr gerst í verki, skila inn sérleyfinu og gefa allan útflutning frjálsan. Forystumenn SÍF telja að það keríi sem nú er á þessum útflutningi sé það versta sem hægt sé að hugsa sér. Ein- stakir útflytjendur geti með því að rölta á fúnd ráðherra fengið leyfi til að flytja út farma af saltfiski. Saltnskkaupendur í Evrópu viti ekki hvaða skipulag ríki á saltfiskútflutningi íslendinga. Þeir þori ekki að safna birgðum með því að kaupa sama magn af SÍF og þeir eru vanir, af ótta við að einstakir seljendur frá íslandi bjóði keppinautunum salt- fisk á lægra verði, sem leiði til þess að þeir sitji upp með vöru á of háu verði. í huga framkvæmdastjóra SÍF leikur enginn vafi á til hvers afnám sérleyfis SÍF leiðir, sem sé lægra verðs til ffam- leiðenda hér heima. Hann vísar til reynslu Norðmanna sem gáfu útflutn- ing á söltuðum afúrðum til Portúgals frjálsan í byrjun síðasta árs. Sigurður segir að þetta hafi leitt til lækkunar á verði saltfisks. Hann segist spá því að innan farra ára muni norskir útflytj- endur bindast samtökum að nýju líkt og útflytjendur á Nýfúndnalandi gerðu efdr að hafa gert tilraunir með frelsi í útflutningi á saltfiski. -EÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.