Réttur


Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 3

Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 3
Adda Bára Sigfúsdóttir: „BLÓMLEGA BÚIÐU Meðan Sjálfstæðismenn sátu að völdum í Reykjavík töluðu þeir títt um blómlega, vel- rekna búið sitt. Eftir kosningarnar í fyrravor var haldið áfram í sama tón, og talað um að hinn nýi meirihiuti hefði tekið við blómlegu búi, og sjálfsagt verður haldið áfram að klifa á þessari staðhæfingu í tíma og ótíma. Því er ekki úr vegi að skrá hér nokkr- ar staðreyndir um stöðu búsins í árslok 1977 og á miðju ári 1978. Tekjur borgarsjóðs urðu 10.8 milljarð- ar króna árið 1977. Langmestur hluti þeirra fór í ýmsa starfsemi sem borgin hefur á sinni könnu og ekki verður und- an vikist. Til fræðslumála, heilbrigðis- og hreinlætismála, sjúkrasamlags og ann- arra félagsmála fóru alls 4.7 milljarðar. Til nýbygginga og viðhalds gatna fór 1.6 milljarður. Til ýmiss konar bygginga- framkvæmda var varið 2.1 milljarði, og til þess að mæta fjárskorti hjá strætis- vögnum og bæjarútgerð þurfti borgar- sjóður að greiða 350 milljónir. Ymislegt hafði farið öðruvísi en áætlað var í fjárreiðum borgarinnar á þessu að- faraári kosninga. Skammtímaskuldir, sem að verulegu leyti eru vandræðaskuldir al ýmsu tagi, áttu samkvæmt áætlun að lækka um 71 milljón. Þær lækkuðu ekki, heldur hækkuðu um 425 milljónir og langtímalánin, sem áttu að lækka um 204 milljónir, þau lækkuðu að vísu, en aðeins um 39 milljónir. Skannntímaskuldirnar eða lausaskuldirnar voru í árslok orðnar rösklega einn og hálfur milljarður, en lán til langs tíma um 600 milljónir. Hér er aðeins verið að tala um skuldir borgar- sjóðs, en ekki fyrirtækja borgarinnar, svo sem Hitaveitu og Rafmagnsveitu, en bæði þessi fyrirtæki hafa þurft að taka verulega há erlend lán á undanförnum árum og námu þau sem næst 5 milljörð- um í árslok 1977. Innheimta útsvara og aðstöðugjalda varð mun lakari en gert 83

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.