Réttur


Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 21

Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 21
LÍNURIT: KAUPMÁTTUR TÍMAKAUPSINS Hér sést hvernig gengislækkanirnar eru gerðar tii að lækka kaupmátt timakaups og hvernig verka- lýðurinn á í sífelldu varnarstriði til að reyna að ná kaupmættinum frá 1945—47 á ný. (Nánar um þetta í Rétti 1976, bls. 213—216 og 1969 bls. 68—74). Myndin sýnir þróunina 1945—1969. Línuritið á vinstri síðu er gert af Ásmundi Stefánssyni, hagfræðingi ASÍ og sýnir þróun kaupmáttarins frá ca. 1916 til ca. 1973. ir“ hafa alltai velt þeim kauphækkunum, er verkalýðurinn knúði fram sér til varn- ar, yfir í verðlagið, - talið það svo sjálf- sagt mál að annað kæmi ekki til greina. Þannig hefur valdastéttin á islandi gert verðbólguna að aðalgróðalind sinni:1) lækkað í krafti hennar kaupgjald- ið, -2) skorið niður með henni milljónalán sín hjá ríkisbönkunum, -*) og margfaldað verðmæti eigna sinna í krónutölu að sama skapi. En yfirstéttin hefur með þessu ekki að- eins gert verðbólguna - mestmegnis framkvæmda með gengislækkunum flokka hennar — að svikamyllu gagnvart verkalýðnum, sem hefur vegna þessa orð- ið að þrœla lengri vinnutima en nokkur verkalýður i Evrópu, heldur hefur þessi valdastétt um leið með þessari verðbófgu sinni orðið á einu sviði versti bölvaldur ísfensku þjóðfélagi sem heild: sem sé á skipulagssviðinu, — jiannig að íslenskt auðvaldsskipulag er verst skipulagt allra auðvafdsþjóðfélaga í Evrópu. Kauphækkanir þær, sem verkalýður Evrópu og Bandaríkjanna knýr fram eru auðvaldinu höfuðlivati til betra skipulags á atvinnu- og viðskiptalífinu: þær knýja atvinnurekendur til að duga eða drepast, — og þeir geta aðeins dugað með því að fækka í sífellu atvinnurekendum sjálfum, gera fyrirtækin stærri og betur rekin. 101

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.