Réttur


Réttur - 01.04.1979, Side 54

Réttur - 01.04.1979, Side 54
INNLEND 1 VÍÐSJÁ 1 Réttindabætur verkalýðs Á undanförnum mánuðum hef ur mjög verið rætt um svonefndan „félagsmála- ]Kikka“ ríkisstjórnar og verkalýðshreyf- ingar. Þessi pakki fól í sér lagasetningar um margvísleg réttindi launafólks og hækkun fjárframlaga til fræðslumála og annarrar starfsemi verkalýðshreyfingar- innar. Hér er um að ræða eftirfarandi lög: 1) Lög um réttindi verkafólks til upp- saguarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla. Þessi lög auka til muna atvinnuöryggi verkafólks þar eð réttindaávinningur er nú bundinn við starfsgrein en ekki tiltekinn atvinnurekenda og upp- sagnarfrestur verður nú lengri en áð- ur. Þessi lög fela ennfremur í sér að verkafólk á nú í veikinda- og slysatil fellum rétt til greiðslu dagvinnu launa í þrjá mánuði en áður var þessi réttur takmarkaður við einn mánuð og unnið hefði verið hjá sama at- vinnurekenda. Ýmis önnur ákvæði laganna auka enn frekar tekjuöryggi verkafólks þegar veikindi ber að höndum. 2) Lög um 40 stunda vinnuviku sem lögfesta að vinnuvikunni sé í raun lokið kl. 17.00 á föstudögum og taki þá næturvinna við. Þessi lög marka þá stefnu stjórnvalda að hamla gegn óhóflega löngum vinnutíma. Þau eru þó aðeins fyrsta skrefið í átt að því að afnema eftirvinnu. 3) Lög um orlof sem tryggja launafólki greiðslu orlofsfjár á réttum tíma og ávöxtun þess með eðlilegum hætti. Ásamt breytingum á reglugerð koma þessi lög í veg fyrir að atvinnurek- endur geti misnotað orlofsfé starfs- fólks og látið það rýrna að verðgildi. 4) Lög um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot, sem tryggja að örorkubæt- ur, dánarbætur eða aðrar slysabætur glatist ekki J^ótt fyrirtæki verði gjald- þrota, en í fyrri lögum var alvarlegt gat þessa efnis. Nú eru bætur til starfsmanns, maka eða barna tryggð- ar þótt atvinnurekandi verði gjald- jn'ota. 5) Lög um skipti á dánarbúum og le- lagsbúum sem eru tengd lögum um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot og lengja forgangsrétt launakröfu og annarra krafna launafólks, svo sem á örorku- og dánarbótum, úr 6 mánuð- um í 18 mánuði. 0) Lög um lögtak og fjárnám sem ákveða að lögtaksréttur taki einnig til þeirra umsömdu greiðslna sem atvinnurek- endum ber að standa skil á í orlofs- sjóði svo og til allra iðgjaldsgreiðslna í lífeyrissjóði. 134

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.