Réttur - 01.01.1984, Blaðsíða 1
67. árgangur
1984 — 1. hefti
‘AWDS8GKASAFM
377300
isl awits
Líklega verða eftirmæli núverandi ríkisstjórnar einhver hin verstu, er nokk-
ur stjórn hefur fengið á landi hér.
Hún gerist stórtæk og djörf, þegar hún tekur að níðast á sjúklingum,
ekkjum, munaðarleysingjum og öðrum þeim, sem þurfa hjálpar við. Samtímis
eys hún út fé til aðstoðar innrásarher morðingjaklíkunnar miklu: „hernaðar-
og stóriðju-samsærinu" í Bandaríkjunum, — veitir bröskurum hverskonar
ívilnanir og skattfríðindi og sóar takmarkalaust í „utanríkisþjónustu" í þágu
Kanans.
Ríkisstjórnin ætlaði og að reiða hátt til höggs gegn öllum launastéttum
landsins: svifti þær með „lögum“ samningsrétti: skipaði þeim þar með á þræla-
bekk, er misvitrir, en fégráðugir braskarar skyldu drottna yfir. Og um leið stal
hún, — auðvitað með „lögum“, — ca. 30% af kaupi vinnandi fólks — til handa
þeim ríku.
En svo fékk ríkisstjórnin, leppar hinna amerísku auðdrottna, að sjá að ís-
lensk alþýða lætur ekki bjóða sér fasista-aðferðir þeirra herra, er með „lýð-
ræði“ hræsna.