Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 28. mars 2009 17
Gorch Fock, þrímastra skólaseglskip þýska flotans, leggst að bryggju í Reykja-
vík í dag. Það kom hingað síðast fyrir sjö árum.
■ Hvað er skólaskip?
Skólaskip eru til í flestum flotum heims. Á þeim fer fram þjálfun nýliða,
einkum liðsforingjaefna. Annars vegar er um að ræða úr sér gengin skip sem
höfð eru við landfestar og notuð sem kennslurými. Hins vegar eru hin eigin-
legu þjálfunarskip, sem gjarnan eru gamaldags seglfreigátur þótt skipin séu
jafnframt búin nútímabúnaði hvað varðar vélakost, siglingatæki og aðbúnað
áhafnar.
■ Hver er saga Gorch Fock?
Upprunalega var skólaskip með þessu nafni smíðað fyrir þýska flotann árið
1933. Sovétmenn tók það herfangi við lok síðari heimsstyrjaldar og endur-
nefndu Tovarítsj. Skipið sem nú er til Íslands komið var smíðað í Blohm&Voss-
skipasmíðastöðinni í Hamborg árið 1958, eftir upprunalegu teikningunum frá
1933. Nýja skipið var byggt á systurskipi hins upprunalega Gorch Fock, sem
bar nafnið Albert Leo Schlageter. Nýja skipið var fyrst sjósett 23. ágúst 1958
og var tekið formlega í þjónustu (vestur-)þýska flotans 17. desember það ár.
Síðast þegar skipið sigldi til Íslands voru um borð 139 fastir áhafnarmeð-
limir auk 59 undirforingjaefna úr þýska sjóhernum og tveggja liðsforingjaefna
úr þýska landhernum. Sú sigling var þáttur í átta vikna námskeiði foringjaefn-
anna, en námskeiðið hófst með tveggja vikna þjálfun í skipinu þar sem það lá
við bryggju í heimahöfn þess, Kiel.
■ Hvað læra menn á skólaskipi?
Námið fyrir liðsforingjaefnin miðast að því að gefa þeim tækifæri til að
komast í návígi við náttúruöflin og til að kynnast því hvernig það er að búa
með öðrum áhafnarmeðlimum í þrengslum og einangrun. Ekki er hins vegar
gert ráð fyrir að þeir leggi stund á flókin siglingafræði á þessum tíma enda er
nærri fullmönnuð áhöfn þjálfaðra sjóliða um borð í skipinu.
FBL-GREINING: SKÓLASKIP
Fljótandi
þjálfunarbúðir