Morgunblaðið - 10.01.2006, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 35
DAGBÓK
JANÚARVERKEFNI Hugleiks í
Leikhúskjallaranum er gaman-
óperan Bíbí og blakan eftir þá Ár-
mann Guðmundsson, Sævar Sigur-
geirsson og Þorgeir Tryggvason.
Hugleikur hefur verið með mánað-
arlegar skemmtanir í Leikhús-
kjallaranum í vetur undir yfir-
skriftinni Þetta mánaðarlega.
Aðeins verður ein sýning á verk-
inu, á miðvikudaginn og hefst hún
kl. 21.00.
Verkið segir frá hinni ungu og
fögru Bíbí sem bíður ein eftir að
ástin sæki hana heim, en mál
hennar vandast þegar tvo gesti ber
að garði sömu nóttina: töfrandi en
dularfullan rúmenskan nýbúa og
ábúðarmikinn vampíruveiðara sem
telur sig heldur en ekki vera kom-
inn í feitt. Höfundarnir kjósa að
kalla verkið „óperuþykkni“, enda
koma þar fyrir öll þau helstu atriði
sem einkenna „alvöru“ óperur, en
á mun skemmri tíma en algengast
er, sem ætti að henta sérlega vel
tímabundnum nútímaáhorfendum.
Bíbí og Blakan er langlífasta og
víðförulasta sýning Hugleiks, og
fagnar nú tíu ára afmæli sínu.
Verkið var frumsýnt í Höfunda-
smiðju Leikfélags Reykjavíkur
1996, og seinna sama vor tekið til
sýningar hjá Hugleik.
Verkið hefur tekið talsverðum
breytingum í áranna rás, og hafa
höfundar notað tækifærið í hvert
sinn sem nýtt ferðalag var á döf-
inni að breyta og bæta. Leikarar
að þessu sinni eru þau Einar Þór
Einarsson, Björn Thorarensen,
Hulda B. Hákonardóttir, Silja B.
Huldudóttir, Þorgeir Tryggvason,
Þórunn Guðmundsdóttir og Ylfa
Mist Helgadóttir auk píanóleik-
arans Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
Bíbí og blakan snýr aftur
FRÆÐSLUDEILD Þjóðleikhúss-
ins stendur fyrir svokölluðum
Réttarhöldum mánaðarlega í vetur.
Þar eru tekin fyrir málefni sem
varða samfélag og listir og eru í
tengslum við sýningar Þjóðleik-
hússins. Réttarhöldin eru í sam-
starfi við Ritið, tímarit Hugvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands.
Þriðju réttarhöldin verða kl.
20.30 í kvöld í tilefni af sýningu
Þjóðleikhússins á Túskildingsóper-
unni eftir Bertolt Brecht og Kurt
Weill í leikstjórn Stefáns Jóns-
sonar. Umræðuefni kvöldsins er:
„Er allt til sölu?“ Frummælendur
verða Þorvaldur Gylfason við-
skiptafræðingur og Pétur Pét-
ursson guðfræðingur. Yfirskrift er-
indis Þorvaldar er „Er Brecht að
reyna að segja okkur að markaðs-
búskapur sé siðlaus?“ og Pétur
nefnir erindi sitt „Sannleikurinn og
skaupið í Túskildingsóperunni“.
Eftir flutning erindanna verða um-
ræður.
Þjóðleikhúsið hefur fengið gamla
Hæstaréttarhúsið á Lindargötu 3
til afnota. Þessi viðbót við húsa-
kynni Þjóðleikhússins verður nýtt á
margvíslegan hátt, meðal annars
fyrir fræðsludeild hússins og uppá-
komur í Dómsalnum.
Tvenn réttarhöld hafa þegar ver-
ið haldin, í tengslum við sýningar
leikhússins á Frelsi eftir Hrund
Ólafsdóttur og Halldóri í Holly-
wood eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Aðgangur að Réttarhöldunum er
ókeypis.
Réttarhöld í tengslum
við Túskildingsóperuna
Úr sýningu Þjóðleikhússins á Túskildingsóperunni.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Leikfimi kl. 9. Boccia kl.
9.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
sund, vefnaður, línudans, boccia, fóta-
aðgerð.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Fastir liðir eins og venjulega.
Skráning á postulínsnámskeið stend-
ur yfir. Þorrablótið verður 3. febrúar.
Notendaráðsfundur 17. jan. kl. 10.
Síminn hjá okkur er 588 9533
Handavinnustofa Dalbrautar 21–27 er
opin alla virka daga milli kl. 8 og 16.
FEBÁ, Álftanesi | Gengið þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 10–11. Mæting
við Bessann og kaffi þar eftir göngu.
Allir eldri borgarar velkomnir í hópinn.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin í dag
kl 10–11.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
í dag kl. 13. Bókmenntaklúbbur kl.
14.30. Félagsvist kl. 20. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar ganga frá
Stangarhyl 4, kl. 10. Söngvaka mið-
vikudag kl. 14.30, undirleik annast
Sigurður Jónsson.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starf sem öllum hentar í Ármúlaskóla
kl. 16.20–18.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.45 og karlaleikfimi
kl. 13.15 í Mýri.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a. glerskurður.
Umsjón Helga Vilmundardóttir.
Kl.10.30 létt ganga um nágrennið. Kl.
13 postulínsnámskeið, umsj. Sigur-
björg Sigurjónsd. Myndlistarsýning
Sólveigar Eggerz stendur yfir. Allar
uppl. á staðnum og í síma 575 7720
og wwwgerduberg.is. Strætó S4 og
12 stansa við Gerðuberg.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9
aðstoð við böðun. Kl. 13 spilað og kl.
15 kaffiveitingar.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, glerskurður, kaffi, spjall, dag-
blöðin, hárgreiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11
leikfimi. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 12.15
ferð í Bónus. Kl. 13 myndlist. Kl. 15
kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Bútasaumur hjá
Sigrúnu kl. 9–13. Boccia kl. 9.30–
10.30. Helgistund hjá séra Ólafi kl.
13.30. Myndlist hjá Ágústu kl. 13.30–
16.30. Böðun fyrir hádegi. Fótaað-
gerðir 588 2320. Hársnyrting
517 3005.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Upplestrar- og framsagn-
arhópur; kynningarfundur kl. 10 fyrir
framhaldshóp og m.a. greint frá fyrir-
huguðu samstarfi við Kringlubóka-
safn. Byrjendahópur kl. 10 á morgun.
Skráning á tölvunámskeið sem byrjar
14. janúar. Skráning í ljóða- og hag-
yrðingahóp. Sími: 568 3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Gaman sam-
an á Korpúlfsstöðum á morgun mið-
vikudag kl. 13.30.
Laugardalshópurinn Blik, Laugar-
dalshöll | Leikfimi fyrir eldri borgara í
Laugardalshöll kl. 11.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16.30 opin vinnustofa,
kl. 10 boccia, kl. 13–16.30 postulíns-
málning, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30 handa-
vinna. Kl. 10.15–11.45 enska. Kl. 11.45–
12.45 hádegisverður. Kl. 13–16 postu-
línsmálun. Kl. 13–16 bútasaumur. Kl.
13–16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffi-
veitingar.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Smiðja
kl. 9, perlusaumur kl. 9, morgunstund
kl. 9.30, leikfimi kl. 10, handmennt al-
menn kl. 13, félagsvist kl. 14. Allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl.
9. Bæn, sálmur og ritningarlestur.
Fermingarfræðsla kl. 15: Hópur 1
(Oddeyrarskóli og 8.B Brekkuskóla).
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14.
Kaffi og spjall. Hádegisbæn kl. 12.
Boðið upp á léttan hádegisverð.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón-
usta kl. 18.30.
Bústaðakirkja | TTT – Töff, Töfrandi
og Taktfast – í Bústaðakirkju. TTT er
félagsskapur fyrir alla tíu til tólf ára
krakka sem langar til að eiga
skemmtilegan vetur saman. TTT-
fundirnir eru á þriðjudögum kl. 17 í
safnaðarheimilinu. Sjáumst hress.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu
Bústaðakirkju www.kirkja.is
Digraneskirkja | 10–12 ára starf
KFUM&K kl. 17–18.15. Húsið opnað kl.
16.30. www.digraneskirkja.is
Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstundir
kl. 12 í Fella- og Hólakirkju. Orgelleikur,
íhugun og bæn. Eftir stundina er
hægt að kaupa súpu og brauð á vægu
verði. Allir velkomnir. Opið hús eldri
borgara hefst þriðjudaginn 10. janúar
kl. 13 Spilað og spjallað. Kaffiveitingar
í boði kirkjunnar. Allir velkomnir.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli, Ví-
dalínskirkju, á þriðjudögum kl. 13 til
16. Við púttum, spilum lomber, vist og
bridge. Röbbum saman og njótum
samfélags við hvert annað. Kaffi og
meðlæti kl. 14.30. Helgistund í kirkj-
unni kl. 16. Akstur fyrir þá sem vilja,
upplýsingar í síma 895 0169.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 13.30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveit-
ingar og alltaf eitthvað gott með
kaffinu. Æskulýðsfélag í Rimaskóla kl.
20–22, fyrir unglinga í 8. bekk. Æsku-
lýðsfélag í Grafarvogskirkju kl. 20–22,
fyrir unglinga í 9. og 10. bekk.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta þriðjudaga kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum. Starf með öldruðum
þriðjudaga og föstudaga kl. 11–14.
Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Kl. 11 fyrirbænastund í kirkjunni. Súpa
kl. 12. Brids kl. 13. Kaffi kl. 15. Allir vel-
komnir.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund
í Hjallakirkju kl. 18. Prédikunarklúbbur
presta er kl. 9.15–11, í umsjá sr. Sigur-
jóns Árna Eyjólfssonar héraðsprests.
KFUM og KFUK | Fyrsti fundur árs-
ins þriðjudaginn 10. jan. kl. 20 á Holta-
vegi. Kaffihús KFUK. Konur eiga nota-
lega stund yfir kaffi og meðlæti. Allar
konur eru velkomnar.
Laugarneskirkja | Kvöldsöngur í
kirkjunni 10. jan. kl. 20. Þorvaldur
Halldórsson og Gunnar Gunnarsson
leiða söng. Bjarni Karlsson flytur hug-
vekju og bæn. Kl. 20.30 er kaffispjall í
safnaðarheimilinu áður en sjálfshjálp-
arhópur um sorg tekur til starfa í
umsjá Dagnýjar Leifsdóttur og Guð-
rúnar K. Þórsdóttur djákna.
Fyrstu fundir eru fyrirhugaðir sem hér segir:
kl. 20.00.
kl. 20.00.
kl. 20.00.
kl. 10.30.
kl. 20.00.
kl. 20.00.
kl. 20.00.
kl. 10.30.
kl. 20.00.
kl. 20.00.
kl. 10.30.
kl. 13.30.
í Vestmannaeyjum
í Reykjanesbæ
á Akranesi
á Akureyri
á Sauðárkróki
á Selfossi
á Húsavík
á Ísafirði
í Stykkishólmi
á Höfn
á Egilsstöðum
í Fjarðabyggð
10. janúar
11. janúar
12. janúar
21. janúar
24. janúar
26. janúar
2. febrúar
4. febrúar
6. febrúar
8. febrúar
18. febrúar
18. febrúar
Þriðjudaginn
Miðvikudaginn
Fimmtudaginn
Laugardaginn
Þriðjudaginn
Fimmtudaginn
Fimmtudaginn
Laugardaginn
Mánudaginn
Miðvikudaginn
Laugardaginn
Laugardaginn
Fundarstaðir verða auglýstir í fundarboði á hverjum stað.
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde utanríkisráðherra,
mun á næstu mánuðum fara um landið og efna til funda með
trúnaðarmönnum flokksins, formönnum og stjórnarmönnum
flokksfélaga, fulltrúaráða og kjördæmisráða, sveitarstjórnar-
mönnum og þingmönnum.
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík
sími 515 1700 www.xd.is
Formaður
Sjálfstæðisflokksins
á ferð um landið