Morgunblaðið - 29.05.2006, Síða 62
62 F MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FURUVELLIR - HAFNARFIRÐI
Gullfallegt og vandað 211 fm einbýli á einni
hæð á góðum stað. Fjögur svefnherb. Húsið
er nánast fullbúið að utan sem innan með
stórum pöllum, potti, útisturtu o.fl. SÉRLEGA
VÖNDUÐ LÚXUSEIGN. Verð 49,6 millj. 5474
ERLUÁS - FALLEGT EINBÝLI - ÁS-
LAND Í HAFNARFIRÐI
234 fm einbýlishús á þremur pöllum, þar af er
51 fm bílskúr. Þrjú rúmgóð herbergi, hátt til
lofts, fjarstýrð halógenlýsing, FRÁBÆRT ÚT-
SÝNI, skemmtileg arkitektahönnun á húsinu.
Verð 54,9 millj. 3299
STEKKJARKINN - FRÁBÆR STAÐ-
SETNING Gott og vel viðhaldið 162 fm
EINBÝLI; kjallari, hæð og ris, ásamt 25 fm
BÍLSKÚR á rólegum og góðum stað innst í
Kinnunum, samtals 187 fm. 5-6 svefnher-
bergi. Stór suðurlóð. Sérlega fallegt útsýni.
Verð 36,0 millj. 5096
FURUVELLIR - NÝTT OG GLÆSILEGT-
Nýtt, SÉRLEGA fallegt nánast fullbúið 177 fm
EINBÝLI á einni hæð, ásamt 57 fm tvöföldum
BÍLSKÚR, samtals 234 fm. Vandaðar og fal-
legar innréttingar. Fjögur svefnherbergi, fata-
herbergi inn af hjónaherbergi. Upptekin loft í
stofu, eldhúsi og sjónvarpsholi með halogen-
lýsingu. Litað gler sandblásið að hluta. Lóð er
grófjöfnuð. Verð 49,9 millj. 5258
SUÐURVANGUR - GOTT HÚS - VEL
MEÐ FARIÐ Gott hús á tveimur hæðum.
Íbúðin er 218 fm og bílskúrinn 34 fm, samtals
252 fm. Sérlega góðar innréttingar og skápar,
viðarfjalir og flísar á gólfi. Falleg og skemmti-
leg lóð. Hellulagt bílaplan. Almennt er húsið í
góðu ástandi bæði að utan og innan. Verð
51,9 millj. 2737
BIRKIHVAMMUR - MIKIÐ ENDUR-
NÝJAÐ Á FRÁBÆRUM STAÐ. Mögu-
legar tvær íbúðir. Fallegt mikið endurnýjað
215,8 fm PARHÚS á þremur hæðum á FRÁ-
BÆRUM STAÐ INNST Í BOTNLANGA OG
JAÐRI BYGGÐAR SEM ER FRIÐLÝST
SVÆÐI. 7 svefnherb. Endurnýjað er allar inn-
réttingar, tæki í eldhúsi, öll gólfefni sem eru
gegnheilt bambusparket og náttúruflísar, allt á
baði, gler að mestu, þak nýlega viðgert og
málað. Verð 42,9 millj. LAUST STRAX. 5368
FÍFUVELLIR - FALLEGT RAÐHÚS
Nýlegt fallegt 184,5 fm raðhús á tveimur hæð-
um ásamt 25,2 fm innbyggðum bílskúr, sam-
tals 209,7 fm. Gólfhiti að hluta, flísar á gólfum.
Fallegar innréttingar. Möguleiki á allt að fjór-
um svefnherb. Flott eign, fullbúin eign nema
lóð. GÓÐ EIGN Á FALLEGUM STAÐ Í
HRAUNINU. Verð 41.5 millj. 4319
HJALLABRAUT - GOTT ENDARAÐ-
HÚS Falleg endaraðhús á einni hæð á góðum
stað í Hafnarfirði. Íbúðin er 134 fm og bílskúr
34 fm, samtals 168 fm. Góð eign með fjórum
herbergjum, sjónvarpshol o.fl. Parket og flísar
á gólfum. Verð 38,5 millj. 2957
MJÓSUND - MIKIÐ ENDURNÝJUÐ
Vorum að fá í sölu mikið endurnýjaða neðri
sérhæð í tvíbýli á þessum frábæra stað. Nýtt
eldhús, bað og gólfefni og hús nýmálað að ut-
an. Laus við kaupsamning og tilbúin til inn-
flutnings. Verð 23,9 millj. 5519
ÁLFHOLT - FALLEG HÆÐ Á GÓÐUM
STAÐ Falleg efri sérhæð í tveggja íbúða
húsi á góðum stað með útsýni út á fjörðinn.
Íbúðin er á tveimur hæðum með sérinngangi.
Parket, flísar og fallegar innréttingar. Halogen-
lýsing á efri hæð. Verð 32,5 millj. 5402
MÓABARÐ - GÓÐ STAÐSETNING
Falleg 119 fm miðhæð í þríbýli á þessum ró-
lega og góða stað. SÉRINNGANGUR. Parket
og flísar á gólfum. Sérlega rúmgóð íbúð. Góð-
ar svalir. Verð 23,7 millj. 5129
MIÐVANGUR - LAUS STRAX
Björt og góð 114 fm ENDAÍBÚÐ í góðu fjölbýli
og að auki eru 7 fm flísalagðar yfirbyggðar
svalir. Húsið er allt klætt að utan og mjög fal-
legt með yfirbyggðum svölum, góð sameign.
LAUS STRAX. Verð 22,9 millj. 5559
ARNARHRAUN - 4RA MEÐ BÍL-
SKÚR Fallega 119 fm íbúð á 2 hæð ásamt
25 fm bílskúr, samtals 144 fm í góðu fjölbýli
miðsvæðis í Hafnarfirði. Þrjú svefnherbergi,
rúmgóð íbúð, fallegt útsýni, búið að klæða
tvær áveðurshliðar. Verð 22,0 millj. 9623
VALLARBRAUT - ENDAÍBÚÐ
NÝLEG OG BJÖRT 105,9 fm 4ra herb. END-
AÍBÚÐ á 2. hæð í góðu NÝLEGU fjölbýli á
góðum stað á Holtinu. Fallegar innréttingar.
Suðursvalir. Verð 21,9 millj. 2027
DAGGARVELLIR - LYFTUHÚS Vorum að
fá í einkasölu gullfallega íbúð á 3. hæð í lyftu-
húsi ásamt stæði í bílageymslu. Fallegt eikarp-
arket og flísar á gólfum. Hvíttuð eik í innrétting-
um. Þvottah. í íbúð. Verð 22,5 millj. 4796
HJALLABRAUT - BJÖRT OG FALLEG
96 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð í góðu klæddu
fjölbýli. Nýlegar innihurðir og innréttingar.
Suðursvalir. Stutt í skóla, leiksskóla og helstu
þjónustu. 9642
ESKIVELLIR 1 - TVÆR GLÆSILEG-
AR Vorum að fá í sölu tvær nýjar og glæsi-
legar 85 fm 3ja herb. íbúðir í fallegu LYFTU-
HÚSI. Önnur er á 1. hæð og hin á 5. hæð.
Báðar með fallegum eikarinnréttingum og
góðum tækjum. Verð á 1. hæðinni er 18,5
millj. og á 5. hæðinni 18,9 milli. LAUSAR TIL
AFHENDINGAR. 9638
GRETTISGATA 73 - REYKJAVÍK
Vorum að fá í einkasölu fallega hæð í góðu
húsi á þessum vinsæla stað. Íbúðin er á 1.
hæð (ekki jarðhæð). Nýlegt baðherbergi. Verð
16,9 millj. 5513
PERLUKÓR - KÓPAVOGI Glæsileg 99 fm
3ja herb. íbúð á jarðhæð nýju fjölbýli. SÉR-
INNGANGUR OG SUÐURVERÖND. Íbúðin er
fullbúin en án gólfefna nema á þvottahúsi og
baðherbergi verða flísar. Afhending í ágúst.
FRÁBÆR STAÐSETNING - ÚTSÝNI YFIR
ELLIÐAVATN - STUTT Í NÁTTÚRUPERLUR
EINS OG HEIÐMÖRK OG VÍFILSTAÐAVATN.
Verð 24,9 millj. 5562
HÁHOLT - FALLEG MEÐ STÆÐI Í
BÍLAGEYMSLU Falleg og björt 76 fm 2ja
herbergja íbúð á 2. hæð, ásamt merktu BÍLA-
STÆÐI í bílageymslu í góðu LYFTUHÚSI á
góðum ÚTSÝNISSTAÐ á HOLTINU. Parket og
flísar. YFIRBYGGÐAR SVALIR. 9637
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
STRANDGATA - GAMLA HÚSNÆÐI ÍSLANDSPÓSTS
Höfum fengið í sölu 301 fm
atvinnuhúsnæði á götuhæð
í Strandgötu í þessu vel
þekkta húsi í hjarta Hafnar-
fjarðar. Jarðhæðin er með
góðri lofthæð og áberandi
verslunargluggum út á
Strandgötu. Um er að ræða
fyrrum höfuðstöðvar Ís-
landspóst. Eignin hentar vel undir ýmis konar starfsemi. Eignin er
laus frá 1. sept 2006. Óskað er eftir tilboðum í eignina. 5838
Nánari upplýsingar veita Óskar og Sverrir.
Þ
að þýðir ekki að missa
móðinn þó hitastigið sé
rétt um 0°C morgun eftir
morgun. Vissulega er það
óþolandi þegar komið er
fram til loka maímánaðar og aðeins
mánuður til Jónsmessu þegar sólar-
gangur er hæstur. Það liggur við að
hægt sé að hugsa hlýlega til kola-
mistursins frá Póllandi sem lagðist
hér yfir fyrir skömmu, það var þó
sæmilega hlýtt á meðan það varði.
En burtséð frá gróðri og blómum,
sem baráttan stendur um í kuldakast-
inu, má búast við
að margir hyggi á
framkvæmdir ut-
anhúss.
Ekki ólíklegt að
ofarlega á þeim
lista séu hellu-
lagnir á gangstétt-
ir og heimreiðar.
Þá kemur auðvit-
að sú spurning
hvort ekki eigi að
leggja snjó-
bræðslurör undir hellurnar. Í þessum
pistlum hefur oftar en einu sinni verið
fjallað um snjóbræðslukerfi, gefin ráð
og leiðbeiningar um hvernig standa
skuli að verki til að góður árangur
náist án þess að sóa peningum að
óþörfu. En það eru alltaf nýir húseig-
endur að bætast í hópinn, þeir hafa
eðlilega ekki verið að soga að sér
tæknilegar upplýsingar um snjó-
bræðslukerfi, áhuginn á því vaknar
ekki fyrr en til alvörunnar kemur.
Þess vegna skulum við fara skref
fyrir skref yfir það hvaða ákvarðanir
þarf að taka og hvernig staðið skal að
verki. Vissulega orkar allt tvímælis í
þessu sem öðru en sá sem hefur þrjá-
tíu ára reynslu í snjóbræðslulögnum
segir aðeins það sem reynsla og þróun
hefur kennt honum.
Þessi pistill og það sem þar kemur
fram er miðað við þig sem átt einbýlis-
eða raðhús, þó geta vonandi miklu
fleiri haft gagn af.
Fyrsta spurningin er auðvitað sú
hvort leggja eigi snjóbræðslulögn eða
ekki. Því er til að svara að á hitaveitu-
svæðum hefur enginn fundist sem
hefur séð eftir því að hafa gert það, en
hinsvegar þó nokkrir súrir yfir að hafa
sleppt tækifærinu.
Niðurstaðan er; já, rétt að leggja
snjóbræðslukerfi.
En í hvað stórt svæði? Það er ekki
hægt að gefa nein fyrirmæli um það.
Algeng stærð svæðis með snjó-
bræðslukerfi við einbýlishús er svona
um 50 fm. En það eru til kerfi sem eru
miklu stærri og þá þarf húseigandi að
gera sér ljóst að hann þarf nokkru til
að kosta til að hita svæðið.
Afrennslisvatn frá húsinu nægir
kannski ekki nema í 20 fm. En að
leggja í stærra svæði og bæta við
beinu rennsli er engin goðgá.
Hvaða snjóbræðslurör á að velja?
Líklega hafa flestir séð stór snjó-
bræðslukerfi lögð úr gráum plaströr-
um. Þetta snjóbræðslurör eru uppá-
hald verkfræðinga og hönnuða. Þó
hafa þeir aldrei getað fært fram nein
rök fyrir vali þessara röra. Þessi gráu
rör eru úr plastefninu polypropylen,
sem er úrvalsefni til þeirra nota þar
sem það hæfir. En til snjóbræðslu-
lagna eru þau engan veginn heppileg,
mjög stíf og þau má vart hreyfa þegar
útihitastig er komið niður fyrir frost-
mark.
Heppilegustu snjóbræðslurörin eru
rör úr polyetylen plasti, þau nefnast
PEM, eru svört á lit, íslensk fram-
leiðsla, ódýr gæðarör, sveigjanleg og
þægilegt að leggja, má vinna við utan-
húss niður í -40°C frost! Hversvegna
eru þá verkfræðingar svona hrifnir af
gráu rörunum? Auðvitað eiga þeir að
svara því.
Á hvaða dýpi eiga rörin að vera?
Höldum okkur við að þau liggi í sandi
undir hellum, sem er algengasta slit-
lag á gangstéttum og heimreiðum.
Þarna er tvennt mjög mikilvægt; að
dýpið sé rétt og umfram allt jafnt.
Heildarmassi ofan á rörum á að
vera sem næst 80 mm eða 8 cm sem að
sjálfsögðu er það sama, athugið að
þarna er átt við allt sem ofan á rörin
kemur, frá röri upp á efri brún hellu.
En hvernig á að ganga frá svæðinu
undir rör, áður en þau eru lögð? Um-
fram allt að nota „stabílt“ efni undir
rörin, efni sem tekur þjöppun en verð-
ur samt svo slétt að það skaðar ekki
rörin.
Munið; aldrei að setja lausan sand
undir rörin, þá geta þau orðið á mis-
munandi dýpi og þá verður bræðslan
á yfirborðinu ójöfn.
Undirlagið undir rörin er einhver
mikilvægasti hlekkur þessa verks.
Það verður að þjappa vel, í réttri
hæð, má hvergi vera gróft.
Hve langar mega slöngur vera?
Þarna er erfið spurning, en við ein-
býlishús má segja að í 50 fm svæði
væri lögð ein slanga 200 m löng, en í
100 fm svæði tvær slöngur jafnlangar.
En þá inn fyrir vegg, þá kemur
stóra spurningin, á að nota varma-
skipti eða ekki? Höfum það fyrir reglu
að nota aldrei varmaskipta nema fyrir
liggi óyggjandi rök fyrir að svo verði
að vera. Þau rök er sjaldnast hægt að
finna og það eru til fjölmörg snjó-
bræðslukerfi án varmaskiptis, yfir 30
ára gömul, sem hafa gengið eins og
klukka án nokkurra vandræða. Það
væri fróðlegt ef hægt væri að benda á
jafngömul snjóbræðslukerfi með
varmaskipti sem gengið hafa án trufl-
ana svo lengi.
Hversvegna þá þessi mikli áróður
fyrir varmaskiptum? Eflaust fær hús-
eigandi oft þá ráðleggingu ef hann
kemur í lagnaverslun að hann verði að
hafa varmaskipti og frostlög á snjó-
bræðslukerfi. Síðan er honum selt
„únít“ sem menn kalla svo með
varmaskipti, dælu, stjórnlokum og
öllu saman, svaka flott græja, kúnninn
borgar fyrir þetta á annað hundrað
þúsund krónur, flott sölumennska.
Ef menn vilja henda slíkum fjár-
hæðum út um gluggann þá er hver og
einn frjáls að því.
En þetta er sölumennska, ekki
tæknileg ráðgjöf.
En hvað þá um tröppur, má steypa
snjóbræðslurör beint inn í steypuna?
Nei, það á aldrei að gera. Einn sérvitr-
ingur tók upp á því að draga rörin í
barka og steypa þau síðan inn, sérvitr-
ingunum hefur fjölgað sem betur fer.
Ef notuð eru 25 mm PEM-snjó-
bræðslurör, dregin í 35 mm barka og
það síðan lagt í steypuna verður
hvorki skaði á rörum né tröppum þó í
rörunum frjósi, sem er óþarfi að láta
gerast. Og það merkilega gerist að við
þessa útfærslu verður bræðslan í
tröppunum skarpari og betri en ef
rörin er lögð beint inn í steypuna.
Og tengingin innan húss verður ein-
föld; afrennsli af hitakerfi rennur
beint út í snjóbræðslukerfið, hita-
stýrður loki, sem vinnur eftir hitastigi
vatnsins þegar það kemur til baka,
bætir við eftir því hvernig hann er
stilltur. Gæta þarf þess að hafa
magnstillingu á beina rennslinu svo
ekki geti runnið allt of mikið heitt vatn
út á kerfið.
En það er margs að gæta og örugg-
ast er að fá kunnáttumann eða menn
til að skoða hvert einstakt verkefni og
vinna það, það er margt fleira sem
þarf að vara sig á, það er auðvelt að
misstíga sig í þessu eins og í flestri
lagnavinnu.
Er snjóbræðsla á
dagskrá hjá þér?
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is
Sigurður Grétar
Guðmundsson
Snjóbræðslulögn í gamlar tröppur, snjóbræðslurörin dregin í barka.