Morgunblaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 14
14|Morgunblaðið Fullk omin aðstaða fyrir börn og mömm ur. ÁTTU VON Á BARNI? Við í Hreyfilandi bjóðum upp Meðgöngujóga og Bumbufimi® 2 FYRIR 1 ERTU MEÐ NÝFÆTT BARN og vilt koma þér í fyrra form á heilsusamlegan hátt? MÆÐRAFIMI® 3X Í VIKU! Börn, unglingar og hreyfing Skemmtilegur félagsskapur Sumir spámenn og sumar spákonur eru þess oft fullviss að heimurinn fari versnandi en er það svo? Í flestum byggðarlögum landsins blómstrar öflugt starf íþrótta- og ungmennafélaga. Þar sprikla börn og unglingar, sparka, synda, skoppa, skjóta og stökkva og skíða svo fátt eitt sé nefnt. Þetta eru börnin sem hafa gaman af því að hreyfa sig, hafa unun af íþrótt sinni og leggja oft mikið á sig til þess að stunda hana. Sýnum þeim virðingu, athygli og áhuga, hvetjum þau áfram og hrósum þeim fyrir persónulega sigra. Þannig sýnum við þeim að hreyfing er lífsstíll sem vert er að stunda, eins og þau reyndar eru mörg búin að uppgötva. Mikill keppnismaður Sunneva byrjaði að æfa áttaára en hún stóð sig vel ískólasundi og var beðin umað koma að æfa hjá Ægi. Þegar fram liðu stundir og vel gekk æfði hún tvisvar á dag, eldsnemma á morgnana og svo aftur á kvöldin. „Jú, það var svolítið erfitt að vakna til þess að fara á morgunæfingarnar en félagslífið var og er frábært og keppnirnar. Ég hef eignast fullt af vinum í gegnum sundið, öðlast sjálfs- aga og hraustan líkama. Núna er ég hins vegar hætt að vera á fullu í sundinu en æfi þrisvar í viku tvo tíma í senn með Demantahópnum. Það er hópur fyrrverandi sundfólks sem vill halda sér í þjálfun og ekki síst í félagsskapnum. -Hugsarðu mikið um heilsuna? „Já, ég geri það. Ég reyni að borða hollan mat á hverjum degi og mér þykja ávextir og grænmeti mjög góðir en borða samt of mikið af skyndimat.“ Æðislegur félagsskapur Sandra hóf æfingar þegar hún var að verða tíu ára gömul „Mamma og vinkona hennar stungu upp á því og ég sló til og fannst sundið skemmti- legt. Það halda margir að sund sé mjög einhæf íþrótt, að maður sé bara endalaust að synda fram og til baka en svo er alls ekki. Þetta eru mjög fjölbreyttar æfingar sem geta verið mjög skemmtilegar, enda tald- ar mjög góð hreyfing. Svo er fé- lagsskapurinn æðislegur.“ Sandra æfði 6–9 sinnum í viku með sunddeild Fjölnis þegar mest var. „Það var oft mjög erfitt að vakna á morgnana en sundið hefur gefið mér svo margt. Góð þjálfun, góðir vinir og sjálfsagi er þar efst á blaði.“ - Hugsarðu mikið um heilsuna? „Ég reyni en það gengur nú misvel. Ég syndi núna mér til skemmtunar með Demantahópnum, enda finnst mér nauðsynlegt að hreyfa mig. Ég reyni líka að hugsa um mataræðið en það er ekki alltaf auðvelt, sér- staklega ekki ef vinirnir eru að gæða sér á skyndibita. Ég læt þá oft freistast. Mér finnast samt ávextir mjög góðir og borða mikið af þeim.“ Synda með Demöntunum Vinkonurnar Sandra Tryggvadóttir og Sunneva Ólafsdóttir höfðu æft og keppt í sundi í mörg ár en synda nú sér til skemmtunar með Demanta- hópnum þrisvar í viku. Morgunblaðið/Sverrir Agaðar Sandra og Sunneva segja að í sundinu hafi þær þurft að temja sér sjálfsaga sem hafi reynst þeim vel í lífinu. Eygló Hildur Hafliða-dóttir hefur lærtþrist, araba og svan ílistdansi á þeim tæpu tveimur árum sem hún hefur stundað listdans með íþróttafélaginu Birninum í Eg- ilshöll. Allt eru þetta heiti á ákveðnum sporum en auk þess tekur hún glæsileg stökk og snúninga á svellinu. „Ég hafði aldrei farið á skauta þegar ég byrjaði að æfa og kunni því ekk- ert. Þorgerður frænka mín var að æfa og þess vegna langaði mig að prófa. Ég datt auðvitað á fyrstu æfingunum en gat mjög fljótlega rennt mér á skautunum og er alltaf að læra meira og meira. Mér finnst þetta mjög gaman. Eygló fylgdist vel með list- dansi á skautum á vetrarólymp- íuleikunum síðustu. „Ég horfi líka oft á Eurosport. Hún segir tvö önnur skautafélög vera á landinu, Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar og stundum keppi þau sín á milli en svo séu líka innanfélagskeppnir hjá Birninum og allir sem taka þátt fá medalíur. „Ég hef einu sinni unnið fyrstu verðlaun í mín- um flokki og aldurshópi. Það var líka mjög skemmtilegt. Stundum eru foreldradagar og þá mega mömmur, pabbar og systkini koma með á skauta.“ Eru efnilegir listskautahlauparar í þinni fjölskyldu? „Ég veit það ekki, ekki kannski listskautahlauparar en þau eru ágæt á skautum,“ segir skautadrottningin brosandi og skautar út á svellið. Glæsileg á svellinu Svellköld Eygló Hildur lét það ekki á sig fá þótt hún dytti í fyrstu skiptin á svellinu og nú skautar hún eins og drottning. Morgunblaðið/Eyþór Ég hlakka alltaf til á haustin að byrja að æfa,“ segir JakobSteinn Stefánsson handboltakappi. Hann hefur æfthandbolta með Fjölni í tæp sex ár og spilar með 5.flokki. „Ég og vinur minn vorum búnir að prófa nokkr- ar íþróttir eins og tennis, körfubolta og fótbolta áður en við byrj- uðum í handbolta sem okkur fannst virkilega skemmtilegur.“ Jak- ob spilar á miðjunni og stjórnar því spilinu. „Mér finnst æfingarnar skemmtilegar, félagsskapurinn og keppnirnar. Ég er mikill keppnismaður.“ Hann fylgist líka vel með handboltanum en hans hetjur þar eru Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðs- son. Morgunblaðið/RAX Skotfastur Jakob Steinn hefur æft handbolta í tæp sex ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.