Morgunblaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 17
Morgunblaðið |17 Bakleikfimi í vatni Skráning fer fram í síma 897-2896 Vefsíða: www.bakleikfimi.is • Netfang: harpahe@hi.is Betri líðan í hálsi, herðum og baki. Skemmtileg og árangursrík þjálfun undir leiðsögn sjúkraþjálfara. Sjúkraþjálfarar: Harpa Helgadóttir sjúkraþjálfari MTc, MHSc, Ólöf I. Óladóttir og Gunnur Róbertsdóttir. Rólegir- og kröftugir hópar, í hádeginu og eftirmiðdaga í nýlegri og bjartri sundlaug við Laugarás. Rapunzel hefur byggt upp starfsemi í Tyrklandi þar sem þeir hafa kennt bænd- um lífræna ræktun. Þeir versla beint við 450 bændur sem framleiða lífrænt rækt- aðar vörur og tryggja þeim góða af- komu með því að borga þeim sanngjarnt verð fyrir vörurnar. Þar eru m.a. fram- leiddir þurrkaðir ávextir, hnetur, baunir o.fl. Þurrkuðu ávextirnir eru sólþurrkaðir og ekki meðhöndlaðir með brennisteini. Hágæða Rapunzel matarolíur Olíurnar frá Rapunzel eru allar unnar á sérlega mildan hátt án allra kemiskra hjálparefna og eru allar úr lífrænt ræktuðum afurðum og kaldpressaðar. Vitað er hversu mikilvægt það er fyrir heilsuna að taka inn góðar olíur til að fá hinar mikilvægu omega 3-6 og 9 fitusýrur. Omega 3 og 6 eru í ríkum mæli í hörfræolíu og omega 9 er í ólívuolíu. Margar fleiri tegundir af matarolíum eru fáanlegar frá Rapunzel. Fæst í heilsubúðum og helstu matvöruverslunum• Dreifing: Yggdrasill, Suðurhrauni 12b Múslí sem gefur orku sem endist lengur Rapunzel býður upp á margar tegundir af morgunkorni. Orginal múslí er með þurrkuðum ávöxtum og heilum heslihnetum. Ávaxtamúslí er með 40% af þurrkuðum ávöxtum. Morgunkorn sem inniheldur alla hluta kornsins er bæði mjög mettandi og næringarríkt og gefur orku sem endist lengi. Pasta í miklu úrvali frá Rapunzel Bæði er til ljóst og dökkt pasta. Dökkt pasta er unnið úr heilu korni, sem gerir það mjög trefjaríkt og auðugt af næring- arefnum. Speltpastað er sér- lega ljúffengt og bragðmilt. Tyrklandsverkefni Rapunzel Lífrænt ræktaðar vörur frá 1974 HAND IN HAND – ORGANIC & FAIR TRADE er á öllum vörum Rapunzel sem framleiddar eru fyrir þá í þriðja heiminum. Þetta eru ýmsar vörur eins og kókosflögur, quinoa korn, kaffi, kakó, hrásykur, súkkulaði o.fl. Þessar vörur koma frá ýmsum löndum og gilda strangar reglur varð- andi ræktunina, aðstöðu og afkomu starfsfólks. Meðal annars er ekki leyft að nota börn í vinnu, heldur lögð áhersla á að þau fái skólagöngu. • Frumkvöðlar í framleiðslu á lífrænt ræktuðum vörum • Frumkvöðlar í sanngirnisviðskiptum „fair trade“ • Eitt elsta og virtasta fyrirtæki með lífrænt ræktaðar vörur Keyra frá Akranesi í Curves- leikfimi Mæðgurnar Sigrún Jóhannsdóttir og Guðrún Magnúsdóttir eru ekki útkeyrðar eftir leikfimina heldur endurnærðar. ,,Nei, nei, við erum ekkert út- keyrðar,“ segir Guðrún Magn- úsdóttir og brosir. ,,Þetta er nú ekki svo langt, í Bæjarlindinni í Kópavogi. Við endurnærumst líka eftir leikfimina. Við erum búnar að prófa ýmsa en uppgötvuðum Curves-leikfimina í vor og urðum samstundis háðar. Mamma er slæm í baki og liðum og það er ég líka, svo að mikil hopp eða lyft- ingar með lóðum henta okkur ekki. Í Curves-æfingahringnum eru sérhönnuð tæki ætluð fyrir konur. Það tekur um hálftíma að fara þrjá hringi sem er lágmarkið til þess að æfingarnar skili ár- angri. Það er líka alltaf þjálfari til staðar til þess að leiðbeina, sem er mjög þægilegt en hins vegar er maður ekki bundinn við ákveðna stundatöflu.“ Þær mæðgur hrifust svo af lík- amsræktinni að þær hafa fengið eigendur Curves til þess að opna útibú á Akranesi. ,,Hér og í ná- grenninu er fullt af konum sem finnst kærkomið að geta valið um fleiri kosti í líkamsræktinni. Það verða bara allar Skagakonur komnar í gott form fyrir jólin.“ Morgunblaðið/Ásdís Endurnærðar Sigrún Jóhannsdóttir og Guðrún Magnúsdóttir eru hressar eftir leikfimina. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.