Morgunblaðið - 10.02.2007, Side 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 41. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Austan 3–8 m/s
en 10 til 15 við
suðurströndina.
Él eða skúrir suð-
austantil en annars víða
bjart. » 8
Heitast Kaldast
1°C -10°C
Á ANNAN tug íslenskra presta verða gest-
ir Eggerts Magnússonar á Uptown Park í
Lundúnum er West Ham mætir Watford í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnunni í
dag. Eggert verður hins vegar fjarri góðu
gamni er hann leiðir ársþing Knattspyrnu-
sambands Íslands sem forseti þess í síðasta
sinn í Reykjavík í dag.
Boðið til íslensku prestanna er þannig til
komið að Sigurður Árni Þórðarson, prestur
í Neskirkju, sneri sér til Eggerts og spurði
hvort hann gæti útvegað nokkrum prestum
miða á leik með West Ham. Það var auðsótt
mál og hafði Eggert á orði að liðinu veitti
ekki af andlegum stuðningi.
„Ég veit ekki til hvaða ráða á að grípa ef
þessi handleiðsla dugar ekki,“ sagði Eggert
í gærkvöldi. West Ham hefur átt á brattan
að sækja í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
West Ham
fær andlegan
stuðning
Reuters
Barátta Marlon Harewood (t.v.), leik-
maður West Ham, í leik nýverið.
EINS OG umfjöllun Morgunblaðsins und-
anfarinn hálfan mánuð hefur varpað ljósi
á er goðsögnin um hreina íslenska höf-
uðborg á margan hátt barn síns tíma.
Loftmengun og svifryk eru enn aukaatriði
í borgarskipulaginu, ef marka má svör
þriggja sérfræðinga sem blaðið ræddi við
fyrir helgi. Þrír læknar sem rætt var við
telja þörf á hugarfarsbreytingu, taka
verði tillit til loftmengunar við staðsetn-
ingu elliheimila, sjúkrastofnana og skóla.
Magdalena Ásgeirsdóttir, yfirlæknir
lungnaendurhæfingar á Reykjalundi, er í
þessum hópi, en hún gagnrýnir fyrirhug-
aðan Helgafellsveg á þeirri forsendu að-
hann raski þeirri sérstöðu stofnunarinnar
að vera staðsett fjarri umferðaræðum.
Sigurður Þór Sigurðarson lungnalæknir
tekur undir þetta sjónarmið, en hann og
kollegi hans, Davíð Gíslason ofnæm-
islæknir, eru jafnframt þeirrar hyggju að
grípa þurfi til mótvægisaðgerða eigi fyr-
irhugað hátæknisjúkrahús að rísa í Vatns-
mýrinni í nágrenni flugvallar og fjölfar-
inna umferðaræða. | 12
Ekki gætt að
loftmenguninni
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„ÞAÐ sem vélmennið hefur
fram að færa er að það er með
eins og örsmáar hendur inni í
kviðarholinu. Þannig að þetta
virkar eins og framlenging á
fingrum skurðlæknisins, djúpt
inni í líkama sjúklingins.“
Þannig lýsir þvagfæra-
skurðlæknirinn Rafn Hilm-
arsson nýrri tækni sem beitt
er á háskólasjúkrahúsinu í
Lundi við skurðaðgerðir. Vél-
menni, kennt við snillinginn
Leonardo Da Vinci, fer inn í
kviðarhol sjúklinga og sker
þaðan mein með mikilli ná-
kvæmni. Vélmenninu er stýrt
af skurðlækni og tæknilega
séð þyrfti læknirinn aldrei að
leggja hendur á sjúklinginn
því hann gefur vélmenninu
skipanir frá stjórnborði, sem
gæti allt eins verið staðsett í
öðru landi, jafnvel annarri
heimsálfu. Sú er reyndar ekki
raunin enn í dag í Lundi, þó
Svíar séu fremstir Evr-
ópuþjóða í notkun slíkra vél-
menna. Rafn stýrði vélmenn-
inu sjálfur í fyrsta sinn nú í
vikunni er hann fjarlægði
krabbamein úr blöðruháls-
kirtli.
„Í slíkri aðgerð er unnið
djúpt í þröngu rými og erfitt
að komast að krabbameininu.
Menn sáu að þetta var einmitt
lausnin, að gera slíkar aðgerð-
ir með róbót.“
Spurður um helstu kosti vél-
menna við skurðlækningar
segir Rafn: „Þetta býður upp á
mun nákvæmari aðgerðir.
Þetta er gert með svokallaðri
kviðsjártækni, gerð eru örlítil
göt á kviðinn og aðgerðin gerð
í gegnum þau í stað stórs
skurðar á kvið áður.“
Rafn telur að eitt vélmenni
kosti um 100–150 milljónir ís-
lenskra króna. Þá felst auk
þess kostnaður í því að þjálfa
upp starfsfólk. Til lengri tíma
litið gæti þetta þó sparað fjár-
muni því sjúklingurinn getur
farið heim daginn eftir t.d. að-
gerð á blöðruhálskirtli, en
þurfti áður að liggja í nokkra
daga á sjúkrahúsi. Þá eru
aukaverkanir minni því ná-
kvæmni vélmennisins er slík
að t.d. blæðingar verða litlar.
Rafn segist viss um það að vél-
mennin verði komin til Íslands
innan fárra ára. „Íslendingar
hafa aldrei verið lengi að grípa
nýjungar. En þetta er bara
eins og allt annað, þarf sinn
tíma til að þróast.“ | 4
„Örsmáar hendur inni í kviðarholinu“
Íslenskur skurðlæknir í Svíþjóð stýrir vélmenni við afar vandasamar og nákvæmar skurðaðgerðir
Vélmennið framkvæmir Skurðlæknirinn situr við stjórnborð
en vélmenni sker sjúklinginn af mikilli nákvæmni.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson,
formaður bankaráðs Landsbank-
ans, segir það hafa verið mikið
heillaspor fyrir íslenskt atvinnulíf
og samfélagið allt að losa um tök
stjórnmálamanna á fjármálafyrir-
tækjum landsins og fela þau í hend-
ur einstaklingum. Þetta kom fram í
ávarpi hans á aðalfundi bankans í
gær.
Sagði Björgólfur að sumir fögn-
uðu einstökum árangri bankanna en
aðrir tortryggðu og drægju í efa
ágæti einkavæðingarinnar og töluðu
um að bankarnir hefðu verið gefnir.
„Rétt er í þessu sambandi að minna
á að um tíma var reynt að finna er-
lenda kaupendur að íslensku bönk-
unum og var meðal annars leitað til
erlendra banka, en áhuginn var þar
ekki til staðar,“ sagði Björgólfur.
Ef danskur banki hefði keypt
Björgólfur varpaði því fram hvað
það hefði þýtt ef útlendir bankar
hefðu keypt þá íslensku. Hann bað
fundarmenn að ímynda sér að t.d.
danskur banki hefði keypt Lands-
bankann. „Hvað hefði það þýtt?“
spurði hann og hélt áfram: „Hefðu á
Íslandi ekki bara verið starfrækt fá-
ein útibú? Hefðu hálaunastörfin orð-
ið til á Íslandi? Hefði sá danski stutt
íslensk fyrirtæki í útrásinni, til
dæmis í Danmörku? Hefði hagnað-
urinn skilað sér í íslenskt hagkerfi?
Hefðu arðgreiðslur skilað sér til ís-
lenskra hluthafa? Og hefðu tugmillj-
arða skatttekjur af bönkunum og af
sérfræðistörfunum skilað sér til
uppbyggingar í íslensku samfélagi?
Ég bara spyr. Ég spyr þá sem
hæst hafa og gagnrýna mest vel-
gengni íslensku bankanna.“
Björgólfur sagði sitt svar við
þessum spurningum vera skýrt.
Einkavæðing bankanna hefði verið
mikið heillaspor. | 16
Einkavæðing bankanna
var mikið heillaspor
Í HNOTSKURN
»Björgólfur telur aðgagnrýnin á bankana
hafi að hluta verið réttmæt.
»Hann segir að vaxtamun-ur hér á landi hafi ekki
aukist heldur minnkað.
»Hann deilir áhyggjumfólks af háum vöxtum, en
segir ekki við bankana að
sakast. Meinið sé óstöð-
ugleiki og verðbólga sem all-
ir þurfi að sameinast um að
fjarlægja.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir formaður
Samfylkingarinnar var gestur á þorrablóti
eldri borgara í félagsmiðstöð þeirra á Vest-
urgötunni í gærkvöldi.
Talaði Ingibjörg fyrir minni karla við góðar
undirtektir en annar fyrrv. borgarstjóri, Þór-
ólfur Árnason, mælti fyrir minni kvenna.
„Það er alltaf gaman að koma á þorrablót
hjá eldri borgurum. Mér finnst þeir líka alltaf
verða unglegri og kannski vegna þess að bilið
er að styttast milli mín og þeirra,“ sagði Ingi-
björg Sólrún í samtali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ingibjörg Sólrún mælti fyrir minni karla