Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 15 FLÓÐBYLGJUVIÐVÖRUN í Indónesíu í kjölfar jarðskjálfta sem reið yfir vesturströnd eyjunnar Sú- mötru í gærmorgun var afturkölluð síðdegis. Jarðskjálftinn, sem mæld- ist 8,2 stig á Richter, fannst í að minnsta kosti fjórum löndum. Hann átti upptök sín á hafinu um 100 km frá borginni Bengkulu. AP Ótti Skrifstofufólk í Jakarta flýr út á götu í kjölfar jarðskjálftans. Harður skjálfti EKKI voru sendar út neinar fréttir á sjónvarpsrásum danska ríkis- útvarpsins, DR, í gær vegna dags- verkfalls fréttamanna en með að- gerðum sínum vilja þeir mótmæla uppsögnum. Fréttatími útvarpsins var styttri en venjulega og gerður af yfirmönnum. Engar fréttir EVRÓPUSAMBANDIÐ bannaði í gær að nýju innflutning á kjöti og búfénaði frá Bretlandi eftir að nýtt tilfelli af gin- og klaufaveiki var staðfest í sunnanverðu Englandi, skammt frá býlum þar sem veikin kom upp í sumar. Nýtt kjötbann Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur staðfest að ebola- veiran hefur komið upp í Kasai- héraði í Kongó. Að minnsta kosti 166 manns hafa dáið af völdum sjúkdómsins og 372 aðrir smitast. Ebola er bráðsmitandi og allt að 90% smitaðra deyja. Ebola í Kongó VLADÍMÍR Pút- ín, forseti Rúss- lands, leysti í gær forsætisráð- herra landsins frá störfum og skipaði lítt þekktan mann, Viktor Zúbkov, í embættið. Zúbkov er 65 ára, hefur verið yfirmaður fjár- málaeftirlits Rússlands og starfaði einnig með Pútín í stjórn Sankti Pétursborgar á síðasta áratug. Rússneskur stjórnmálaskýrandi, Júlía Latynína, sagði val Pútíns koma á óvart og benda til þess að forsetinn vildi bíða með að skýra frá því hvern hann styddi í forseta- kosningunum 2. mars. Val Pútíns kom á óvart Viktor Zúbkov SKRÚFUÞOTA flugfélagsins SAS af gerðinni Dash 8 Q-400 með 52 manns um borð brotlenti í Litháen í gær vegna bilunar í hjólabúnaði og er þetta í annað sinn á fjórum dögum sem vél af þessari gerð í eigu SAS lendir í slíku slysi. Engan sakaði í slysinu. Flugmaðurinn er sagður hafa slökkt á hreyflunum og látið farþega sem sátu nálægt vængjun- um færa sig svo að þeir yrðu ekki fyrir braki úr hreyflunum. Að sögn Aftenposten í Noregi rifnuðu þrír spaðar af í brotlendingunni. Félagið á 27 vélar af þessari gerð og gaf þegar skipun um að þær yrðu kyrrsettar í bili. Framleiðandi vél- anna, kanadíska fyrirtækið Bombar- dier, ákvað að mæla með því að allar vélar í heiminum með sams konar hjólabúnað og meira en 10.000 flug- tök að baki, alls um 60, yrðu kyrr- settar þar til búið væri að gera á þeim vandlega skoðun. Mælt með kyrrsetn- ingu um 60 Dash-véla Tvær Dash 8 Q400-skrúfuþotur í eigu flugfélagsins SAS hafa brotlent á aðeins fjórum dögum Hugsaðu umheilsuna! Svalandi, próteinríkur og fitulaus Frískandi, hollur og léttur drykkur í dós Gamla góða Óskajógúrtin – bara léttari Silkimjúkt, próteinríkt og fitulaust Fitusnauðar og mildar ab-vörur – dagleg neysla stuðlar að bættri heilsu og vellíðan Peysudagar fimmtudaga til sunnudags allar peysur með 20% afslætti sími 568 1626 www.stasia.is str. 36-56

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.