Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 41

Morgunblaðið - 13.09.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 41 TÓNLIST Geisladiskur Indigó – Indigó  INDIGÓ er lítil hljómsveit sem vinnur með litla hljóðpalettu og lítil lög: Ingó spilar á gítar og Vala á fiðlu. Ingó syngur flest lögin, Vala hjálpar stundum til og þau ræsa Lilju vinkonu sína út ef grípa þarf í horn. Ingó og Vala eru ekkert að stressa sig þó að lögin teygi sig ekki yfir tveggja mínútna markið og þeim finnst nóg að hafa nokkur tilbrigði við bláan á plötuumslaginu. Þegar Ingó syngur einfalda texta eins og „I want you back / Just one more time“ þá hljómar það eins og hann meini það – kaldhæðnis- og skilyrðislaust. Indigó er lítil hljómsveit sem hef- ur náð mjög góðum tökum á eigin fagurfræði. Lögin hverfast oft um eina hugmynd og þau láta sér nægja þau tól sem eru fyrir hendi og seilast aldrei langt yfir skammt. Þannig nær sveitin oft fram sterkum hug- hrifum án þess að þurfa að grípa til dramatíkur eða látaláta. Áherslan er öll á nánd og einlægni og það skilar sér á við hvaða epísku stórsveit- arútsetningu sem er. Indigó er lítil hljómsveit sem hef- ur gert litla en flotta plötu. Litla og fíngerða plötu sem er best að segja frá í sem fæstum orðum. Stundum er það bara nóg. Atli Bollason Lítil lög TVÍEYKIÐ The White Stripes hef- ur tilkynnt að öll- um átján hljóm- leikum sveitarinnar sem eftir eru af hljómleikaferð hennar í Bandaríkjunum verði aflýst. Ástæðan er heilsu- leysi Meg White, sem sögð er þjást af kvíðaköstum sem valdi því að hún geti ekki ferðast. Sveitin hefur verið á tónleikaferðalagi til að kynna hljómplötuna Icky Thump. Ekki hefur verið tilkynnt um nýja tónleika í Bandaríkjunum, en tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar um Bretlandseyjar, sem á að hefjast í Glasgow hinn 24. október, hefur ekki verið aflýst að svo stöddu. White Stripes Jack og Meg ætla ekki að halda tónleika á næstunni. White Stripes aflýsir tón- leikum Ásgarður 2 - Endaraðhús, aukaíbúð Opið hús í dag milli kl. 18 og 19 Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Mjög skemmtilegt 181,9 fm endaraðhús ásamt 23,4 fm bílskúr við húsið. Samt. 205,3 fm. Húsið skiptist í hæð, efri hæð og kjallara sem nú er innr. sem 2ja herb. aukaíbúð m/ sér inng. og er í útleigu. Komið er inn í forstofu m/gestasnyrtingu. Eldhús er rúmgott með góðum borðkrók. Tvær bjartar stofur m/svölum og stiga út í garð með nýlegum sólpalli, grasbletti og trjám. Parket og flísar á gólfum. Efri hæð; 3 svefnherbergi og bað- herb/þvottahús. Herb.gólf eru með parketdúk og parketi. Innang. er niður í kjallara. Bílskúr er við húsið m/gönguhurð út í garð. Verið er að endurn. rafmagn, nýl. skólp út í götu, gaflar einangr. og múraðir f. 2 árum. Skemmtileg eign með mikla möguleika í vinsælu hverfi. Verð 41,8 millj. Elín Úlfarsdóttir tekur vel á móti gestum í dag milli kl. 18 og 19 Fjallalind 38 - Endaraðhús Nýtt í sölu. Mjög fallegt og mikið endurnýjað 172,7 fm endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Parket og flísar á gólfum, Stofa og borðstofa eru mjög skemmtilegar með gólfsíðum gluggum. Gönguhurð út á verönd með skjólveggjum, fallegur garður. Stofa með mikilli lofthæð. Hellulagt plan og aðkoma með hitalögn. Verð 51,9 millj. Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Veittir eru styrkir til ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn til gagnkvæmra heimsókna á árunum 2007-2008. Tilgangurinn með þessu samstarfi er að virkja vísinda- og tæknisamstarf stofnana, skóla og rannsóknarhópa í báðum löndunum og auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu. Vísindamenn á öllum sviðum grunnrannsókna og hagnýtra rannsókna geta sótt um. Í ár er áhersla lögð á þátttöku doktorsnema og nýútskrifaðra doktora. Stofnunum sem eiga í samstarfi er gert að leggja inn umsókn, hverri um sig, til þeirra aðila sem hafa yfirumsjón í viðkomandi landi. Aðeins koma til greina umsóknir sem eru lagðar fram af báðum aðilum. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu RANNÍS, www.rannis.is. Umsjón með Jules Verne hjá RANNÍS hefur Elísabet M. Andrésdóttir, netfang: elisabet@rannis.is, sími 515 5813. Jules Verne er samstarfsverkefni Frakklands og Íslands á sviði vísinda- og tæknirannsókna. Menntamálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en RANNÍS sér um framkvæmd verkefnisins. Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • Bréfsími 552 9814 • www.rannis.is U M S Ó K N I R H N O T S K Ó G U R g r a fí s k h ö n n u n Vísinda- og tæknisamstarf Frakklands og Íslands Styrkir til samstarfsverkefna Styrkir til vísinda- og tæknisamstarfs íslenskra og franskra aðila á vegum Jules Verne samstarfssamnings eru nú lausir til umsóknar. ATH. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 15. október 2007 til samræmis við umsóknarfrestinn í Frakklandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.