Morgunblaðið - 16.09.2007, Blaðsíða 27
Fréttir
í tölvu-
pósti
hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 27
Við ökum
inn í vistvænni
framtíð
Eitt af markmiðum Orkuveitu Reykjavíkur er að taka tillit til umhverfismála í allri starfsemi
sinni og stuðla þannig að betra umhverfi. Til marks um það þá mun Orkuveita Reykjavíkur
stuðla að aukinni notkun vistvænna ökutækja og vinnuvéla í daglegu starfi sínu.
Á þessu ári eru 15% bílaflota OR vistvæn og árið 2013 verður hlutfallið komið upp í 55%. Í lok þessa árs mun OR nota 21 metanbíl,
4 tvinn-vetnisbíla,1 rafmagnsbíl og 1 vetnisbíl. OR varðar veginn inn í umhverfisvænni framtíð.
• Í allri starfsemi OR er gengið út frá umhverfismálum — Orkuvinnsla í sátt við umhverfið www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
3
90
39
0
9/
07
Síðasta þriðjudag var þessvíða minnst að þá voru sexár liðin frá einhverju mestaheigulsverki sem sögur fara
af, þegar nokkrir heilaskúraðir
ólánsmenn myrtu þúsundir manna
guði sínum og kúgandi kennivaldi til
dýrðar. Um leið og við stöldrum við
til að minnast sjálfs níðingsverksins í
New York árið 2001, er okkur hollt
að hafa það jafnframt í huga að þetta
var hvorki í fyrsta né síðasta sinn
sem slíkt ódæði er framið.
Víst er að margt hafa svonefndir
guðir manna þurft að þola af sjálf-
skipuðum fylgismönnum sínum og
fulltrúum á jarðskorpunni í gegnum
tíðina, en fátt jafn oft og jafn öm-
urlegt og vera skráðir ábekingar á
alls kyns ógnarverk og misþyrm-
ingar. Hér megum við Vest-
urlandabúar heldur ekki gleyma því
hvaða sögu okkar helsta trúar-
stofnun, kristin kirkja, á að baki.
Sá er nefnilega munur á guði og
mönnum í bæði kristnum og ísl-
ömskum sið að guð gerir ekkert sjálf-
ur nema helst kraftaverk, meðan
jarðneskir áhangendur hans fremja
hverja ódáðina eftir aðra í hans lof-
aða nafni og í skjóli eða skugga svo-
nefndrar dýrðar hans, sem á venju-
legu máli þýðir frægð eða ímynd og
lýtur sömu lögmálum.
En hvað getur einn vesæll og vel-
meinandi einstaklingur gert gagn-
vart mönnum sem kenna sig við al-
mætti og leggja á sig að tortíma eigin
mannúð og skynsemi, sjálfstæðri
hugsun og náttúrulegum tengslum
við foreldra og ástvini til að öðlast
þann trúarhita sem þarf til að deyða
og limlesta saklaust fólk.
Ekki kannski mjög margt. Annað
en að gæta þess að gleyma sér hvorki
í andstyggð sinni á gerendum og boð-
berum hins guðlega ófagnaðar, né í
værukærð gagnvart þeim og því al-
ræðisvaldi sem þeir þjóna. Enn ann-
að sem við getum gert er að muna að
ódæðin þurfa ekki að bitna á fjölda
fólks í senn til að verðskulda athygli
okkar og viðbrögð.
Hvar sem ofbeldi er beitt, andlegu
eða líkamlegu, til að kúga mann-
eskju, gerandanum og hugmyndum
hans til framdráttar, er alltaf ellefti
september. Þar sem íslamskar stúlk-
ur eru limlestar er ellefti september.
Þar sem kaþólskir kórdrengir eru
misnotaðir er ellefti september. Þar
sem ungmenni eru neydd í hjóna-
band, þar sem bara sumum er út-
hlutað blessun kirkjunnar sem þeir
tilheyra, þar sem talsmönnum óvin-
sælla skoðana er hótað af valda-
mönnum, þar er ellefti september.
Munum að í okkar litla, nýríka
glanspappírssamfélagi eru fórn-
arlömb ofbeldis og misnotkunar
Sveinbjörn I. Baldvinsson
Ellefti september alla daga
fjöldamörg, flest dulin
og hjúpuð áralangri
þögn, studd með-
virkni sem hefur
verið þróuð um ald-
ir. Það er of seint að
koma í veg fyrir þau
óhæfuverk sem þegar
hafa verið framin. En
verum vakandi fyrir
því hvort einhvers
staðar í kringum okk-
ur er ellefti sept-
ember, jafnvel bara í
einu herbergi.
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
Ýmislegt áhugavert fyrir safnara
Borðstofuhús ögn
Stakir skápar
smáauglýsingar
mbl.is