Morgunblaðið - 16.09.2007, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 71
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Íþáttunum er fjallað um afmark-aðar stefnur, afbrigði, senureða stíla sem hafa skotið uppkollinum í rokk- og dæg-
urtónlistarsögunni á undanförnum 100
árum,“ segir Kristinn Pálsson, um-
sjónarmaður Uppruna tegundanna
sem tekur upp þráðinn að nýju eftir
sumarfrí í kvöld. Þátturinn hóf göngu
sína í júní á síðasta ári og er önnur
þáttaröð því að hefjast í kvöld. Í þátt-
unum er fjallað mjög ítarlega um ein-
kenni, baksvið, uppruna, þróun og
áhrif hverrar tónlistarstefnu fyrir sig.
Ekki bara CCR
Aðspurður segist Kristinn ætla að
taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið. „Fyrsti þátturinn núna er
lauslega tengdur við tvo síðustu þætt-
ina í vor þar sem ég var að fjalla um
svona „swinging 60’s“ tónlist. Þætt-
irnir eru þannig að það er fjallað jöfn-
um höndum um það sem þykir merki-
legt, og líka það sem mörgum í dag
þykir ofsalega ómerkilegt. En maður
kemst oft að því það er líka stór-
merkilegt,“ segir Kristinn sem mun í
fyrstu þáttunum einbeita sér að tón-
list sjöunda áratugarins. „Hlustendur
eiga kannski eftir að komast að því að
sjöundi áratugurinn snýst um ým-
islegt fleira en að spila „Down On The
Corner“ með Creedence Clearwater
Revival aftur og aftur. Þetta tímabil
er svolítið erfitt að því leyti að það er
búið að blóðmjólka það svolítið mikið,
eins og til dæmis „týnda kynslóðin“
hefur gert. Í þeirri kategóríu hefur til
dæmis lítið heyrst af svartri soul-
tónlist, sem er náttúrulega stórkost-
leg, og ég tók fyrir í heilum átta þátt-
um í vetur,“ segir Kristinn, en á
meðal þeirra sem verða teknir fyrir í
vetur eru Bob Dylan og Rolling Sto-
nes, auk fjölda minna þekktra tónlist-
armanna. Þegar því sleppir ætlar
Kristinn svo smátt og smátt að mjaka
sér yfir á áttunda áratuginn.
Ekki í tímaröð
„Þetta er fyrst og fremst tónlist-
arþáttur, en maður reynir að fá hlust-
andann til þess að finna sig betur í
stemningunni á þessum tíma. Ég er
að fjalla um tónlistarstefnur, en fer
líka í ferla þessara frægustu,“ segir
Kristinn og bætir við að þættir hans
séu ekki í réttri tímaröð, þannig séð.
„Það er ekki hægt að fjalla um rokk-
söguna í réttri tímaröð, það væri ekki
nema maður tæki fyrir eitt ár í hverj-
um þætti, sem er bara önnur hug-
mynd,“ segir hann. „En tónlist-
arstefnurnar eru samt í tímaröð,
soulið var til dæmis frá ’55 til ’75 og
ég tek það þannig. Þegar ég tek blús-
inn byrja ég örugglega á millistríðs-
árunum og verð þar í smá stund, og
fer svo alveg yfir í blúsvakninguna á
sjöunda áratugnum.“
Síðastliðinn vetur fjallaði Kristinn
meðal annars um djass, sveitatónlist,
ryþmablús, frumrokk, rokkæðið,
Bítlabyltinguna, soul og sveiflupopp.
Á komandi vetri verður haldið áfram
að rekja garnirnar úr gjöfulli dæg-
urtónlistarsenunni á sjöunda ára-
tugnum með yfirferðum um ball-
öðusöngvara, alþýðutónlistar-
vakninguna, folkrokkið, bresku
blúsvakninguna, bílskúrsrokkið,
blómabyltinguna og hippsýruna. Þeg-
ar því sleppir verður haldið áfram inn
í áttunda áratuginn og meðal annars
fjallað um söngvaskáldakynslóðina,
sveitarokkið, proggrokkið, fönkið,
pönkið og diskóið, svo eitthvað sé
nefnt. „Tíðarandinn skín svo mikið í
gegnum tónlistina og hún er oft minn-
ingartenging, það er það sem er svo
skemmtilegt við hana,“ segir Kristinn
sem hefur lengi verið mikill tónlist-
argrúskari. „Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem ég er í útvarpinu, ég var á
Aðalstöðinni um miðjan tíunda ára-
tuginn, og svo var ég líka á Matthildi
og einhverjum svona kerlingastöðv-
um,“ segir hann. „En þetta er í fyrsta
skipti sem ég fæ alveg að stjórna því
hvað ég spila. Ég reyni líka að hafa
ákveðið skemmtanagildi í þáttunum,
og ég set þak á lengd kynninga. Fólk
heldur kannski að ég fari bara á Net-
ið, finni einhverjar upplýsingar og
segi frá þeim. Vissulega geri ég það,
en galdurinn er náttúrlega að kunna
að vinsa úr heimildunum og finna það
merkilega. Og ef ekkert safaríkt er til
hefur maður kynninguna bara stutta
og hnitmiðaða og leyfir laginu að
njóta sín. Ég reyni líka að hafa þetta
á mannamáli.“
Kallaður nörd
Kristinn viðurkennir að vissulega
geti hann litið út fyrir að vera svolítið
sérvitur þegar hann fjallar um mjög
afmarkaðar tónlistarstefnur. „Ég hef
oft verið kallaður nörd og mér finnst
það svolítið leiðinlegt, nema það sé í
tísku að vera nörd í dag,“ segir hann
og hlær. „En hugmyndin á bakvið
þættina er líka sú að fá fólk til þess að
standa upp úr sjónvarpssófanum og
kveikja á útvarpinu. Ég hef oft heyrt
að útvarpið sé deyjandi miðill en það
er náttúrlega bara kjaftæði. Útvarpið
hefur svo mikla möguleika sem hægt
er að nýta sér.“ Í fyrsta þættinum í
kvöld mun Kristinn taka fyrir það
sem hann kallar ballöðumeistara og
húsmæðrapoppara, en á meðal þeirra
sem koma fyrir í þeim þætti eru
meistarar á borð við Glen Campbell,
Bobby Darin, Tom Jones, Engilbert
Humperdinck, Ellý Vilhjálms og
Dusty Springfield.
Allt sem þú
vildir alltaf
vita um tónlist
Uppruni tegundanna að nýju á Rás 2
Rolling Stones Að mati Kristins höfðu Stones jafnvel meiri áhrif í tónlistarsögunni en sjálfir Bítlarnir.Bob Dylan Kemur við sögu. Tom Jones Söngvarinn geðþekki verður
tekinn fyrir í fyrsta þættinum.
Uppruni tegundanna er á dagskrá
Rásar 2 klukkan 22.10 í kvöld.
Creedence Clearwater Revival Að sögn Kristins snýst 7. áratugurinn um annað og meira en þá ágætu sveit.