Morgunblaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ingileif Stein-unn Þórarins-
dóttir fæddist á
Úlfsá á Ísafirði 8.
júní 1918. Hún lést
á Sólvangi 3. ágúst
síðastliðinn. Hún
var næst yngst 9
barna hjónanna
Þórarins Elíasar
Sigurðssonar
bónda og dag-
launamanns, f. 15.
maí 1877, d. 17.
des. 1946 og Her-
dísar Guðrúnar
Guðmundsdóttur, f. 10. júní
1881, d. 28. okt. 1975. Önnur
börn Herdísar og Þórarins voru
1) Þórey Sigrún, f. 25. sept.
1902, d. 21. apr. 1911, 2) Ólafía
Kornelía, f. 3. júlí 1904, d. 21.
feb. 1977, m. Sveinbjörn Hall-
dórsson, 3) Petrína, f. 7. júlí
1906, d. 11. sept. 1961, 4) Guð-
mundur Ágúst, f. 1. ág. 1908, d.
6. feb. 1966, 5) Sigrún Þórdís, f.
18. júlí 1912, d. 26. apríl 1988,
m. Sigurbjörn Eyjólfur Guð-
mundsson, 6) Guðbjörg, f. 16.
Guðni Þór, f. 22. okt. 1998 og
Tómas Freyr, f. 5. júní 2002. 2)
Herdís, f. 21. sept.1967, m. Hall-
grímur Þór Björnsson, f. 6. apr.
1962, börn Hreiðar Ingi, f. 30.
des. 1996, og Halldór Örn, f. 7.
apr. 2000. 3) Guðni, f. 8. sept.
1976, samb.k. Ólöf Jakobína
Ernudóttir, f. 4. maí 1969, börn
Erna Sóley Ásgrímsdóttir, f. 4.
maí 2000, Tómas Oddur, f. 7.
feb. 2007. B) Þórarinn, f. 17. ág.
1943, k. 21. des. 1968, Anna Ey-
mundsdóttir, f. 22. jan 1944,
börn: 1) Eyrún Björk Valsdóttir,
f. 5. mars 1967, m. Vignir Sig-
urðsson, f. 4. nóv. 1965, börn
Ragnheiður, f. 31. júlí 1990 og
Margrét, f. 5. júní 1997. 2) Inga
Sigrún, f. 30. nóv. 1969, samb.m.
Hreiðar Þór Björnsson, f. 27.
feb. 1968, sonur Hilmir, f. 20
jan. 2000. 3) Finnur Breki, f. 29.
júlí 1974, k. Hrefna Marín Gunn-
arsdóttir, f. 1. mars 1977, börn
Anna Sólrún 25. des. 2003,
Reynir Hugi, f. 28. júní 2007, d.
28. júní 2007 og Bjarki Freyr, f.
28. júní 2007. 4) Eymundur
Freyr, f. 12. maí 1976, samb.k.
Aðalheiður Konráðsdóttir, f. 27.
maí 1976, dóttir Arnhildur Lilja,
f. 3. nóv. 2006 5) Steinunn Þyri,
f. 1. mars 1984, samb.m. Einar
Ólafsson, f. 18. feb. 1981. Útför
Ingileifar fór fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju 11. ágúst.
apr. 1916, d. 29.
apr. 1983, 7) Pálína
Guðrún, f. 30. des.
1919, d. 29. apr.
1920, og 8) Pálína
Kristín, f. 6. okt.
1921, d. 14. des.
2004, m. Valgeir
Ólafsson. Þau Her-
dís og Þórarinn áttu
einnig fósturson,
Stefán Jónsson, f. 4.
júlí 1927, d. 19.
sept. 1995, k. Björk
Jónasdóttir.
Ingileif giftist 6.
des. 1941, Guðna Hreiðari Tóm-
assyni, f. 22. okt. 1920, d. 31.
des. 1943. Foreldrar hans voru
Tómas Guðnason, f. 30. maí
1887, d. 31. maí 1929 og Solveig
Gíslína Gísladóttir, f. 22. ág.
1895, d. 19. mars 1929. Þau
eignuðust tvo syni, þeir eru: A)
Tómas Gísli, f. 25. apr. 1942, k.
20. febr. 1965, Jónfríður Hall-
dórsdóttir, f. 18. feb. 1942, börn:
1) Margrét, f. 16. des. 1965, m.
Þór Egilsson, f. 4. maí 1964,
börn Þórdís Ylfa, f. 2. jan. 1994,
Á 13. afmælisdeginum sínum, þ. 8.
júní 1931, mun Inga hafa verið stödd
á Kirkjubóli í Bjarnardal, og þá orti
frændi hennar Guðmundur Ingi
Kristjánsson lítið ljóð til hennar:
Sjáðu nú, Inga frá Úlfsá,
með æskunnar bros á kinn:
indælt er vorið ekki
á afmælisdaginn þinn.
En kuldinn og krapið úti,
það kemst ekki hingað inn.
Hjá okkur er vor og æska
á afmælisdaginn þinn.
Veistu það, Inga frá Úlfsá?
Æskan er vinur minn.
Mér þykir vænt um vorið
og vinsæla daginn þinn.
Vafalítið hefur oft verið kuldalegt á
Vestfjörðum á vordögum og enn átti
eftir að næða um ungu stúlkuna frá
Úlfsá. Æskuheimilið á Ísafirði var ör-
lítið steinhús. Hún óx upp í glaðvær-
um hópi systkina og lauk barnaskóla-
námi en lengra mun skólanámið ekki
hafa orðið. Hún var 17 ára þegar hún
fluttist til Hafnarfjarðar til að leita
sér vinnu en þar bjó m.a. frændi
hennar Sveinbjörn Sveinsson og hjá
honum hóf hún störf á klæðskera-
verkstæði. Það varð afdrifaríkt, því
þar kynntist hún verðandi eigin-
manni sínum Guðna Hreiðari Tóm-
assyni. Þau gengu í hjónaband 6. des.
1941 og vorið eftir fæddist þeim son-
ur. Guðni stofnaði eigið klæðskera-
verkstæði og festi kaup á íbúðarhúsi.
En um jólin 1943, skömmu eftir að
þeim fæddist annar sonur, veiktist
Guðni hastarlega og lést úr lífhimnu-
bólgu á gamlársdag sama ár. Eftir
sat ekkjan með tvo kornunga syni og
hús og fyrirtæki í skuld. Yngri syn-
inum var komið fyrir hjá systur Ingu,
Sigrúnu, og manni hennar Eyjólfi
Guðmundssyni kennara og hjá þeim
ólst hann upp fram að fermingu. Hún
bjó áfram í litla húsinu sínu í Lækj-
argötu 16 með Tómasi, eldri syni sín-
um. Varla hefði hún þó haldið því í
sinni eigu ef ekki hefði orðið eitthvað
til bjargar. Góður vinur Guðna heit-
ins úr KFUM stóð einn góðan veð-
urdag á tröppunum og knúði dyra.
Erindið var að færa ekkju vinar síns
5.000 krónur að gjöf sem hefur trú-
lega verið allt hans sparifé. Varð
þetta til þess að Inga hélt húsinu og
bjó þar lengst af síðan.
Eftir að Guðni lést vann hún að
margvíslegum störfum sem henni
buðust, m.a. við matseld í Kaldárseli,
ræstingar, saumaskap og húsgagna-
bólstrun hjá Ragnari Björnssyni.
Hún kom sér upp sérstakri vél til við-
gerða á nylonsokkum. Tvær litlar
verslanir voru um miðja síðustu öld
starfræktar í Hafnarfirði; „Sigga og
Beta“ og „Geira og Leifa“. Þessar
verslanir tóku við sokkunum til við-
gerðar og þangað sóttu synirnir vör-
una og skiluðu fyrir móður sína. Inga
var hógvær og lítt áberandi en var
stolt og glæsileg kona, bæði glað-
sinna og skemmtileg. Hún var sann-
arlega eins manns kona og eftir að ör-
stuttu hjónabandi þeirra Guðna lauk
bast hún aldrei síðan böndum við
aðra karlmenn. Þegar synirnir voru
uppkomnir fór hún hins vegar að
ferðast og fór víða þótt ekki talaði
hún önnur tungumál en íslenskuna.
Síðustu æviárin dvaldi hún á Sól-
vangi, fyrst í íbúð á Sólvangsvegi 1 en
síðustu árin á hjúkrunardeild, þar
sem vel var séð um hana af afburða
vel hæfu hjúkrunarfólki sem veitir
skjólstæðingum sínum góða umönn-
un. Fyrir það þakka aðstandendur
innilega.
Þórarinn Guðnason.
Inga var ákveðin í skoðunum og
stóð föst á sínu. Hún var heiðarleg,
hreinskiptin, vinnusöm og verklagin.
Hún var orðheldin, talaði ekki um
fólk og vildi ekki að aðrir væru að
hnýsast í sín mál.
Lengst af bjó hún í litlu húsi á
Lækjargötu 16 í Hafnarfirði. Þar
voru oft á tíðum margir í heimili, syst-
ur Ingu og foreldrar um tíma. Mikil
samheldni var í systrahópnum og
þær sýndu Herdísi, móður sinni, ein-
staka umhyggju. Herdís lá á Sólvangi
í 11 ár, lengst af sambandslaus við
umheiminn. Það breytti því samt ekki
að á hverjum einasta degi heimsótti
einhver dætranna hana. Inga átti
aldrei bíl og fór allra sinna ferða fót-
gangandi, í heimsókn til mömmu
sinnar og eins í vinnuna dag hvern.
Í seinni tíð talaði hún oft um það
hve erfitt hefði verið að láta Þórarin,
yngri son sinn, frá sér þegar hann var
á öðru ári en vegna aðstæðna var það
óumflýjanlegt. Hann flutti svo aftur
til hennar og bróður síns um ferming-
araldur. Hún bauð okkur, fjölskyld-
um beggja sona sinna, nokkrum sinn-
um á ári í mat í litla húsið sitt á
Lækjargötu. Lambakjöt var þá
gjarnan á borðum, ýmist nýtt eða
hangið í samræmi við árstíð. Á hverju
ári mættum við líka öll í stóra kart-
öflugarðinn að baki húsinu hennar, að
vori og hausti, til að setja niður og
taka upp kartöflurnar. Börnin okkar
minnast þessara vinnuferða með
ánægju. Inga kom þá með hressingu,
kaffi, rabarbarasaft og brauð með
heimatilbúinni kæfu, kleinur og ann-
að bakkelsi út í garð. Þegar ég kynnt-
ist henni hafði hún þann sið að vaka á
Jónsmessunótt, gjarnan úti undir
beru lofti og fylgdist með sólarupp-
rás. Þetta gerði hún til margra ára á
meðan hún bjó á Lækjargötunni.
Hún bauð líka í sólarkaffi þegar sólin
birtist yfir Hamrinum á vorin. Þann
sið þekkti hún frá Ísafirði.
Þegar hún hafði efni á fór hún að
ferðast til útlanda. Hún fór m.a. til
Ísraels og Egyptalands og naut
þeirra ferða vel. Hún hafði gaman af
að dansa og fór líka oft á spilakvöld
bæði bingó og félagsvist. Þar var hún
oft heppin og kom heim með hin veg-
legustu verðlaun. Þegar við höfðum
hefðbundnar fjölskylduveislur á jól-
um og páskum var spilað, ungir sem
aldnir, á nokkrum borðum, henni til
mikillar ánægju. Sumarið 1998 í til-
efni áttræðisafmælisins fór hún með
sonum sínum til Ísafjarðar. Þegar
þessi ferð var farin var flest hennar
fólk horfið þaðan og þessi ferð horfin
henni sjálfri ári seinna. Inga bjó í
Lækjargötunni til sjötíu og fimm ára
aldurs en hafði á orði að hún hefði
flutt of seint í íbúðina á Sólvangsvegi.
Húsið á Lækjargötu var orðið henni
erfitt, m.a. lá mjór stigi niður um lúgu
í eldhúsinu niður í þvottahúsið og
einnig var brattur stigi upp á hana-
bjálkaloft. Á Sólvangsvegi bjó hún í
ellefu ár áður en hún fór á hjúkrunar-
heimilið Sólvang. Sárt var að fylgjast
með þessari dugmiklu konu seinustu
árin þegar hún gat ekki lengur tjáð
sig og minnið hafði brostið. Ég kveð
hana með innilegu þakklæti fyrir dý-
mætar stundir og góð kynni sem
aldrei bar skugga á.
Anna.
Ingileif Steinunn
Þórarinsdóttir
SENDUM
MYNDALISTA
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
RÓSA EIRÍKSDÓTTIR,
Hæðargarði 33,
áður Miðdal í Kjós,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni aðfaranótt
mánudagsins 11. ágúst.
Davíð Guðmundsson,
Fanney Þ. Davíðsdóttir,
Hulda Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Grímsson,
Kristín Davíðsdóttir, Gunnar R. Magnússon,
Guðbjörg Davíðsdóttir,
Katrín Davíðsdóttir, Sigurður Ingi Geirsson,
Sigríður Davíðsdóttir, Gunnar Guðnason,
Guðmundur H. Davíðsson, Svanborg A. Magnúsdóttir,
Eiríkur Þ. Davíðsson, Solveig U. Eysteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkæri maðurinn minn, faðir, sonur og bróðir,
SVEINN S. ÞORGEIRSSON,
Frakkastíg 22,
Reykjavík,
lést föstudaginn 8. ágúst 2008.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Anna Ringsted,
Elísabet Ýr Sveinsdóttir,
Þorgeir Sveinsson,
Svava Pálsdóttir,
Pálmar Þorgeirsson,
Hrafnhildur Þorgeirsdóttir,
Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Aðalsteinn Þorgeirsson
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐLAUG PETREA HANSDÓTTIR,
Fellaskjóli,
Grundarfirði,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut aðfaranótt sunnudagsins 10. ágúst,
verður jarðsungin frá Grundarfjarðarkirkju laugar-
daginn 16. ágúst kl. 16.00.
Gunnar Erling Sigurjónsson,
Þorsteinn Björgvinsson, Helga Stolzenwald,
Guðlaug Kristín Björgvinsdóttir, Einar Ingi Jónsson,
Hanna G. I. Björgvinsdóttir, Hlynur Jörundsson,
Kristján Björgvinsson,
Smári Björgvinsson, Helena M. Jónsd. Stolzenwald,
Reynir Björgvinsson,
Trausti Grundfjörð Björgvinsson,
Smári Örn Árnason, Bergljót Kristjánsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir,
mágur og tengdasonur,
DAVÍÐ HÉÐINSSON,
húsasmíðameistari og iðnrekstrarfræðingur,
Garðsstöðum 9,
Reykjavík,
er lést á Landspítalanum miðvikudaginn 6. ágúst,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 13. ágúst kl. 13.00.
Kristín Benný Grétarsdóttir,
Grétar Atli, Gunnar Atli og Anna Sigrún Davíðsbörn.
Margrét Héðinsdóttir, Björn Guðmundsson,
María Solveig Héðinsdóttir, Sigfús R. Sigfússon,
Emil Björn Héðinsson, Margrét Björg Guðnadóttir,
Magnús Héðinsson, Margét Þórarinsdóttir,
Óskar E. Grétarsson, Helga Harðardóttir,
Grétar Bernódusson, Guðrún Eyjólfsdóttir.
✝
Móðir okkar og tengdamóðir,
ÞURÍÐUR SAMÚELSDÓTTIR,
Rauðalæk 21,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu laugardaginn 2. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Óskar Jónatansson,
Svavar Jónatansson, Marta Magnúsdóttir,
Lára Jónatansdóttir.