Morgunblaðið - 13.09.2008, Page 14
OPIÐ hús verður á Hótel Búðum í
tilefni að 60 afmæli hótelsins næst-
komandi laugardag kl. 14-18. Að-
standendur hótelsins segja að í boði
verði veitingar, auk tónlistaratriða
með listamönnunum Andreu Gylfa-
dóttur, Helga Björns, Polkabandinu
og fleirum. Einnig verður boðið
upp á hestaferðir, bátsferðir, rat-
leik og fleira.
Fagna tímamótum
14 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
STÚDENTARÁÐ hefur sent bæj-
arfélögum erindi þar sem segir að
það hljóti að vera kappsmál hvers
sveitarfélags að búa þannig um
hnútana að hver einstaklingur vilji
ekki skera viljandi á heimataug
sína þó svo viðkomandi hafi hleypt
heimdraganum. Borið hafi á því að
stúdentar búsettir úti á landi í námi
á höfuðborgarsvæðinu færi lög-
heimili sitt til Reykjavíkur með það
í huga að fá ókeypis strætókort.
Færa lögheimili
FÉLAGAR í Stuðningsmanna-
samtökum skoska landsliðsins í
knattspyrnu ( Tartan Army Suns-
hine appeal) heimsóttu á dögunum
Barnaspítala Hringsins og færðu
Kvenfélaginu Hringnum pen-
ingagjöf. Samtökin hafa um árabil
lagt góðgerðasamtökum lið sem
beina sjónum sínum að börnum,
bæði í Skotlandi og erlendis. Í til-
efni landsleiks Íslands-Skotlands í
knattspyrnu vildu forsvarsmenn
samtakanna nota tækifærið til þess
að láta gott af sér leiða hér á landi.
Að lokinni afhendingu gjafarinnar
var þeim boðið að gæða sér á súpu.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Komu færandi hendi
STÖÐVA verður vaxandi út-
gjaldaaukningu Reykjavík-
urborgar og hefjast handa við að
lækka álögur á borgarbúa og at-
vinnustarfsemi, að því er fram kem-
ur í kafla um aðhald og aga í fjár-
málastjórn borgarinnar í
stjórnmálaályktun aðalfundar
Heimdallar, félags ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík. Heimdallur
hafnar öllum hugmyndum um að
ríkið greiði upp skuldir sveitarfé-
laga eins og formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga hefur lagt til.
Í ályktuninni er einnig fjallað um
samgöngumál, leikskólamál,
grunnskóla, kjarasamninga, Orku-
veitu Reykjavíkur, Reykjavík-
urflugvöll, skipulagsmál, afnám
lágmarksútsvars og síðast en ekki
síst – borgarstjórn Reykjavíkur.
„Heimdallur telur að sviptingar
við stjórnvöl Reykjavíkur und-
anfarið ár hafi ekki verið farsælar
fyrir borgarbúa. Það upplausnar-
ástand sem ríkt hefur á árinu er
borgarfulltrúum ekki til fram-
dráttar og ekki til þess fallið að
auka trú almennings á stjórn-
málamönnum,“ segir m.a. í álykt-
uninni. Þá vonast félagið til að þess-
um kafla sé lokið með endurvöktu
meirihlutasamstarfi Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknar. Heimdell-
ingar eru sannfærðir um að borg-
arstjórnarflokki sjálfstæðismanna
undir forystu Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur borgarstjóra takist að
sýna fram á að „þeim sé treystandi
til þess að stýra borginni af festu og
ábyrgð“.
Álögur verði
lækkaðar
HÁDEGISFYRIRLESTRAR Sagnfræðingafélagsins hefjast í næstu viku og
í þetta sinn munu fyrirlesarar reyna að svara spurningunum „Hvað er að
óttast?“ og „Hvað er andóf?“ Haustið er helgað óttanum,“ segir í frétta-
tilkynningu. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ríður á vaðið næsta
þriðjudag kl. 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins með erindið: „Kalda
stríðið – dómur sögunnar“. Í útdrætti segir m.a.: „Vakið er máls á nauðsyn
þess, að veittur sé sem bestur aðgangur að öllum skjölum um kalda stríðið.
Mikilvægt sé að átta sig á þeim þáttum, sem vógu þyngst við töku ákvarð-
ana um öryggis- og varnarmál. Það er mat höfundar, að á tíunda áratug
síðustu aldar hafi næsta hávaðalítið verið rætt um stöðu Íslands í kalda
stríðinu. Morgunblaðið hafi til dæmis ákveðið að hlífa þeim við uppgjöri,
sem harðast vógu að blaðinu og heiðri þess á tímum kalda stríðsins.“
„Haustið er helgað óttanum“
STUTT
VEKJA á íbúa til umhugsunar um hreint loft í höfuðborginni í sérstakri
samgönguviku ársins í næstu viku. Hvetja á hvern og einn til að velta því
fyrir sér hvað þeir geta gert til að bæta loftgæði og til að endurskoða
ferðavenjur sínar, að sögn Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, formanns um-
hverfis- og samgönguráðs. Fjölmargir viðburðir eru í undirbúningi alla
daga samgönguvikunnar, frá 16.-22. september. Samgönguvika er nú hald-
in í sjötta sinn og taka yfir 2.000 borgir í Evrópu þátt í henni.
Meðal fjölmargra viðburða eru hjóladagur fjölskyldunnar, strætódagur,
hjólasirkus, nýtt göngu- og hjólastígakort fyrir höfuðborgarsvæðið o.fl.
Vekja íbúa til umhugsunar um
hreint loft fyrir alla í borginni
Eftir Ómar Friðriksson og
Örlyg Stein Sigurjónsson
Talsmenn stjórnmálaflokk-anna eru mishrifnir afhugmyndum sem Við-skiptaráð Íslands setti
fram á dögunum um að settt verði
bindandi útgjaldaþak á ráðuneytin
fyrir heilt kjörtímabil.
Alþingi hægfara
Að mati Gunnars Svavarssonar
Samfylkingarþingmanns og for-
manns fjárlaganefndar eiga menn
að horfa til breytinga í ríkisrekstri.
„Mér finnst mjög gott að samtök
eins og Viðskiptaráð komi með hug-
myndir sem finna má í skýrslunni,“
segir hann. „Menn eiga að horfa til
breytinga í ríkisrekstri eins og í
öðrum rekstri. Ég get ekki verið
annað en jákvæður gagnvart því að
skoða mjög margt sem Viðskiptaráð
bendir á og vona að menn geri það
með opnum huga. Það er nefnilega
margt sem ekki hefur breyst á liðn-
um árum og ég tel að nú sé tími til
að breyta ýmsu í ríkisrekstrinum.
Það þarf að gerast í góðu samstarfi
á Alþingi, við heimilin í landinu, og
hagsmunaaðila í atvinnulífi.“ Gunn-
ar segist finna fyrir því á Alþingi að
stofnunin sé ef til vill hægfara í
mjög mörgum málum „og ég veit að
það tekur tíma fyrir þingið að fara
fram með breytingar,“ bætir hann
við.
Ofeyðsla og flottræfilsháttur
Bjarni Harðarson þingmaður
Framsóknar og nefndarmaður í
fjárlaganefnd er sammála því mati
Viðskiptaráðs að innleiða ætti út-
gjaldaþak fyrir hvert ráðuneyti.
„Það er eitt af verkefnum framtíðar
að stemma stigu við ríkisútgjöldum
sem liggja í ofeyðslu og flottræfils-
hætti,“ segir Bjarni. „Ríkið hefur
gengið á undan í því að færa alla
staðla upp fyrir öll eðlileg mörk,
hvort sem við tölum um fasteignir
eða rekstrarumhverfi stofnana. Aft-
ur á móti eru aðstæður til að setja
útgjaldaþak á ráðuneyti ekki mjög
góðar eins og staðan er í dag. Það
er mjög óskynsamlegt fyrir þjóð-
arbúið að draga saman seglin þegar
mjög mikill samdráttur er í einka-
geiranum í landinu. Þvert á móti
verðum að gefa svolítið í varðandi
ríkisútgjöld og ég hef vonir um að
það verði gert í næsta fjárlaga-
frumvarpi,“ segir hann.
Vill ekki lögfestingu nema að
uppfylltum vissum skilyrðum
„Það er í fínu lagi að setja viðmið-
anir og reglur en ég er ekki tals-
maður þess að festa þetta í lög,
nema tryggt sé að innbyggður sé
ákveðinn sveigjanleiki“ segir Krist-
ján Þór Júlíusson, Sjálfstæðisflokki
og varaformaður fjárlaganefndar.
Að mati Kristjáns er sjálfsagt að
setja útgjöldunum ákveðin markmið
eins og gert hefur verið en spurður
hvort það sé nægilegt segir hann;
,,Það sem þarf að ganga betur er
eins og kom fram í máli fjár-
málaráðherra [á morgunverðarfundi
Viðskiptaráðs] að ráðuneytin fylgi
þeim heimildum sem þeim hafa ver-
ið settar og virði útgjaldarammana
sem þeim eru settir við gerð fjár-
laga og virði fjárlögin. Það er
kannski stóra vandamálið vegna
þess að þegar fjárlögin eru afgreidd
frá Alþingi er hvert og eitt ráðu-
neyti ábyrgt fyrir því að halda sig
innan þeirra heimilda sem Alþingi
hefur veitt. Þar er pottur brotinn.“
Á að skera niður
á Landspítala?
Ögmundur Jónasson þingflokks-
formaður Vinstri grænna er alger-
lega ósammála mati Viðskiptaráðs
og telur að ráðið ætti fremur að líta
í eigin barm, í stað þess að horfa á
ríkiskassann. „Mér finnst að Við-
skiptaráð Íslands ætti að huga að
ungunum sínum, sem eru nátt-
úrlega fjármálafyrirtækin og aðrir
aðilar sem hafa spilað áhættuspil
með íslenskt efnahagskerfi,“ segir
hann. „En Viðskiptaráð kýs frekar
að beina augum sínum að ríkinu og
þar með velferðarsamfélaginu. Mað-
ur spyr sjálfan sig hvar Við-
skiptaráð vilji skera niður? Er það
Landspítalinn eða Droplaugarstaðir
sem þeir hafa í huga? Þeir verða að
vera nákvæmari í skilgreiningum
sínum. Á síðustu 20 árum hefur rík-
ið verið að minnka skuldir sínar en
aðstandendur Viðskiptaráðs hafa
hinsvegar aukið skuldirnar upp úr
öllu valdi. Í þessu ljósi finnst manni
áherslur og forgangsröðun hjá þess-
ari samkundu vægast sagt und-
arleg.“
Ekki raunhæft að festa
niður fjárlagarammann
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, telur
ekki raunhæft að ætla að festa fjár-
lagarammann niður til fjögurra ára.
„Ef skatttekjur dragast saman þá
verða menn auðvitað að sníða sér
stakk eftir vexti í ríkisfjármálunum
eins og aðrir. Ef litið er nokkur ár
aftur í tímann bendir fátt til þess að
menn hafi þá séð langt fram í tím-
ann. Þó ég sé ekki menntaður í hag-
fræði finnst mér hafa skort mikið á
það við ráðgjöf að því er varðar þró-
un peningamála, skatttekna og at-
vinnu o.fl. að hún stæðist tólf mán-
aða framsýni,“ segir hann.
Spurður hvort herða þurfi út-
gjaldareglurnar segir Guðjón að
hægt sé að svara því bæði játandi
og neitandi. „Það má halda því fram
að á þrengingartímum þurfi ríkið
jafnvel að auka verklega þátttöku
sína og halda uppi verklegum fram-
kvæmdum. Ríkið fær kannski bestu
tilboðin á þeim tímum þegar lítið er
um að vera og hægir á vinnumark-
aðinum. Menn geta því líka farið vel
með skattpeninga þó þeim sé eytt.
Hin hliðin getur líka verið sú að það
þurfi að draga úr spennunni og
hægja á. Þetta hlýtur því að vera
mat hvers árs fyrir sig.“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Þak eða op? Þingmenn eru mishrifnir af þeirri hugmynd að lögfesta þak á útgjöld ráðuneyta yfir heilt kjötímabil.
Sitt sýnist hverjum
um þak á útgjöldin
Hugmyndir Viðskipta-
ráðs um að innleiða út-
gjaldaþak fyrir hvert
ráðuneyti yfir heilt
tímabil eiga mismun-
andi hljómgrunn meðal
þingmanna.
Bjarni Verðum
að gefa svo-
lítið í
Gunnar
Nú er tími til
að breyta
Guðjón Arnar
Fara vel með
skattpeninga
Kristján Þór
Ráðuneyti virði
útgjaldaramma
Ögmundur
Hugi að ung-
unum sínum
Í HNOTSKURN
»Í nýútkominni skýrslu Við-skiptaráðs um útþenslu
hins opinbera segir að innleiða
ætti bindandi útgjaldaþak fyr-
ir hvert ráðuneyti yfir heilt
kjörtímabil svo efla mætti trú-
verðugleika fjárlagarammans.
»Þak af þessu tagi gætidregið úr pólitískum
þrýstingi á aukin útgjöld og
aukið framlag fjármálastjórn-
arinnar til sveiflujöfnunar.