Morgunblaðið - 03.10.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 9
FRÉTTIR
BÆJARRÁÐ Kópavogs samþykkti í
gær að fresta losun umframefna á
landfyllingu á Kársnesi uns nið-
urstaða liggur fyrir um skipulag
svæðisins. Landfyllingin hefur ver-
ið harðlega gagnrýnd og lögmæti
þess að losa þar efni dregið í efa.
Í fréttatilkynningu segir að starf-
semin sé hvorki háð fram-
kvæmdaleyfi né umhverfismati.
„Nýjustu mælingar sýna jafnframt
að stærð landfyllingar sé innan
marka gildandi aðalskipulags […]
Er því ljóst að starfsemi á Kársnesi
er innan ramma laga og skipulags.“
Engu að síður verði frekari losun
ekki leyfð fyrr en niðurstaða er
fengin um skipulagningu svæðisins.
Lokað fyrir
losun á nesinu
VINNINGSHAFINN í þrefalda
pottinum í lottóinu um síðustu helgi
er ung kona í sambúð sem á von á
sínu fyrsta barni. Hún er búin að
vera með tíu raða lottóseðil í áskrift
í nokkurn tíma og voru tölurnar
sem dregnar voru út á laugardag-
inn í efstu röðinni á seðlinum henn-
ar.
Fjölskyldan var að horfa á út-
dráttinn í sjónvarpinu og sá töl-
urnar sínar birtast á skjánum. Þau
áttu erfitt með að trúa því að þetta
væru þeirra tölur og helgin var því
lengi að líða þar til þau gátu fengið
það staðfest hjá starfsmönnum Get-
spár að þau væru orðin rúmlega 14
milljónum króna ríkari. Vinning-
urinn er skattfrjáls. Í fréttatilkynn-
ingu segir að vinningshafinn fái
ráðgjöf hjá KPMG endurskoðun um
meðferð og ávöxtun slíkra fjár-
muna.
Vinningshafinn vill ekki láta
nafns síns getið.
Vann 14 millj-
ónir í lottói
SÍÐASTA skólaár nutu 10.640 nem-
endur grunnskólans sérkennslu eða
einhvers konar stuðnings, sem er
24,3% allra nemenda. Er það fækkun
um 162 nemendur frá fyrra skólaári
milli ára. Hlutfallslega flestir nem-
endur 4. bekkjar (9 ára nemendur)
nutu stuðnings eða 27,4 prósent af
árganginum. Af þeim nemendum
sem njóta stuðnings eru 62,2%
drengir og 37,8% stúlkur, að því er
segir í frétt frá Hagstofu Íslands.
Konur voru 87% starfsmanna
grunnskólans árið 2007. Þetta hlut-
fall hefur lítið breyst á síðustu árum,
en það var t.d. 88% árið 1998. Í fyrra
voru 95 konur skólastjórar en 90
karlar. Þetta er í fyrsta skiptið sem
konur eru fleiri í stöðu skólastjóra.
Árið 1998 voru karlkynsskólastjórar
t.d. helmingi fleiri en kvenkyns-
skólastjórar.
Að meðaltali voru starfsdagar
kennara 13,1 á síðastliðnu skólaári.
Fjöldi starfsdaga var misjafn eftir
skólum og var heildarfjöldi starfs-
daga frá 5 til 21. Að meðaltali voru
4,9 starfsdagar teknir á starfstíma
skóla og 8,2 dagar utan starfstíma
skóla, svokallaðir skipulagsdagar að
hausti og vori. egol@mbl.is
Fjórðungur nema í
stuðningskennslu
Um 87% starfsmanna grunnskólanna eru konur
Í HNOTSKURN
»Fjöldi grunnskólanemameð erlent móðurmál nam
1.734 á síðasta skólaári, en 747
árið 1998.
»Vinnudagar grunnskóla-kennara voru að meðaltali
179 talsins með nemendum og
13 starfsdagar eða 192 vinnu-
dagar alls. Þetta er óbreyttur
fjöldi frá síðastliðnu skólaári.
»Mun fleiri strákar fá sér-kennslu en stúlkur.
!"
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
Allir stakir jakkar á kr.10.900
Föstudag og langan laugardag
Jakkasprengja
19.900 - 24.900
Allir stakir jakkar á kr. 12.900
Föstudag og langan laugardag
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Cashmere
peysur
í fallegum gjafaöskjum
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Flottir
Kjólar