Skinfaxi - 01.04.1935, Blaðsíða 28
28
SKINFAXl
valdandi, að fólk liefir flutzl til kaupstaða og sjávar-
þorpa. Er það eitt hið allra mesta öfugstreymi, sem er í
þjóðfélaginu. Búskapurinn er að verða erfiðari og erf-
iðari með hverju árinu sem líður, vegna fólksfæðar,
sveitirnar að verða yfirgefnar, með öllum sínum miklu
möguleikum — en i kaupstöðunum við sjóinn ganga
menn hópum saman atvinnulausir, og er rikishjálp eða
atvinnubótavinna nú að verða helzta bjargarvon margr-
ar fjölskyldunnar. Það hefir að vísu verið auðveldara
að mynda heimili við sjóinn undanfarið, og kaupgjald
hefir verið |)ar hærra þegar vinnu hefir verið að fá.
Það er því óneitanlega ekki aðlaðandi og því síðuv
glæsilegt fyrir æskuna að setjast að í sveitunum, eins
og nú Iiorfir málum þeirra.
Það er hein og eðlileg afleiðing af þessum ei’fiðleik-
um í viðskipta- og atvinnulífi, og íhutunarleysi þjóðfé-
lagsins gagnvarl þeim, að nokkur hluti ungu kynslóðar-
innar skipar sér i róttæka bvltingaflokka.
Ástandið blindar mönnum sýn á mati ýmissa verð-
mæta, gerir hugsun fólksins reikula, og skajiar ótrú á
lifsmöguleika sveitanna. Undir þvílikum kringumstæð-
um er það eðlilegt, að ýmiskonar miður holl álirif af-
vegaleiði æskuna, geri hana skeytingarlausa um móð-
urmálið, deyfi þjóðerniskennd hennar o. s. frv.
Þjóðinni er það i heild sinni lifsnauðsyn, að gerðar
scu þær ráðstafanir landbúnaðinum lil bjargar, sem
ii-yggi, að um lífvænlegri afkomu geti verið að ræða
meðal sveitafólksins yfirleitt. Skal eg nú í fám dráttum
ihuga þær Ieiðir, sem til mestra bóta virðast standa i
vandamálum sveitanna.
Eg lek fyrst fræðslumálin. Mér er það að vísu ljóst,
að þau heyra ekki beint undir þá athugun, sem nú hefir
verið gerð á orsökum til hnignunarinnar meðal ung-
mennafélaganna í samhandi við atvinnumálin. En
fræðslumálin eru þau vandamál sveitanna, sem krefjast
úrlausnar í náinni framtíð, og gríjia að meira eða minna