Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Page 226
MXJUMGAR
TÆKNI
fylgjast meö þróun legunnar
og út frá henni skipuleggja
smurstarf og leguskipti.
Til aö auðvelda yfirsýn og
skipulagningu hefur SPM
Instrument útbúiö tölvuforrit
sem nota má viö venjulega
PC-tölvu. Einkennisstæröir
fyrir ástand legu og þykkt
smurfilmu eru ritaöar inn á
tölvuna ásamt tima. Á tölvu-
skjá má siöan fá fram gröf
sem sýna þróun viðkomandi
legu.
Mynd nr. 1 sýnir mann að
störfum með SPM-tæki og
mynd nr. 2 sýnir tölvuskjá
meö upplýsingum um ástand
ákveðinnar legu.
Nánari upplýsingar um tæki
þetta má fá hjá fyrirtækinu
„Vélarog skip“ Grandagarði.
Fyrirtækiö Keltronics AB
Kiruna framleiðir svipaöan
búnaö og hér var fjallað um.
Munurinn er sá aö sjálf mæl-
ingin fer fram án snertingar.
Sérstakur radarbúnaöur
nemur titringinn frá legunni
en síðan er unniö úr sveiflu-
ferlinu í tölvubúnaöi, saman-
burður gerður á fyrra ferli og
upplýsingar gefnar. Þennan
búnaö má nota til aö fylgjast
meö titringsbreytingum í
öörum vélbúnaði en legum.
Kostirnir viö þetta fyrirkomu-
lag eru að hægt er aö mæla á
stööum sem erfitt er aö kom-
ast aö t.d. vegna mikils hita.
Fjarlægð mælitækisins frá
mælistað getur veriö allt upp í
4 metra. Mynd nr. 3 sýnir aö-
stæöur við mælingu.
Ferðadýptarmælir
I bátum sem framleiða litiö
rafmagn er hætt við gang-
truflunum á siglingatækjum
vegna spennufalls. Auk þess
er varasamt að geyma slik
tæki um þorö i opnum þátum,
þegar þeir liggja i höfn, vegna
hættu á þjófnaði. Fyrirtækið
Microna i Flórida sem er deild
úr S1Tex framleiðir nú dýpt-
armæla sem eru í sérstakri
tösku og er mælirinn ekki
tekin úr henni þótt hann sé í
notkun . Taskan er sett á
heppilegan staö um borö, en
hún hefur einnig aö geyma
botnstykkið fyrir dýptarmæl-
inn og snúru sem tengir
þessa hluti saman. Á botn-
stykkinu er sogblaðka úr
gúmmii sem festir botnstykk-
iö við bol bátsins. Tvær gerðir
dýptarmæla frá fyrrnefndu
fyrirtæki eru hannaöar fyrir
tösku, en þaö er annarsvegar
fl-6, svo kallaður neistamælir
(flasher), og hinsvegar fl-8,
mælir sem ritar á pappir.
Mælar þessir ganga fyrir
tveim 6 volta rafhlöðum.
Mögulegt er aö fá þriöju
gerðina i burðartösku, en þaö
er MICRONAR 400 dýptar-
mælirinn meö LCD skjá.
Þessi mælir fær raforkuna úr
8 venjulegum rafhlööum. Um-
boö hér á landi fyrir S1-TEX
hefur Benco hf., Lágmúla 7,
108 Reykjavík.
Smurfríar kúlulegur
Nýlega hefur SKF sett á
markaöinn kúlulegur meö
svokallaöri fastoliu (solid oil).
Fastolia er olía sem bundin er
plastmassa sem fyllir út i rými
kúlulegunnar (sjá mynd).
Olíufilma liggur milli hringj-
anna og plastmassans sem á
að tryggja fullnægjandi
smurningu. Fullyrt er aö olían
hverfi ekki úr legunni og sé
hún því smurfri. Legan stenst
vel áhrif kemískra efna og
smurolian skolast ekki i burt
viö vélaþvott.