Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Side 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Side 15
40 krónur fyrir kílóið. Þetta er afleiðing af lagasetningu frá Alþingi og þetta kemur fram í kjörum sjómanna.“ Sighvatur kom inn á þá ætlan útgerða að leigja skip frá sér til að komast hjá verkfalli. „Eg fordæmi þau vinnubrögð útgerða. Þetta er verkfallsbrot sem ég hélt að þekktist ekki lengur.“ ÁRNI R. ÁRNASON: „GAGNRÝNISVERT" Arni Ragnar Árnason sagði það gagn- rýnisvert að útgerðarmenn hygðust flytja skip sín milli svæða eða landa til að komast hjá verkfalli. Hann spurði: Ef skylda á að vera að allur fiskur fari á markað, hvar er þá frels- ið. KRISTJÁN PÁLSSON: „FISKMARKAÐIR HAFA VERIÐ AÐ GEFA EFTIR" „Ég held að allir viðurkenni að fisk- markaðir hafa aukið verulega verðmæta- sköpun í sjávarútvegi með nýtingu sjávarafla sem ekki var nýttur áður. Fiskmarkaðirnir hafa verið að gefa eftir. Það fer minna af þorski í gegnum þá nú en áður. Það fer það mikið í tonn á móti tonni-viðskiptum.“ ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON: „SLÍKT VERÐUR AÐ FORDÆMA" „Hitt er alvarlegra, sem hefúr komið fram hér í umræðunum, að nolckur fyrirtæki hafa ákveðið að fremja verk- fallsbrot. Ég tel að Alþingi hljód að skoða hvort heimila eigi útgerðarfyrirtækjum sem brjóta vinnulöggjöfina að halda heimild- um til fiskveiða óbreyttum. Hér er greinilega verið að brjóta vinnulöggjöf- ina. Slíkt verður að fordæma harkalega.“ ÁGÚST EINARSSON: „MEÐ ÓLÍKINDUM" „Það er með hreinum ólíkindum að slík viðbrögð við löglegri vinnustöðvun skuli eiga sér stað. Hér er verið að takast á um grundvallaratriði í kjarabaráttu hérlendis. Þannig er þessi vinnudeila komin á mjög alvarlegt stig. Ríkisstjórn landsins verður að hafa afstöðu í þessu máli.“ I Benedikt Valsson var formaður samninganefndar farmanna í samningaviðræðunum í sumar: Félagarnir voru ekki nógii sáítir „Upphaflega var samið við farmenn 24. „Já, ég vil segja það. Það náðist viðbót apríl síðastliðinn. Þeir samningar voru felldir af farmannafélögunum innan Farmanna- og fiskimannasambandsins, en vélstjórar samþykktu samninginn. Ástæða þess að samningurinn var felldur er sú að félagarnir voru ekki nógu sáttir við niðurstöðuna. Þá var ekki annað að gera en reyna að ná fram meiru,“ sagði Benedikt Valsson, framkvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasambandsins og formaður samninganefndar farmanna, um átökin sem áttu sér stað snemmsumars í samningamálum farmanna. „Það náðist nýr samningur eftir fimm daga verkfall, sem hófst 26. júní og lauk 30. júní með undirritun samninga, sem voru síðan samþykktir.“ Urðu miklar breytingar frá þeim samningi sem var felldur og þeim sem síðan var samþykktur? sem leiddi til þess að félagarnir samþykktu með miklum meirihluta. Meðal þess sem breyttist milli samninganna var meiri kauphækkun. Ég vona að þegar kjarasamningar verða gerðir næst komi ekki til verkfálls. Það er enginn sældarleikur að fara í verkfall; það er neyð að þurfa að grípa til þess. Það sem hvílir þyngst á farmönnum í dag er atvin- numálin, þar er á brattan að sækja. Skipum hefúr fækkað og nánast öll millilandaskip eru komin undir erlendan fána. Það hefúr skapast jafnvægi á síðusm misserum, stöðum hefúr ekki fækkað eins hratt og áður. Á þeim skipum sem eru í áætlanasiglingum til Islands og frá em flestar stöður mannaðar íslendingum, það er að segja hjá skipafélögum í eigu íslendinga.“ SKOÐUN OG VIÐGERÐIR GÚMMÍBÁTA. EINNIG SKOÐUN OG VIÐGERÐ BJARGBÚNINGA. Gúmmíbátaþjónustan Eyjaslóð 9 • Örfyrisey • Sími: 551 4010 • Fax: 562 4010 15 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.