Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Page 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Page 28
Umboðsmaður Alþingis: Telur skerðingu lífeyrisréttinda sjómanna óheimila Umboðsmaður Alþingis telur að ekki hafi verið heimilt að skerða rétt þeirra sjómanna, sem byrjað höfðu töku ellilífeyris á aldrinum 60 til 65 ára, með reglugerð við lög um Lífeyrissjóð sjómanna á síðasta ári. Fjármála- ráðuneytið hafi ekki átt að staðfesta reglugerð sjóðsins, þar sem farið hefði verið á svig við jafhrœðisreglur og vafasamt að breyting af þessum toga samrýmdist eignarréttarákvæði 67. greinar stjórnarskrárinnar. A síðasta ári voru sett ný lög um lífeyrissjóðinn og á grundvelli þeirra reglugerð um starfsemi sjóðsins. Það var gert til að taka á fjárhagsstöðu sjóðsins, en að mati tryggingafræðinga var staða sjóðsins lök, meðal annars sökum þess, hversu snemma sjóðsfélag- ar geta tekið ellilífeyri. MITSUBISHI DIESELVELAR mekanord FRAMGÍRAR - SKIPTISKRÚFUGÍRAR OG SKIPTISKRÚFUBÚNAÐUR VANDAÐUR BÚNAÐUR FYRIRSKIPOG BÁTA MDvÉLAR HF. FISKISLÓÐ 135 B Pósthólf 1562 - 121 Reykjavík Sími: 561 0020 - Fax: 561 0023 í áliti umboðsmanns Alþingis segir að í reglugerðinni sé að finna almenna reglu um að sjóðsfélagar, sem njóti lífeyris samkvæmt eldri lögum um Lífeyrissjóð sjómanna eða réttur þeirra hefur stofnast fyrir gildistöku reglugerðarinnar, skuli halda þeim rétti. Orðrétt segir í álit- inu: „Það frávik eitt er gert frá þessari meginreglu, að réttindi ellilífeyrisþega á aldrinum 60 til 65 ára fara eftir ákvæðum reglugerðarinnar frá 1. september 1994.“ í áliti umboðsmanns kemur fram að þróun laga um lífeyrissjóðinn bendi eindregið til að sjómenn 60 til 65 ára eigi að vera jafnsettir öðrum ellilífeyrisþegum í sjóðnum. Orðrétt segir: „Tel ég ótvírætt, að lífeyrisréttindi sjó- manna, sem höfðu byrjað töku lífeyris á þessum laga- grundvelli og bundið við hann traust að öðru leyti um stöðu sína og störf, njóti ríkrar verndar 67. greinar stjórnarskrárinnar og grundvallarreglna laga.“ Og síðar: „Tel ég að ekki fái staðist, að minnsta kosti ekki án skýrrar lagaheimildar, að taka sjóðsfélaga út úr, sem byr- jað höfðu töku ellilífeyris á aldursskeiðinu 60 til 65 ára, áður en hin nýja skipan kom til framkvæmda, og telja sérstakan orsakavald hallareksturs. Tel ég auk þess, að almennt sé ekki réttmætt að taka á málum með þessum hætti og vafasamt að fengi samrýmst 67. grein stjórnar- skrárinnar jafnvel þótt lagaheimild lægi fyrir.“ Eftir að úrsurður umboðsmanns lá fyrir tók fjármála- ráðuneytið það til skoðunar. Reglugerðin sem umboðs- maður setti út er reglugerð sem fjármálaráðuneytið staðfesti. Get ber þess að álit umboðsmanns er ekki dómur og því er óljóst hvaða breytingar þetta kann að hafa í för með sér. Það skýrist ekki fyrr en fjármálaráðuneytið hefur lokið sinni skoðun. ■ í áliti urnboðsmanns Alþingis segir að í reglugerðinni sé að finna almenna reglu urn að sjóðsfélagar, sern njóti lífeyris samkvœmt eldri Lögurn urn Lífeyrissjóð sjómanna eða réttur þeirra hefur stofn- ast fyrir gildistöku reglugerðarinnar, skuli halda þeitn rétti. 28 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.