Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Page 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Page 41
Fimmtíu ár eru frá stríðslokum Fiskimiðum lokað Herstjórnin lýsti, 25. nóv- ember 1940, fyrirvaralaust allt hafsvæðið milli Vestfjarða og Grænlands hættusvæði og var öll óviðkomandi umferð bönnuð, þar á meðal siglingar fiskiskipa og báta. Hernaðaryfirvöld skýrðu í engu þessa tilskipun enda töldust skýringarnar til hernaðarleyndar- mála. En áhrif hennar voru alvar- leg fyrir vestfirska .sjómenn. öllum gjöfulustu fiskimiðum þeirra var lokað á einu bretti, um 100 bátar sviptir veiðisvæði og atvinnuöryggi hátt á annað þúsund Vestfirðinga ógnað. Ríkisstjórnin hóf þegar viðræð- ur við herstjórnina um að hættu- svæðið yrði minnkað, og bentu talsmenn íslendinga á að innan svæðisins væru auðug fiskimið og allur afli er þar veiddist færi nær óskiptur til Bretlands. Bretar féllust á að gera nokkrar tilslakan- ir, án þess þó að þær kæmu að verulegu gagni. Máttu Vestfirð- ingar þola mikið aflaleysi. 1 desember lýsti herstjórnin hafsvæðið út af Austfjörðum einnig hættusvæði. Náði hættu- svæðið frá Berufirði og norður um, allt til Borgarfjarðar eystri. Innan þess voru flest gjöfulustu fiskimið Austfirðinga. Á báðum hættusvæðunum var lagður aragrúi tundurdufla sem fljótt tóku að slitna upp. Urðu ráðstafanir Breta mjög til að auka kröfur um að stríðstryggja þyrfti alla íslenska sjómenn er stunduðu siglingar og veiðar við landið. Það var loks 21. janúar 1941 að Bretar minnkuðu hættusvæðið fyrir Vestfjörðum og lágu bátamiðin utan þess. Á sömu leið fór fyrir austan land. Sjósókn var þó ekki þar með tryggð, því tundurduflin sköpuðu enn milda hættu þar sem þau voru á reki um allan sjó. Síðar á stríðsárunum var lagt algert bann við fiskveiðum á afmörkuðu svæði út af Reykjanesi og í Faxaflóa. Þá var við banda- ríska setuliðið að eiga, og þrátt fyrir að ríkisstjórnin léti málið til sín taka tókst ekld að fá Banda- ríkjamenn til að slaka á fyrir- mælum um algert veiðibann. Það var ekki fyrr en stríðinu var lokið að skýring fékkst á banninu. Þýskir kafbátar höfðu oft veitt skipalestum á leið í Hvalfjörð fyrirsát á þessum slóðum. Einasta leiðin til að finna þá var fyrir tilstilli radarsins, sem var eitt skæðasta vopn bandamanna í átökunum á hafinu. Og radarinn gerði engan greinarmun á óvinakafbátum í vígahug og sak- lausum fiskibátum. ■ 41 Nýjar lausnir í bitavinnslu Marel býður upp á nýjar lausnir í bilavinnslu. Tölvusjón stjórnar hárnákvæmum skurði hratf og örugglega. Marel skurðarvélin mælir, reiknar út og sker hráefni í afurðir á hagkvæman hátt, samkvæmt þörfum vinnslunnar. Marel skurðarvélin er meðfærileg og auðveld í notkun og viðhaldi. Vélin þolir mikið álag og er hönnuð fyrir vinnslu jafnt í landi sem á sjó. Hafið samband við... Marel hf., Hofóabakki 9, 112 Reykjavík VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.