Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Page 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Page 42
'é* Breskt segultundurdufl sem slitnað hafði upp og rekið á land. Slík dufl, sem voru um 1.20 m á lengd, voru lögð við akkeri á siglingaleiðir og innihéldu 225 kg af dýnamíti. Duflin sprungu ef skip sigldi í námunda við þau. A hættuslóðum fyrir Vestfjörðum Sá landshluti sem hvað helst komst hjá raski styrjaldaráranna var Vestfirðir. Hvorki breska hernámsliðið ná banda- ríska setuliðið höfðu þar mikinn viðbún- að þótt þar væru nokkrar eftirlitsstöðvar. A hafsvæðinu úti fyrir Vestfjörðum mátt hinsvegar glöggt greina að heimsstyrjöld var í algleymingi og það voru einmitt vestfirskir sjómenn sem fyrst og fremst fengu að kenna á hættum stríðsins. Veturinn 1940 til 1941 lýstu Bretar yfir hættusvæði úti fyrir Vestfjörðum. í blaðaviðtali haustið 1982 rifjuðu tveir fyrrverandi skipstjórar frá Vest- íslensk fiskiskip fengu að kenna á miskunnarleysi kafbátahernaðar Þjóðverja og þýskra flugvéla. íslensku skipin voru rækilega merkt nafni landsins og íslenska fánanum ef það mætti verða til þess að minnka hættu á árásum. Hér sést merkingin greiniiega á togaranum Gulltoppi frá Reykjavík. Missir Dettifoss Aðeins rúmum þremur mánuðum síðar barst sú sorgarfregn frá Skotlandi að hinn 21. febrúar 1945 hefði þýskur kafbátur ráðist að Dettifossi skammt norður af frlandi og hefði skipið sam- stundis sokkið. Var Dettifoss á heim- leið frá Ameríku og með skipinu týndu tólf skipverjar og þrír farþegar lífi. Hinsvegar lifðu átján skipverjar árásina af og ellefu farþegar. Aðeins tæpum þremur mánuðum síðar játuðu Þjóðverjar sig sigraða í styrjald- arátökunum. Byggt á bókum Tómasar Tómassonar, Heimsstyr|aldarárin á Islandi. fjörðum upp reynslu sína frá stríðs- árunum og í máli þeirra kom ljóslega fram við hvaða hættu íslenskir sjómenn urðu að stunda atvinnu sína á stríðsárunum. Annar þeirra var Pálmi Sveinsson sem var skipstjóri á Sædísi, 15 lesta bát frá ísafirði, fram til ársins 1943. Mátti oft ekki tæpara standa á tundur- duflaslóðum. „Víst setti óhug að okkur þegar við fréttum að Bretar voru búnir að leggja tundurdufl á Djúpinu, bæði undir Ritn- um og Straumnesinu. Við vissum aldrei nákvæmlega hvar duflin mundu vera en reyndum smám saman að gera okkur grein fyrir því og töldum að þau væru svo sem 15 til 20 mílur undan Rit. Þau voru lögð þarna á djúpri siglingaleið fyrir Straumnesið. Tilgangurinn var auðvitað að granda óvinaskipum sem kunnu að leggja leið sína þarna um. Aldrei vissum við nákvæmlega hve stórt svæðið mundi vera á hvern veg. Það er ansi mikill straumur út af öllum nesjum og þá elcki síst Straumnesinu. Lágu duflin það grunnt í að þau komu upp úr á falla- skiptum, um liggjandann, eins og við orðuðum það fyrir vestan. Við höfðum fiskað talsvert á þessum svæðum áður og það var girnilegt að róa þarna út, vegna þess að það mátti heita friður á þessu svæði fyrir togurum og öðrum bátum almennt. Raunar var það svo á stríðsárunum að fiskgengd jókst 42 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.