Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Page 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Page 54
Tuttugu ár frá síðasta þorskastríði: Það síðasta var styst og harðast - segir Helgi Hallvarðsson skipherra „Eftir að stríðinu lauk var skipt um gír og ný áhersla kom í starf Landhelgisgeeslunnar. Það var mikill spenningur á meðan á þessu stóð. Það var ekki fyrr en þessu var lokið að við gerðum okkur fullkomlega grein fyrir í hverju við höfðum staðið. A meðan á mesta hasarnum stóð hugsuðum við ekki svo mikið um hvernig þetta allt saman var, “ segir Helgi Hallvarðsson skipherra, en 15. október eru liðin tuttugu ár frá þvíþorskastríðið vegna útferslu landhelginnar í 200 mílur hófst. Klippt á togvíra bresks togara. Bresk freigáta siglir á bakborðssíðu Baldurs. Þið voruð oft í lífihœttu? „Já, sérstaklega þegar dráttarbátarnir voru að reyna að ná okkur. A Þór lentum við eitt sinn í baráttu við þrjá dráttar- báta. Þeim tókst að sigla á okkur og valda miklum skemmdum." Telurðu að peir hafi hreinlega œtlað að sökkva ykkur? „Það var meiningin hjá þeim að gera okkur óhæfa til að sinna störfum okkar. Við vitum að þegar verið er í aðgerðum sem þessum úti á sjó er ekki alltaf hægt að ráða við atburðarásina. Sérstaklega átti þetta við um herskipin. Þegar þau voru að reyna að lemja okkur að utan þá réðu þeir ekki við hversu þung höggin urðu. Herskipin voru það erfið í stýringu." Funduð pið ekki Jyrir vanmatti á pes- sum litlum skipum sem pið voruð á? „Nei, alls ekki. Við stóðum þeim fyllilega á sporði hvað sjómennskuna varðar. Það eina sem við óttuðumst verulega var fallbyssurnar. Við hefðum haft lítið í þá að gera hefði þeim verið beitt. Okkar skip voru miklu betri í snúningum en þeirra og það hjálpaði okkur.“ Voru samt ekki einhverjir peirra ágœtir sjómenn? „Jú, mikil ósköp. Það voru þarna margir ágætis sjómenn.“ Afitur að átökunum. Voru menn ekki oft hrœddir? „Jú, við reyndum, þegar ljóst varð að til átaka myndi koma, að hringja viðvörunarbjöllum svo áhöfnin gæti komið sér þangað sem menn gátu haldið sér. Það átti aldrei að koma neinum á óvart. Menn voru að sjálfsögðu mismik- ið spenntir eins og gengur." Saknar pú pessa tíma? „Nei, nei. Það er gott að þetta er búið. Við sluppum vel við slys miðað við hvernig þetta fór fram allt saman.“ Helgi tók pátt í premur porskastríðum; 12 mílunum, 50 mílunum og 200 mílunuum. Hvert peirra skyldi hafa verið harðast? „Það síðasta var styst og harðast." ■ 54 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.