Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Side 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Side 60
við það sem áður var? Áður og íýrr, eða fyrir rúmum tuttugu árum, voru um 5.700 heilsársstöðugildi í atvinnugrein- inni og skipafjöldinn um 700 bátar og skip og voru þá allar fleytur taldar. Þótt hér sé gróft reiknað er áætlað að um 4.400 heilsársstöðugildi hafi verið eftir í greininni fyrir rúmu ári, en skipafjöld- inn er nú um 2.700. Fyrr voru því að jaf- naði um sjö til átta stöðugildi um hvert skip flotans en nú er þar aðeins eitt og hálft stöðugildi til staðar. Allur þessi skipafloti, sem þjóðin hefur eignast, hefúr haft afar neikvæð áhrif á svokallaða atvinnuþróun meðal sjómanna. En svo merkilega vill til að á sama tíma virðist slysum tilkynntum til Tryggingastofn- unar íjölga, sem bendir eindregið til of mikils álags, þreytu og óvarkárni hjá þeim sem enn starfa til sjós. Ef menn vilja, þá má mæla þreytuna með mæli- tækni. Það er allt til staðar í dag. Eins og allir vita sem nokkuð þekkja til sögu þessa lands var oft verulegt vandamál að fá pláss á togara um og eftir 1930. Um 1953 byrjar umræðan um að umbuna sjómönnum sérstaklega til að gera störfin eftirsóttari, þar sem menn virtust ekki lengur hafa áhuga á plássun- um. Samhliða hefst umræða um skatt- afslátt til sjómanna. Sú umræða spannst m.a. í framhaldi af því að á mörgum íslenskum togurum voru Færeyingar, sem höfðu þá möguleika á að fá laun sín greidd í gjaldeyri og gátu auðveldlega selt hann á svörtum markaði eins og gjald- eyrishöftin voru þá hérlendis. Árið 1965, þegar síldveiðar voru stundaðar af kappi, var togaraútgerð í lægð og þá gat nær hver sem er fengið skiprúm á togara. Það var öðru nær en að öll þjóðin sækdst eftir þeim skiprú- mum. I Skipa- þjónusta = HÉÐINN = SMIÐJA STÓRÁSI 6 • GARDABÆ • SÍMI 652000 • FAX 652570 Hönnun • smíði • viðgerðir • þjónusta „Því miður er ég farinti að hallast að því að við séum einmitt að reka okkur illi- lega á það húsgarðshornið í þessum málum, að ungir og efnilegir menn séu farnir að fœlast þessa atvinnugrein, einmitt vegna hinna nei- kvœðu viðhorfa í öllu þjóðfélaginu um þessar mundir til atvinnugreinar- innar. “ Það er síðan um og eftir 1970, er litlu skuttogararnir komu til landsins og menn hagræddu eins og þeir frekast þorðu við störfin um borð; tóku upp bátakjarakerfi og landanir urðu tíðari, að kaup fór að aukast hjá þeim sem eftir sátu og eins að störfin voru að nýju metin að verðleikum og orðin eftirsótt- ari. Þeir menn sem áræddu að breyta þessu voru einkum þeir sem höfðu mikla og haldgóða reynslu af síðutogurunum en höfðu einnig kynnst síldarævinfyrinu að einhverju ráði og sáu að botni var náð í þeim flokki útgerðar um þetta leyti. Þó voru síldveiðar stundaðar í Norðursjó, þá yfirleitt þannig að síldin var ísuð í kassa og seld á markaði. Á þessum tíma var mikið framboð af mjög færum og góðum sjómönnum með mikla reynslu af síðutogurum sem kunnu allvel til verka. Það var því ekki fyrirséð að gera þyrfti sérstaklega ráð fyrir að opna markvisst fyrir einhverja „hálfdrætt- inga“, jafnvel þegar betur fór að fiskast og hlutur manna að lagast. Einnig voru fáar eða engar aukakojur um borð í þes- sum skipum. En svo leið tíminn og mar- gir þeirra sem byrjuðu skuttogaraskeiðið eru nú komnir fyrir fúllt og allt í land og til annarra starfa. Þeirra reynsla nýtist ekki lengur sem skyldi í þá veru að miðla reynslu til yngri manna. En því er ég að rifja þessi mál upp að mér finnst ekki nægilega markviss og skipulögð endurnýjun eiga sér stað hjá sjómönnum og of mikið um að menn ætli aðeins að fara örfáa túra. Helst ætla þeir að græða mikla peninga á stuttum tíma og fara 60 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.