Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1998, Blaðsíða 6
Fiskimenn eiga erfitt þegar þeir geta ekki fiskað eins og hugur
þeirra stendur til og náttúran leyfir. Benedikt Guðmundsson
skipstjóri á Páli Helga ÍS frá Bolungarvík þekkir þetta. Þeir eru á
snurvoð og voru að landa fjórum tonnum
Eins og við lifandi getum...
„Við forðumst þorsk eing og
við lifandi getum. Það er grát-
legt að horfa á trillurnar koma
að landi hlaðnar fallegum
þorski og mega ekkert gera.
Það væri lítið mál fyrir okkur að
fá mun meiri afla en við erum
með núna,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, skipstjóri á
Páli Helga ÍS frá Bolungarvík,
skömmu eftir að hann hafði
lagt að bryggju. Löndun var að
hefjast og í lestinni voru um
fjögur tonn, mest koli.
Benedilt er ekki sáttur við
sitt hlutskipti, að geta ekki fisk-
að meira sérstaklega þar sem
mikið er af fiski um allan sjó.
„Stefnan er að klára ýsu-
kvótann og annað dót,“ segir
skipstjórinn. „Það fékk snur-
voðabátur í dag fimm tonn í
kasti, þannig er þetta. Það er
fiskur um allt og því er sárt að
geta lítið sem ekkert gert. Já,
það er þlóðugt helvíti að þurfa
að forðast þorskinn svona og
vitandi af honum um allan sjó.“
Það er með Benedikt eins
og svo marga aðra sjómenn,
Benedikt að hífa aflann í land.
hann vill gera meira en má það
ekki. Hann talar um það frelsi
sem trillukarlarnir hafa en þeir
eru að týnast til hafnar með
tvö til fjögur tonn hver. Bene-
dikt horfir á þá öfundaraugum
og talar um ranglætið.
„Það má ekki skilja mig
þannig að ég geti ekki unnt
trillukörlunum að fiska svona.
Mér sárnar samt þegar ég ber
frelsi þeirra saman við þá
stöðu sem ég er í, þeir eru ef-
laust vel að þessu komnir, það
er kerfið sem er ranglátt."
f vetur fékk Benedikt rúm-
lega 50 tonn af rækju. Hann vill
sem minnst um það tala en að
aflinn hefði mátt verða meiri.
Það er þorskurinn sem áhug-
inn nær til þessa dagana. „Það
veiðist þorskur meira að segja
inn fyrir Kaldalón. Þegar fisk-
gengdin er orðin svona mikil er
sárt að vera takmarkaður.
Annars hefur svo margt breyst
hér hjá okkur. Það er aðeins
einn stór línubátur eftir við
Djúp, það er Guðný,“ sagði
Benedikt Guðmundsson á Páli
Helga ÍS. ■
6
Sjómannablaðið Víkingur