Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 16

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 16
1. mynd. Útbreiðsla regnskóga árið 1975. Rauðar línur sýna hvar eyðing þeirra er hröð- ust. Teikningin er tekin eftir Huxley 1985. The distribution of tropical rain forest in 1975. Red lines mark the fronts of most rapid destruction. Based on Huxley 1985. eru víðlendastir og er Amasonskógur- inn einn um þriðjungur af heildarflat- armáli regnskóga (Myers 1980, Cám- ara 1983) og um sjötti hluti allra lauf- skóga jarðar (Pringle 1969 í Whitmore 1984). Skógar Indónesíu og Zaire telj- ast hvor um sig vera um 1/10 hluti allra hitabeltisregnskóga. Um þessa skóga hafa verið notuð nokkur nöfn á íslensku. Það nafn sem almenningur kannast ef til vill best við er frumskógur, gjarnan í samhenginu „myrkviðir frumskógarins“ og tengist í huga flestra illfæru skógarþykkni þar sem kyrkislöngur hanga úr trjám, inn- fæddir með eiturörvar bíða í leynum og landkönnuðir höggva sér leið gegn- um þykknið og ýmist finna gull og gersemar eða deyja úr malaríu. Oftast eru þessir skógar nefndir hitabeltis- regnskógar („tropical rain forests“). Fjær miðbaug taka við af þeim hinir svokölluðu monsúnskógar. í þeim gætir árstíða þar sem skiptast á regn- tími og þurrkatími og fella flest trén lauf um þurrkatímann. Nú er í erlend- um bókum oftast talað um „tropical moist forests“, sem þýða mætti sem raka hitabeltisskóga á íslensku. Sumir fræðimenn (t.d. Myers 1980, Boer- boom og Wiersum 1983) nota orðið rakir hitabeltisskógar, sem samheiti regnskóga (og þá aðeins um sígræna skóga), en aðrir (t.d. Whitmore 1984) nota það sem safnheiti yfir regnskóga og monsúnskóga. Fræðimenn nota þannig misstrangar skilgreiningar á því hvað falli undir hitabeltisregn- skóg. Þetta getur valdið ruglingi og því miður er ekki alltaf auðvelt að gera sér nákvæma grein fyrir hvað við er átt. í þessari grein verður reynt eft- ir föngum að takmarka umfjöllunina við hina sígrænu regnskóga en til þæg- inda einnig notað um þá heitið rakir hitabeltisskógar. Það skal þó tekið fram að regnskógar eru ekki bundnir við hitabeltið. Sírakir skógar finnast í tempraða beltinu, til dæmis á Vancou- ver eyju við vesturströnd Norður-Am- 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.