Fréttablaðið - 01.08.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 01.08.2009, Blaðsíða 40
24 1. ágúst 2009 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is Sundkappinn Jakob Jóhann Sveinsson úr Sundfélaginu Ægi stóð heldur betur fyrir sínu á Heimsmeistaramótinu í sundi í Róm á Ítalíu en hann gerði sér lítið fyrir og setti Íslands- met í öllum þremur keppnisgreinum sínum í mótinu. Jakob Jóhann, sem fyrir átti sjálfur öll metin, byrjaði á því að slá metið í 100 metra bringusundi um tæpa sekúndu. Þá bætti hann metið í 50 metra bringusundi og svo kórónaði hann allt með því að bæta Íslandsmetið í 200 metra bringusundi um rúmar tvær sekúndur. „Ég er bara nokkuð sáttur með þetta og átti svo sem alveg von á því að bæta mig. Ég undirbjó mig aðeins öðruvísi fyrir þetta mót heldur en ég hef gert áður. Ég var með aðeins aðrar áherslur í sundinu sjálfu og líka bara á hugsunarháttinn. Ég lærði að slaka betur á gagnvart sundinu og ekki vera að stressa mig of mikið á hlutunum. Ég tók líka mataræðið í gegn hjá mér og passaði mig á því að borða mikið meira en ég er vanur að gera, bæði í undirbúningnum fyrir mótið og meðan á mótinu stóð. Ég lenti nefnilega í því fyrir Ólympíuleik- ana að léttast um fimm kíló og það hafði eðlilega ekki góð áhrif á mig þá,“ segir Jakob Jóhann. Jakob Jóhann nýtti sér jafnframt nýjustu tækni í sundfatnaði á mótinu og efast ekki um að það hafi skilað sínu. „Ég er í buxum niður á ökkla en ekki heilgalla eins og sumir það munar verulega um þetta. Heilgallinn verður sem sagt bann- aður á næsta ári og þá má aðeins vera í buxum niður að hnjám. Það er eitthvað efni í þessum göllum sem á að gefa manni meira flot og þetta hefur eitthvað að segja og enn meira ef þú ert í heilgalla því þá færðu betra flot á allan líkamann. Ég ætla samt bara að halda mínu striki og er sannfærður um að ég geti náð enn betri tímum á næsta ári, hvort sem ég verð í þessum buxum eða ekki. Við þjálfarinn minn eigum annars eftir að fara betur yfir hlutina því hann kvaðst hafa séð hitt og þetta sem mætti laga hjá mér. Næst á dagskrá hjá okkur er því bara að fara að vinna í þeim hlutum,“ segir Jakob Jóhann ákveðinn. JAKOB JÓHANN SVEINSSON: SETTI ÍSLANDSMET Í ÖLLUM ÞREMUR KEPPNISGREINUM SÍNUM Á HM Í RÓM Mikið sem má laga til þess að ná enn betri tímum FÓTBOLTI Mikil sorg ríkir á Eng- landi og víðar eftir að í gær var tilkynnt að goðsögnin Sir Bobby Robson væri látinn en þessi fyrr- um landsliðsþjálfari Englands var með virtustu og viðkunnaleg- ustu mönnum í fótboltaheiminum. Robson dó eftir harða 15 ára baráttu við krabbamein en hann var 76 ára gamall. Ásamt því að þjálfa enska landsliðið var Rob- son einnig um tíma knattspyrnu- stjóri hjá Ipswich, Newcastle, Porto, Barcelona og PSV. - óþ Bobby Robson fallinn frá: Sorg í Bretlandi GOÐSÖGN Bobby Robson NORDIC PHOTOS > Markvarðaskipti hjá KR og Lilleström KR og norska félagið Lilleström hafa náð samkomulagi um leikmannaskipti á markvörðunum Stefáni Loga Magnússyni og Andre Hansen en aðeins er þó um leigusamning að ræða út yfirstandi tímabil. „Þetta hentar bara öllum aðilum mjög vel og við í KR og Stefán Logi erum mjög ánægðir með þessa niðurstöðu. Við sjáum svo bara til hvað gerist í haust,“ segir Kristinn Kjærne- sted, formaður knattspyrnudeildar KR. Stefán Logi leikur með KR gegn Val í bikarnum og svo seinni leikinn gegn Basel í Evrópudeild UEFA og eftir það berjast Hansen og Atli Jónasson svo um byrjunarliðsstöðuna fyrir leikinn gegn FH í Pepsi-deildinni. FÓTBOLTI Það verður brotið blað í sögu íslenska fótboltans þegar Valur og KR mætast í VISA-bik- arnum um verslunarmannahelg- ina. Aldrei áður hefur verið spilað um þessa mestu ferðahelgi ársins en miðað við deildarleik liðanna á dögunum sem var stórbrotinn sjö marka skemmtun má búast við að margir knattspyrnuáhugamenn gerist innipúkar og mæti á Voda- fone-völlinn. Atli Eðvaldsson stýrði Val til sigurs á KR í fyrsta deildarleikn- um undir hans stjórn og viðhélt þeirri tölfræði að hafa aldrei tapað með Val á móti erkifjend- unum úr vesturbænum. Það hefur lítið gengið hjá Valsliðinu síðan (1 stig í 3 leikjum) á sama tíma og KR-ingar hafa staðið sig vel bæði á heimavígstöðunum sem og í Evr- ópukeppninni. KR-ingar eru núverandi bikarmeistarar og þurfa þeir að brjótast í gegn- um ákveðinn múr ætli þeir sér að komast lengra. Titilvörn bikarmeistar- anna hefur ekki gengið vel undanfarin sjö ár og vinni KR-ingar á Vals- vellinum á sunnu- daginn geta þeir orðið fyrstu bikar- meistararnir frá 2002 til þess að komast í undanúrslit bikarkeppn- innar árið eftir. Fylkismenn voru síð- ustu bikarmeistararn- ir sem vörðu titilinn en Fylkir vann bikarinn 2001 og 2002. Síðan þá hafa bikarmeistarar lengst komist í átta liða úrslit og KR- ingar eru meira að segja aðeins þriðju bikarmeistararnir á þessum sjö árum sem komast í gegnum sextán liða úrslitin. KR-ingar er u komnir lengra en í síð- ustu titilvörn sinni í bikarnum en þeir féllu út úr 16 liða úrslitunum árið 2000 en fimm árum áður tókst þeim þó að fara alla leið og vinna bikarinn annað árið í röð. Keflavík, Fram og Breiðablik hafa þegar tryggt sér sæti í und- anúrslitum VISA-bikarsins sem verða spiluð á Laugardalsvellinum 12. og 13. september. Úrslitaleik- urinn fer síðan fram 3. október. - óój Valur og KR mætast á Vodafone-vellinum í átta liða úrslitum VISA-bikars karla um verslunarmannahelgina: Buðu síðast upp á sjö marka skemmtun SKORAR OG SKORAR Miðvörðurinn Grétar Sigfinnur Sigurðarson er búinn að skora í þremur leikjum í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/ARN- ÞÓR TITILVÖRN BIKAR- MEISTARA SÍÐUSTU ÁR (Liðið sem sló þá út er innan sviga) Fylkir 2003 16 liða úrslit (KA) ÍA 2004 32 liða úrslit (HK) Keflavík 2005 16 liða úrslit (HK) Valur 2006 8 liða úrslit (Víkingur) Keflavík 2007 8 liða úrslit (Breiðablik) FH 2008 16 liða úrslit (Keflavík) KR 2009 ???

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.