Andvari

Volume

Andvari - 01.03.1969, Page 30

Andvari - 01.03.1969, Page 30
28 I-IALLDÓR HALLDÓRSSON ANDVARI 4 nýyrðasöfn, en auk þess Tæhniorðasafn Sigurðar GuÖmundssonar. Mest af þessum tíma var ég starfsmaður nefndarinnar. Á fundum hennar, sem voru tíðir og strangir, urðu til mörg nýyrði. Ef ég ætti að lýsa stuttlega af- stöðu próf. Alexanders á nýyrðafundunum, yrði lýsingin eitthvað á þá leið, að hann hafi verið ihaldssamastur allra, sem fundina sátu, um upptöku tökuorða, en róttækastur um myndun nýrra orða. Hann bjó t. d. til sögnina hanna (og afleidd orð), og birtist hún fyrst í Nýyrðum IV, Rvk. 1956. Ég held, að öllum okkar, sem fundinn sátum — nema ef til vill tæknifræðingn- um — hafi virzt djarft farið í sakirnar og ekki gert ráð fyrir, að sögninni yrði langra lífdaga auðið. En okkur skjátlaðist. Hún er nú á hvers manns vörum, hefir unnið sér þegnrétt í íslenzku máli. I nánu samræmi við þetta var afstaða Alexanders til ættarnafna. Um þetta mál fórust honum svo orð í Fréttum 10. júlí 1918: „Flest íslenzk ættarnöfn t. d. fara í bága við fallegt mál og rétt. . . Auk ættarnafna þessara, er hver og einn getur húið sér til eftir eigin geðþótta og fengið viðurkenningu á í Stjórnarráðinu, er algengt hér á landi, að menn smíða sér nöfn og heiti á persónum, hlutum og hugtökum eftir eigin geðþótta án þess oft og tíðum að hafa hugmynd um, hversu tungunni hæfi. En (sic!) það sannarlegt íhugunarefni, hversu reisa megi rönd við vogestum þessum, er ráðast inn á haslaðan völl íslenzkrar málhelgi." Einkennilegt er það, að báðir afar Alexanders bera ættarnafn (Johnsen), en faðir hans gerir það ekki. Má vera, að andúð Alexanders á ættarnöfnum stafi frá heimili hans og afkomendur Einars Jónssonar hafi ekki verið sam- mála í afstöðu sinni til þessa máls. Hér slcal farið fljótt yfir sögu um afstöðu Alexanders til ættarnafna, en hún hélzt óbreytt. Hann var ásamt fleirum skipaður 1. marz 1955 af Bjarna Benediktssyni, nú forsætisráðherra, í nefnd til þess að endurskoða lög um mannanöfn. Meirihluti nefndarinnar vildi leyfa upptöku ættarnafna, en Alexander var andvígur þessu ákvæði. I séráliti hans segir m. a.: „Flest íslenzk ættarnöfn eru málspjöll og munu þau, er tímar líða, valda skemmdum á tungu vorri, t. d. á þann hátt, að tvö föll verði notuð í stað fjögurra, eins og þróunin hefur orðið í öðrum germönsk- um málum (nefnif., þolf. og þágufall eins, eignarfall með s-endingu), eða jafnvel eitt. . .
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.