Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1979, Page 24

Andvari - 01.01.1979, Page 24
22 JÓN ÞÓRARINSSON ANDVARI starfsemi hans, sem hefur farið sívaxandi nú í nærri hálfa öld, haft upp- byggjandi áhrif á allar greinar tónlistarlífsins. Til þess að tryggja rekstur skólans var Tónlistarfélagið stofnað 1932, en annað helzta markmið þess var að efla tónleikahald í Reykjavík, eins og vikið var að í upphafi þessarar greinar. Loks bar það við á árinu 1930, að Ríkisútvarpið hóf starfsemi sína. Idið fyrsta útvarpsráð hafði þá setið á rökstólum frá því snemma vetrar 1929, en í því átti Páll sæti sem fyrr segir. Tónlistarflutningur varð snemma mikil- vægur þáttur í dagskrá útvarpsins. Lagði Páll á ráðin um þau mál öll, en naut í því efni góðs stuðnings Emils Thoroddsens og Þórarins Guðmunds- sonar, sem voru hrátt fastráðnir hljóðfæraleikarar hjá stofnuninni. Llm langt árabil störfuðu með Páli í tónlistardeild útvarpsins þær Guðrún Reykholt og Sigrún Gíslsdóttir og loks í tæpan áratug sá, sem þetta ritar. Allt þetta fólk og annað samstarfsfólk Páls mat ákaflega mikils forystu hans í tón- listarmálunum, áhuga hans, velvilja og þekkingu. Sama máli gegndi um forráðamenn stofnunarinnar, útvarpsstjóra, sem lengst var Jónas Þorbergs- son, og útvarpsráðsmenn. A styrjaldarárunum vann Páll sér miklar vinsældir sem stjórnandi „Þjóðkórsins“, er svo var nefndur, í útvarpinu. Kórinn var stofnaður að frumkvæði Páls til þess að halda við og rifja upp gömul og ný alþýðleg sönglög og kvæði, sem áður höfðu notið útbreiðslu og vinsælda, en nú var óttazt að mundu gleymast og glatast í urnróti stríðsáranna. I útvarpssal var saman koininn hópur af völdu söngfólki, sem flutti lögin undir stjórn Páls og við undirleik hans, en ætlazt var til, að hlustendur „tækju undir“ hver heima hjá sér. Á þetta efni var mjög mikið hlustað, og sjálfsagt hafa margir „tekið undir", eins og til var ætlazt. En vinsældir sínar mun Þjóð- kórinn hafa átt að þakka ekki sízt rabbi stjórnandans við hlustendur milli laga, en það þótt hressilegt og skemmtilegt. I Tónlistarskólanum var fyrsti samstarfsmaður Páls dr. Franz Mixa, sem áður er getið, og fleiri menn af erlendu bergi brotnir lögðu fram krafta sína við uppbyggingu skólans um langan eða skamman tíma. Má þar m. a. nefna dr. Victor Urbancic, sem tók við af dr. Mixa 1938, dr. Heinz Edelstein og síðar dr. Róbert A. Ottósson. En nánasti samst'rfsmaður Páls varð Árni Kristjánsson píanóleikari, sem kom að skólanum 1933, var yfir- kennari og varaskólastjóri frá 1936 og tók við skólastjórn 1956, þegar Páll lét af því starfi. Björn Okfsson fiðluleikari, sem verið hafði einn af fyrstu nemendum skólans, varð þar kennari 1939 og yfirkennari í strengjadeild
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.