Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1979, Side 80

Andvari - 01.01.1979, Side 80
78 RUTH CHRISTINE ELLISON ANDVARI 28. apríl. Sama hríð og harka. Missti ég sauð, lá dauður fyrir innan sauðahúsdyr. 4. maí. Austan skafhríð, en heiðríkt og hörkufrost. Voru 8 vesælir sauðir látnir hér heim í kofann. 12. maí. Útvestan gola og frost, svo lítið klökknaði fyrr en undir kvöld. Alþakið af ís, fjörðurinn að fyllast. 25. maí. Stórhríð að kalla, og allar ær standa inni. Guð rninn góður bæti úr því báli og gefi bráðlega betri tíð. Og allt er fullt af hafís það sést. 26. maí. Bleytuhríð enn ekki mikil, er korninn mikill snjór. Barði ég nú niður mikið af fiski handa kindum, því nú er heyið nærri búið. Því treysti ég því af öllu hjarta, að Guð muni nú fara að miskunna mönnum og gefa góðan bata, af sinni óendanlegri miskunnsemi. 5. júní. Snjókomuhríð á austan allan daginn, svo lömb voru alltaf inni og lítið sem ekkert til að gefa ánum. Guð rninn góður bæti úr því. 7. júní. Austan hríðarveður framanaf, en batnaði þegar á leið og klökknaði mikið. Var skorið í gærdag undan flestum ánum, Þorleifur undan öllum sínum; ég á 9 eftir. 19. júní. . . . Vor[uj ærgrindurnar færðar í kvíar, eru þær að kalla þurrar. 25. júní. Bjart veður og austan gola. Var ekki hugsað til messuferðar, því prestur lá veikur af mislingum, sem eru hér að ganga ofan á annað bágt. Alltaf fullt með hafís og ekkert getur slegið í jörð. Kúm alltaf gefið, með því varla sést nokkur gróður. Barði hefur legið í mislingum, er nú að skána. 2. júlí. Kuldagola á útvestan og augalaus fjörðurinn vegna hafíss. Allir liggja í hrúg[uj í mislingunum og sagt flestir liggi á dekkbátunum. 6. júlí. Hríðarveður á norðaustan, svo alhvítt varð annað slagið, en át af annað veifið. Er fólki nú heldur að skána mislingarnir, og Baldvin og Billu, sem þyngst voru haldin. 14. júlí. Alltaf er fjörðurinn fullur af hafís og ómögulegt inn í fjörð að fara sjóleiðis. 2 útlenzk skip verið föst í hönum í nokkra daga. Annað nú einhvörn veginn komizt inn með vesturlandinu inn á höfn. Frá 25. júlí fór veðrið batnandi, en afleiðingar illviðris voru auðséðar. 28. júlí. Fór fram í dal að skoða engjarnar. Eru þær vesælar eins og von er til. 3. október. Bjart og gott veður, en alhvítt af fönn. Var Grána mín skorin, átti þó að bera um jól, ekki gaman. 5. október.. . . Piltar skáru allar sínar kindur. 9. nóvember. . . . Skar ég 12, tvo sauði, 2 ær og 8ta veturgamalt. 11. nóvember. .. . Skárum við, ég 7 veturg. og ær. 29. nóvember. Hríðarlaust veður og kyrrt þangað til um kvöldið, að hvessti austan. Lét ég skera 7 kindur og Jóh. 4ar. Á nú eftir lifandi 20 ær og 20 sauði, má líklega skera seinna. Heyskapur reyndist bæði erfiður og lítill, þar eð rigning var 19 daga í ágúst og snjókoma aftur mikil snemma í september. Að loknum heyskap sást greini- lega, að stórkostleg fækkun var óbjákvæmileg, þótt Jóni bónda kynni að þykja
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.