Andvari - 01.01.1950, Side 18
14
Jón Guðnason
ANDVAHI
við það hraðbyri, er félagar hans í skóla sigldu. Vorið 1903 kom
liann suður og gekk undir próf upp úr 4. bekk með sínum
gömlu bekkjarbræðrum. En það próf var í þá daga annað aðal-
próf skólans og lokapróf í sumum námsgreinum. Bjóst bann við
að falla, en það fór á annan veg. Hann varð efstur á prófinu,
og voru þó margir bekkjarsveina slyngir námsmenn.
í 5. og 6. bekk sóttist Páli Eggert námið með sömu ágæturn
og fyrr. Gat hann þó eigi sótt kennslustundir í 6. bekk nema
stopult, sökum beilsubrests. „Uppáhaldsgreinar Páls voru forn-
tungurnar, stærðfræði og íslenzka, en þó mátti svo kalla, að bann
væri jafnvígur á allt“, segir Bogi yfirkennari Ólafsson í grein,
sem birtist með mynd af Páli Eggert í „Óðni“ 1921. Og enn
segir Bogi þar: „Auk námsbókanna las Páll fjölda rita um
ýmisleg efni og bélt þeim bætti alla sína skólatíð, og er það, að
minni hyggju, sjaldgæfara um „duces scholæ" en margur ætlar“.
Stúdentsprófi lauk Páll Eggert 30. júní 1905 með mjög hárri
1. einkunn, 102 stigum.
VII.
Stúdentarnir 1905 voru 17 að tölu. Af þeim sigldu 11 til
Kaupmannabafnar samsumars, til háskólnaáms. Hér heima var
þá ekki kostur á embættisnámi í öðrum greinum en guðfræði og
læknisfræði. Fyrir þá, sem ekki böfðu ástæður til að leita náms
ytra, var ekki um aðrar greinar að ræða en þessar tvær, eða
hætta námi ella. Um haustið 1905 lét Páll Eggert skrásetja sig
sem nemanda í læknaskólanum. Þann vetur nam bann for-
spjallsvísindi, eins og venja var til, og lauk prófi í þeim með 1.
einkunn 18. júní 1906. En það var hvorttveggja, að honum
mun eigi hafa fundizt læknisfræðin vera grein við sitt bæfi, enda
knúði nauðsyn bann til að sinna störfum, sem gáfu þegar eitt-
livað í aðra bönd, því að hann bafði kvænzt og stofnað heimib
vorið 1905, um það leyti er liann lauk stúdentsprófi. Hvarf hann
því skjótt frá læknisfræðinni, og námsdvöl bans innan skóla-