Andvari - 01.01.1937, Blaðsíða 109
Andvari
ísland í norrænum sögunámsbókum.
105
tíminn talinn allt frá 1241, og á einum stað segir þvert
ofan í allar heimildir, að ísland hafi 1263 »lotið Noregi,
norskum lögum og norskri stjórn*.
Lang-eftirtakanlegust er samt hin hræðilega lýsing,
sem á mörgum stöðum er gefin á þjóðfélagsástandi Is-
lands á lýðveldistímunum. Úr fjórum mismunandi kennslu-
bókum dönskum skulu tekin þessi dæmi: »Helztu höfð-
mgjaættirnar upprættu hver aðra í hernaði sín á milli;
sífellt var ófriður, sífellt einhvers að hefna, og víg kom
eftir víg*. »Höfðingjarnir hötuðu hver annan og lágu
alltaf í styrjöldum, þar sem ágætustu menn Islands féllu*.
»Það var nærri því fágætt, að nokkur þeirra andaðist
friðsamlega í rúmi sínu*. »Konur eggjuðu menn sína til
hefnda; heilar fjölskyldur voru brenndar inni«. Og til
Warks um þessar hryllingar segir á einum stað: »Snorri,
sem ritaði Noregskonungasögur og safnaði »Yngri
Eddu« — jók vald sitt með launmorðum og ofbeldis-
verkum«.
Heildarmyndin, sem þarna birtist af innanlandsástandi
a þjóðveldistímanum, er vægast sagt villandi. Væri hún
sönn, hlyti algert stjórnleysi að hafa ríkt i landinu. Eftir
því , sem sjá má af heimildum, fór því fjarri. Tíunda öld-
m hefur að vísu verið allmikill óróatími, því að sjálfsögðu
hefur þeim 36 höfðingjaættum, sem fengu að lögum 930
forustuna í ríkinu, ekki tekizt í einni svipan að tryggja
drottinvald sitt yfir öllum landslýðnum. Við hliðina á lög-
9°ðunum 36 voru í fyrstu margir aðrir goðar, dreifðir
um allt landið, og þeir hafa vafalaust reynt að halda
siálfstæði sínu eins lengi og þeir gátu. Baráttan milli
þessara tvenns konar höfðingja setur svip á söguöldina.
En við kristnitökuna lauk þeirri aflraun skyndilega. Þá
voru bönnuð opinber blót og þó skýlaust leyft í lögum
að blóta á laun hin fornu goð. Þetta leyfi sýnir skýrar