Andvari - 01.01.1928, Blaðsíða 84
82
Gerhey
Andvari
í heyiópl, eins og þeirri, sem getið hefir verið um
(2 X 2i/2 X 5 m.), hefir hér reynzt nægilegt að bera
10 fötur kvölds og morgna til þess að hitinn aldrei fari
yfir 20—30 stig. Auðvitað þarf iðulega að mæla hitann
og er nóg að mæla hann í 1 m. dýpt; þar er hann
mestur.
Meðan verið er að fylla tóptina, verður helzt að bæta
í hana daglega, og ekki sjaldnar en annanhvern dag.
Þegar hún er full, verður strax að ganga frá henni til
fulls. Efsta heylagið skemmist (myglar) mjög fljótt, ef
lopt getur leikið um það til lengdar. Bezt er að nota
mosa til að byrgja heyið með. Þá er látið 20—25 cm.
þykkt lag af hreinum mosa ofan á heyið og þjappað vel
saman. Allar mosategundir munu vera góðar til þessa.
Kostur mosans er, að hann er hreinlegur og skemmir
ekki heyið, þegar hann er tekinn af, og svo má þurka
hann og nota aftur næsta sumar. Að minnsta kosti
sumar mosategundir má nota oftar en einu sinni. Eins
er mosi víðast nærtækur. Þó telja sumir, að betra sé,
að tyrfa mosalagið, þegar hætt er að bera vatn á heyið.
Einnig má tyrfa heyið vandlega og bera svo mold ofan
á, jafnþykkt lag sem áður er sagt. En með þessari að-
ferð er hættara við, að efsta lagið af heyinu skitni,
þegar farið er að hreifa því, og aðferðin að öllu leyti
óþrifalegri.
Þegar búið er að ganga frá mosalaginu, er haldið
áfram að bera vatn á heyið meðan horfur eru á hita-
myndun. I 2. viku fer að draga úr hitanum, og má þá
fara að draga af vatninu og eftir 2 vikur er gerðin
venjulega búin og heyið fer að kólna, og þá má alveg
hætta vatnsaustrinum.
Að hey getur verkast með þessari aðferð eins vel og