Stúdentablaðið - 15.05.1928, Qupperneq 9
1928
7
STODENTABLAÐ
Ef hliðsjón er tekin af ástandinu í öðrum
löndum, t. d. Þýskalandi, þá verður reyndin
sú, að stúdentafjöldi sá er les við em-
bættadeildir háskólanna, verður í minni hluta
fyrir hinum, sem verklegt og vísindalegt
nám stunda í öðrum deildum og sjerskólum.
Af samtals 55696 stúdentum í þýskum há-
skólum árið 1925 voru 62% í deildum er
svara til deilda Iláskólans hjerna. En þá
eru ótaldir stúdentar á verslunarháskólum
og verkfræðingaskólum. Þeir voru 5696 og
21989 eða samtals 27685, og verður þá út-
koman sú, að 41% þýskra stúdenta lesa við
embættisdeildir (og tungumála-sögudeildir,
sem taldar eru með) háskólanna, en 59% eru
við nám, sem íslenskir stúdentar verða að
fara utan til þess að hagnýta sjer.
Hjer er ástandið þannig, að ca. 75% af
cllum ísl. stúdentum les hjer við Háskólann,
25% stúdenta stunda verklegar og vísinda-
legar fræðigreinar ytra.
Ef færa á tölur þessar eitthvað nær rjettu
horfi eða gera þær sambærilegar við svip-
aðar hlutfallstölur í öðrum löndum, þá þarf
skjótra aðgerða.
Það er eindregin ósk allra stúdenta, að
bætt verði deild eða deildum við Háskólann
hjerna, og hafa menn þá helst í huga versl-
unar- og viðskiftadeild, en auk þess að
læknadeild verði aukin svo, að þaðan megi
ljúka prófi í lyfjafræði og tannlækningum.
Þessar breytingar myndu bæta mjög mikið
úr, en þó verður það alveg óhjákvæmilegt,
að hækka utanferðarstyrk stúdenta að mun.
Mentamálaráð ætti að leggja þetta á
minnið, þegar það fer að úthluta styrknum
í ár, svo bót verði á þessu ráðin bráðlega.
-----o-----
Skemtileg tilviljun.
Sænskir stúdentar í Helsingfors á Finn-
landi hafa í vor stofnað með sjer leikfjelag,
sem þeir kalla „Svenska studenters klubb-
teater“, og ljeku þeir í fyrsta skifti 20. ap-
ríl síðastl. Einmitt hið sama kveld ljek hið
nýstofnaða „Leikfjelag stúdenta“ hjer í
Eeykjavík í fyrsta sinn.
Engar bækur
hafa borist „Stúdentablaðinu“ til umsagn-
ar enn sem komið er, enda er þess tæplega
að vænta, þareð blaðið er ungt og óreynt. —
Við því er ekki að búast, að langt mál verði
skrifað um ,engar bækur', en með línum
þessum vildi undirritaður vekja eftirtekt
þeirra, er hjer eiga hlut að máli, á því, „að
bókasendingar eru þakksamlega þegnar“,
eins og komist er að orði.
Quod Felix.
Úr erl. stúdentablöðum.
Gaudeamus. Sænska stúdentablaðið
Gaudeamus ætlar í tilefni af norræna mót-
inu í Stokkhólmi að gefa út sjerstakt tölu-
blað, er helgað skuli stúdentum norrænu
landanna.
S t u d i u m. Danska stúdentablaðið Stud-
ium birtir í 11. tbl. frá fyrra mánuði samtal,
er blaðið hefur átt við Indriða rithöfund
Einarsson, þegar hann var á ferð í Höfn
eí'tir Ibsens-hátíðahöldin í Osló. Fjallar sam-
talið mestmegnis um ísl. leiklist og bygg-
ingu væntanlegs þjóðleikhúss. Telur Indriði
rnálið á góðum rekspöli og segist jafnvel
hafa von um að byrjað verði á byggingunni
í sumar. Mun þetta rjett hermt, því 30. f.
m„ á 77 ára afmæli Indriða, var honum, af
hendi landsstjórnarinnar, afhent gjafabrjef
að lóð í Arnarhólstúni undir væntanlegt
þjóðleikhús, og er sú lóð á milli húss Jóns
heit. heit. Magnússonar og Landsbókasafns-
ins.
Um Grænland.
Dr. Knútur Rasmussen grænlandsfari, hef-
ur að undanförnu haldið nokkra fyrirlestra
hjer við Háskólann um Grænland og Græn-
lendinga. Hafa fyrirlestrarnir verið fjöl-
sóttir.