Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.11.1965, Side 26

Stúdentablaðið - 01.11.1965, Side 26
26 STÚDENTABLAÐ — Já, reglugerðin tekur væntanlega gildi hinn 1. okt. n. k. Heimspekideild {hefur gefið út leiðbeiningar fyrir stúdenta um hina nýju námtilhögun, og fást þær á skrifstofu Háskóla íslands. — Hvaða áhrif hafa breyt- ingarnar á nám þeirra stúdenta, sem þegar eru innritaðir í há- skólann? Hin nýja námsskipan hefur engin áhrif á nám þeirra, þeir eiga allir rétt á að Ijúka námi, innan hæfilegs tíma, sam kvæmt, j núgildandi reglugerð. Hin nýja námsskipan nær að- eins til þeirra, er innritast eft- ir að hún tekur gildi. Hins veg- ar verður eldri stúdentum, þeim sem telja sér hag að því, heimilað að stunda nám eftir hinni nýju reglugerð, og er kveðið nánar á um það í 12. lið leiðbeininganna. — Gera þeir, sem að þessum breytingum standa, ráð fyrir mikilli fjölgun háskólamennt- aðra kennara á komandi árum? —• Það er von háskólans, að þessar breytingar stefni í þá átt. Raunar getur háskólinn ekki haft bein áhrif á þessi mál. Menn koma í háskólann af frjálsum vilja, stunda þar nám af eigin hvötum, og geta lokið því eða horfið frá því, ef þeim sýnist. Það, sem úrslitum ræð- ur í þessum efnum, er að kjör og aðbúnaður kennara, bæði meðan þeir eru við nám einkum eftir að þeir eru komnir til starfs, sé þannig á hverjum tíma, að kennarastarfið sé eftirsókn- arvert. Háskólinn getur aðeins haft óbein áhrif hér, nefnilega með því að gefa mönnum kost á eins haganlegu námi og unnt er, þ. e. námi, sem er hvort- tveggja í senn, fullgilt almennt háskólanám, reist á vísinda- legri kennslu, og undirbúning- ur undir þau störf, sem menn takast á hendur síðar, t. d. kennarastörf. Að þessu marki stefnir háskólinn. Við veitum háskólastúdentum 10% afsláft af innlendum og erlendum bókum gegn framvísun stúdentaskírteinis. 25% afslóttur af útgófum Móls og menningar og Heimskringlu. Útvegum allar fáanlegar erlendar bœkur, blöð og tímarit. Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18 Símar 15055 og 18106 Hljómplötur Hljómplötur Ávallt fyrirliggjandi feikna úrval af klassiskum hljómplötum. — Dans- og dœgurlög tekin upp vikulega. Póstsendum. FÁLKINN HF. Laugavegi 24. SAMVINNUBANKINN Greiðir hœstu vexti af sparifé ANNAST ÖLL INNLEND BANKAVIÐSKIPTI

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.