Nýtt kirkjublað - 15.02.1911, Side 4
44
NÝTT KIRKJÖBLAÐ
Bjarnason i „Austurlöndum“ bls. 396. Hann talaði meira um
réttlœtið en kærleikann. En margt, sem kallað er kærleiks-
verk, sagði hann að væri hrein réttlætisskylda. Sagði t. d.:
„Það er ekkert kærleiksverk að hjálpa ráðvöndum dugnaðar-
manni, sem verður fyrir óhöppum eða missir heilsuna. Það
er hrein og bein réttlætisskylda“.
Hann sýndi þetta sem hann kendi i verkinu. Þau 8 ár,
sem eg var með honum á Bægisá, lánaði bann fátækum sókn-
arbörnum sínum þetta 200—300 kr. rentulaust á vetri hverj-
um, til þess að þau fengju úttekt. Lét þau svo borga sér í
ýmsu, sem þau áttu hægast með: fóðrum, vinnu, o. s. frv.
Ekki græddi hann á lánum þeim. Kærði sig ekki heldur neitt
um það. Oftar en einusinni efnaði hann til samskpta handa
snauðum og gaf jafnan sjálfur mest. Hverju manusbarni er
kom á heimili hans var gert gott. Og þegar hart var orðið
á milli manna, var sú regla þeiri'a hjóna að gefa kirkjufólk-
inu jafnan að borða.
Hann var fyrirtaks heimilisfaðir, góður félagsmaður og
mjög trúr og tryggur vinur. Fjölhæfur, göfugur og frjálsbor-
inn andi í einu sem öðru.
En því voru svo margir á móti honum? Alþýðan og
framsóknarmennirnir voru lengi gramir við hann út af stjórn
málum hans. Og mörgum embættismönnum þótti hann kenna
þjóðinni að telja launin eftir. Og hann hœddi — ekki litil-
magna, það hefði nú verið fyrirgefanlegt — heldur sum stór-
mennin og ástgoða þjóðarinnar — það var ófyrirgefanlegt.
Enda hefir honum orðið að því. Doktor Þorvaldur hefir skemt
góða bók, æfisögu Péturs biskups, með ummælum sfnum sum-
um um síra Arnljót. Síra Arnljótur hafði ritað hæðnisorð um
biskup, en bætt úr því seinna. Síra Arnljótur var manna
sáttgjarnastur. Þoldi mótmæli mörgum betur, stefndi engum
sem illmæltu honum, og hefði þó vist getað haft á sumum
illmælunum. Nógu lögspakur var hann til þess. En hann —
og fólk hans — þoldi margt sem ekki dugar að bjóða mörg-
um. Eg set hér fáeín orð úr hréfi, sem hann ritaði mér ein-
um 8 árum fyrir dauða sinn:
„Eg sé á bréfum yðar að þér eruð orðinn ákaflega reið-
ur og heittrækinn við heiminn, Varið yður á því! Engu