Fréttablaðið - 21.11.2009, Síða 18

Fréttablaðið - 21.11.2009, Síða 18
18 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid. is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. UMRÆÐAN Ágúst Guðmundsson skrifar um framlag til lista Ungt sjálfstæðisfólk hefur lagt fram til- lögur að sparnaði í rík- isbúskapnum, sem m.a. gera ráð fyrir því að Þjóðleikhúsið verði lagt niður, Sinfónían og háskólarann- sóknir sömuleiðis, að ekki sé minnst á starfslaun listamanna. Jú, og svo á að selja Ríkisútvarpið, en það er nú kannski ekkert nýtt. Hvernig á að hefja um þetta rök- ræðu? Það er ekki hlaupið að því að finna umræðugrundvöll, því þessar hugmyndir skapast af lífsviðhorfum sem eru nokkuð á skjön við þau sem almennt ríkja. En kannski ég skauti fram hjá menningarhjalinu og reyni út frá hagrænum forsendum – og taki fyrir kvikmyndagerðina, sem er náttúrlega eitt af því sem leggst af, samkvæmt tillögunum. Kvikmyndafólk hefur haldið því fram að ríkið tapi ekki á því að veita fé í íslenskar kvikmyndir, heldur hafi þvert á móti hagnað af slíkri fjárfestingu. Hvernig getur stað- ið á því? Og af hverju geta þá ekki einkaaðilar yfirtekið þetta hlutverk og haft af því góðan gróða? Ríkið fjármagnar aldrei kvik- mynd um meira en 50% af heildar- kostnaði, hærra má ekki fara vegna evrópskra tilskipana, og yfirleitt er framlag ríkisins langt undir þeirri prósentutölu. Önnur fjármögnun kemur að verulegu leyti frá útlönd- um, enda eru íslenskir framleiðend- ur kræfir í að ná samningum við erlenda kollega og sækja fé í fjölþjóðlega sjóði. Allt evrópska styrkjakerf- ið byggist á því að til séu kvikmyndastofnanir eða sjóðir í heimalandinu sem velji bitastæðustu verkefnin og veiti þeim upphafsstyrk- ina. Ekki fyrr en þá er unnt að nálgast fjölþjóðlegu sjóð- ina. Væri ekki til stofnun á borð við Kvikmyndamið- stöð gætu Íslendingar ekki sótt í norræna sjóðinn né þann evrópska né neina aðra. Þessu hlutverki getur einungis opinber stofnun sinnt, enda hefðu einkaaðilar aldrei af því þann hagnað sem ríkið fær. Ríkið nýtur góðs af ýmsu sem ekki kæmi einkaaðilum til góða. Skatt- tekjur eru verulegar af kvikmynda- gerðinni, enda eru laun ætíð lang- hæsti kostnaðarliðurinn. Erlendur gjaldeyrir kemur inn í landið bæði þegar erlendir styrkir eru greiddir, svo og söluágóði af dreifingu erlend- is. Afleidd áhrif þessarar starfsemi fara vaxandi, því að ný tækni gerir kleift að fullvinna myndirnar hér- lendis. Alla þjónustu þarf vitaskuld að greiða, og af henni fást enn meiri skatttekjur. Kvikmyndamiðstöð fjárfestir í íslenskum myndum fyrir hönd rík- isins. Þetta eru ekki styrkir í þess orðs eiginlegu merkingu, heldur fjárfesting í samstarfsverkefnum milli ríkisins og einkafyrirtækja. Margir vilja að ríkið fjármagni orkuver í von um að hljóta af þeim arð í framtíðinni. Eitthvað svipað gerist í þeim hugarorkuiðnaði sem kallast kvikmyndagerð, nema hvað þar tel ég að áhættan sé öllu minni og ágóðinn skjótfengnari. Og sé nú fólki sama um íslenskt mál og menningu og allt það, skal á það bent að íslenskar kvikmyndir hafa reynst öflug kynning á landi og þjóð. Þær hafa dregið að ferðamenn, ennfremur erlend kvikmyndafyrir- tæki sem verja háum upphæðum við tökur á Íslandi. Sú starfsemi byggist á því að hér séu fyrirtæki og mann- skapur sem geti veitt þá þjónustu sem þarf. Clint Eastwood gat leitað til toppfólks þegar hann tók mynd sína hér um árið. Það skapaði gjald- eyristekjur og skatttekjur. Vinsælt er að tala um menningar- tengda ferðaþjónustu. Ætli þetta geti þá ekki kallast ferðatengd menning- arþjónusta? Íslenskar kvikmyndir auglýsa landið án þess að vera aug- lýsingar. Í því felst besta kynning- in – og sú ódýrasta, enda innifalin í upphaflega framlaginu frá Kvik- myndamiðstöð. Svona má reyndar fjalla um fleiri þætti menningarinnar en kvikmynd- irnar. Svipuð niðurstaða fæst í bók- inni um hagræn áhrif tónlistarinn- ar, sem kom út fyrir nokkrum árum. Á hinn bóginn eru listamenn þekktir fyrir að leggja ekki alltaf hagræn- an mælikvarða á störf sín, og sumir þeirra verða fyrst umtalsverð hag- ræn stærð við dauða sinn. Hvað ætli ævistarf Kjarvals verði metið hátt á markaðsvirði ársins 2007? Annars er ekki hollt að hugsa bara hagrænt. Þeir sem helst eiga sök á hruninu virðast hafa hugs- að hagrænt í öllu, meira að segja þegar þeir völdu listamenn til að koma fram í afmælunum sínum. Og hvernig fór? Höfundur er forseti BÍL. Hagræn menning UMRÆÐAN Karl Sigurbjörnsson skrifar um Fríkirkjuna í Reykjavík Ég árna Fríkirkjusöfn-uðinum í Reykjavík heilla í tilefni 110 ára afmælis safnaðarins. Í rúma öld hefur Fríkirkj- an í Reykjavík laðað til helgra tíða, leitt fólk til að heyra fagnaðarerindið, borið börn- in til skírnar, frætt hina ungu um Jesú Krist, signt hvílu hinna látnu. Guði sé lof fyrir það. Ég þakka góðar stundir sem ég naut þar innan veggja sem barn og ungur maður. Þangað var gott að sækja, við fagran söng þegar Sigurður Ísólfsson sat við orgel- ið og leiddi kórinn sinn af metnaði og reisn, og þegar séra Þorsteinn Björnsson flutti messugjörð með sinni fögru söngrödd og nærandi prédikun. Ég minnist þess með mikilli hlýju og virðingu og blessa minningu þeirra góðu drengja og annarra sem borið hafa uppi helga þjónustu af virðingu, trúfesti og kærleika. Tilkoma Fríkirkjunnar í Reykja- vík var ekki síst óþol í ört vaxandi bæ vegna tregðu kirkjuyfirvalda að mæta þörfum breyttra tíma. Prestum fékkst ekki fjölgað í höf- uðstaðnum og Dómkirkjan gamla annaði vart hlutverki sínu lengur. Enn heilli öld síðar á þjóðkirkjan okkar á Íslandi langt í land með að sýna sveigjanleika og snerpu andspænis örum breytingum og svipting- um daganna þótt margt hafi breyst og er það ekki við ríkisvald að eiga. Nú að öld liðinni ættu Frí- kirkjan og þjóðkirkjan á Íslandi að ganga með djörfung og þrótti fram, saman sem samhuga syst- ur í sömu þjónustu fagn- aðarerindis Jesú Krists. Ekki í samkeppni um sálir heldur í samstöðu um markmiðið háa sem er fagnaðarerindið. Það er um sál íslenskrar þjóðar að tefla, að hún verði kristin þjóð í anda og sannleika. Og það gerist aðeins ef við leggjum okkur fram og leyfum orði Krists og anda að leiða okkur, við sem viljum vera kristin. Þegar Fríkirkjusöfnuðurinn var stofnaður var mikil hreyfing í þjóð- félaginu í átt til aðskilnaðar ríkis og kirkju. Margir töldu þá að dagar þjóðkirkjunnar væru taldir, leifar konungsvalds og úreltra þjóðfélags- hátta. Svo hefur ekki reynst vera. Í söfnuðum þjóðkirkjunnar um land allt er unnið þróttmikið, lifandi kirkjustarf af trúum og vel mennt- uðum prestum og djáknum, sóknar- nefndarfólki, tónlistarfólki, barna- fræðurum og launuðu starfsfólki og sjálfboðaliðum sem þjóna þjóð- inni, einstaklingum og samfélagi án manngreinarálits af virðingu og kærleika. Þjóðkirkjan hefur líka beitt sér fyrir samstarfi trúfélaga á grundvelli skilnings og virðingar, bæði meðal kristinna trúfélaga og annarra trúarbragða. Enn og aftur er kallað eftir aðskilnaði ríkis og kirkju. Oft virð- ist þó óljóst hvað átt er við þegar rætt er um aðskilnað. Það eru nefni- lega margskonar valkostir til. En ekkert þjóðríki sem við viljum bera okkur saman við lætur sig átrúnað landsmanna engu varða. Stjórnar- skrárbundinn sess þjóðkirkjunnar á við söguleg og menningarleg og samfélagsleg rök að styðjast, en er fráleitt hafinn yfir gagnrýni. Öll Norðurlöndin búa við hliðstæð form sambands ríkis og kirkju og við, þó með ýmsum tilbrigðum sé. Þau ríki teljast vera í fremstu röð hvað trúfrelsi varðar. Skyldi það vera til- viljun? Íslenska þjóðkirkjan er um margt frjálsar tengd ríkisvaldinu en þær flestar, og ræður sér að mestu sjálf, og má segja að samband ríkis og kirkju sé umfram allt á grund- velli samstarfs. Mér finnst skipta mestu að tilvera þjóðkirkju er tjáning samstöðu um grundvallar gildi, samstöðu um sið- inn í landinu. Þar standa Fríkirkjan og þjóðkirkjan á sama grunni, og ættu að standa saman vörð um þann arf er vér bestan fengum. Hvað sem líður samskiptum ríkis og kirkju þá má okkur ekki vera sama um sam- skipti þjóðar og kirkju, að kirkjan geti mætt þjóðinni allri án mann- greinarálits og innt af hendi þjón- ustu orðs og sakramenta, bænar, boðunar og þjónustu til sjávar og sveita um land allt. Á fyrsta aldarfjórðungi ævi sinnar var Fríkirkjan stækkuð tvisvar og varð stærsta samkomu- hús bæjarins. Okkur finnst undar- legt að sú hafi verið tíðin að kirkjur Reykjavíkur rúmuðu ekki þá sem þangað vildu leita til helgra tíða. En þannig var það. Skyldi sú tíð koma á ný? Skyldi sú stund koma að þorsti og þrá leiði fólk að lífsbrunni fagnaðarerindisins á ný? Við sem unnum orði Guðs og helgri kirkju hans ættum að sameinast í bæn til Drottins um slíka vakningu, og að hún byrji í hjörtum okkar! Höfundur er biskup Íslands. Fríkirkjan í Reykja- vík – afmæliskveðja ÁGÚST GUÐMUNDSSON KARL SIGURBJÖRNSSON RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN OG AÐGANGUR ÓKEYPIS. Þátttakendur þurfa að skrá sig á www.frae.is eða á www.lme.is Á meðan á ráðstefnunni stendur verður sýning á fyrirmyndarverkefnum (Best Practices) sem styrkt hafa verið af Menntaáætlun Evrópusambandsins, Leonardo da Vinci og Grundtvig.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.