Fréttablaðið - 21.11.2009, Page 22

Fréttablaðið - 21.11.2009, Page 22
 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Bryndís Hlöðversdóttir skrifar um rannsóknar- nefnd Alþingis Síðustu daga hefur verið nokkur umfjöll- un í fjölmiðlum um rann- sóknarnefnd Alþingis og hlutverk hennar, einkum þegar kemur að málum sem snú- ast um ráðherraábyrgð. Formað- ur nefndarinnar hefur réttilega dregið fram að hlutverk rannsókn- arnefndarinnar sé fyrst og fremst að draga fram staðreyndir máls- ins, að leita sannleikans um það sem leiddi til falls íslensku bank- anna og tengdra atburða, en einn- ig að meta hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd reglna um fjármála- starfsemi á Íslandi og eftirlit með henni og hverjir kunni að bera ábyrgð á því. Það sé hins vegar ekki nefndarinnar að meta hvort ákæra eigi ráðherra, þá þurfi að koma til kasta Alþingis. Þetta virðist koma mörgum á óvart og einnig það að fyrirhug- að sé að þingmannanefnd vinni úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Af því tilefni tel ég rétt að draga fram nokkur atriði til skýringar á hlutverki sérskipaðra rannsókn- arnefnda og úrvinnslu á skýrslum þeirra, einkum þegar kemur að málum sem kunna að snúast um ráðherraábyrgð. Nánari umfjöll- un um eftirlitshlutverk þingsins, ráðherraábyrgð og landsdóm má finna í skýrslu vinnuhóps for- sætisnefndar um þingeftirlit á heimasíðu Alþingis á slóðinni: http://www.althingi.is/vefur/frett. html?nfrettnr=1218 . Rannsóknarvald, ekki ákæruvald eða dómsvald Nefndin um rannsókn á efnahags- hruninu er sérskipuð (ad hoc) opin- ber rannsóknarnefnd og umboð hennar og hlutverk takmarkast af lögum nr. 142/2008 um rann- sóknina. Aðferðin sem slík, að þingið (eða ríkisstjórn eftir atvik- um) skipi nefnd sérfróðra ein- staklinga til að skýra málsatvik í viðamiklum málum sem varða almannahagsmuni, tíðkast víða og hér á landi hefur þessi aðferð verið notuð í vaxandi mæli á síð- ustu árum (Hafskipsmálið 1985, hlerunarmálið 2006, Breiðavíkur- málið 2007). Ekki eru til almenn lög hér um starf slíkra nefnda og málsmeðferð fyrir þeim og því eru sett sérstök lög eða þingsályktun um hverja nefnd. Í Danmörku voru hins vegar sett almenn lög um opinberar rann- sóknarnefndir árið 1999 og í Nor- egi liggur fyrir tillaga nefndar um að gera slíkt hið sama. Nefndirnar hafa ekki dómsvald, þeim er ekki ætlað að kveða upp úr með sekt eða sakleysi, enda er það hlutverk dómstóla. Þeim er ekki heldur falið ákæruvald eða að taka ákvörðun um saksókn, það gera ákærendur. Nefndunum er hins vegar ætlað að leggja grunn að ákvörðun um saksókn í viðamiklum málum sem almenning varða, þar sem hefð- bundin lögreglurannsókn á ekki við. Ástæður þess að hin hefðbundnu rannsóknar- úrræði eiga ekki við geta til dæmis verið að ekki liggur fyrir hvort brot hafi verið framið eða að hverjum grunur beinist en markmið sakamála- rannsóknar er að jafn- aði að staðfesta grun um refsivert athæfi. Þá getur verið að grunur beinist að vanrækslu eða broti hjá yfirvöld- um lögreglumála eða stjórnvöld- um og hefðbundin lögreglurann- sókn sé því ekki trúverðug. Rannsóknarnefndirnar ljúka síðan yfirleitt starfi sínu með því að skila skýrslu sinni til þess sem um rannsóknina bað (þings eða ríkisstjórnar), sem vinnur úr henni og metur hvort ástæða sé til að grípa til frekari aðgerða. Úrvinnsla á skýrslu rannsóknar- nefndar Ákvörðun um saksókn tekur yfir- leitt ríkissaksóknari, nema um embættisbrot ráðherra sé að ræða, þá er ákvörðunin í höndum þjóð- þingsins sem hefur ákæruvald í slíkum málum samkvæmt skýr- um orðum 14 gr. íslensku stjórnar- skrárinnar. Í Noregi og Danmörku hefur verið komið upp fastanefnd- um innan þingsins til að vinna úr skýrslum rannsóknarnefnda en hér á landi er engri tiltekinni fastanefnd falið þetta hlutverk. Því hefur verið rætt um að sér- stök nefnd sé skipuð til að vinna úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Henni yrði þá falið það hlutverk að meta hvort ástæða væri til frekari aðgerða í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndarinn- ar og leggja tillögur fyrir þingið þar um, meðal annars um hvort ástæða væri til að leggja fram ákæru gegn ráðherra eða fyrrver- andi ráðherra. Ef slíkt mál kemur upp getur þingið eitt tekið ákvörð- un um hvort ákæra skuli og fyrir hvað, sbr. 14. gr. stjórnarskrárinn- ar. Að auki getur rannsókn leitt í ljós þörf fyrir breytingar á lögum eða aðrar aðgerðir sem þingið þyrfti að standa fyrir. Í ljósi þessa er úrvinnsla á skýrslum rannsókn- arnefnda jafnan falin þingmanna- nefndum, sem taka við málinu eftir hlutlausa rannsókn. Það fyrirkomulag að fela þing- mönnum úrvinnslu á skýrslunni er því í samræmi við það sem þekk- ist í nágrannalöndum okkar og það stjórnskipulega hlutverk sem þingið hefur í slíkum málum. Höfundur er deildarforseti laga- deildar Háskólans á Bifröst og stýrði sérfræðingahópi forsætis- nefndar um þingeftirlit. Um hlutverk rannsóknarnefnda BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR Það fyrirkomulag að fela þing- mönnum úrvinnslu á skýrsl- unni er því í samræmi við það sem þekkist í nágrannalöndum okkar og það stjórnskipulega hlutverk sem þingið hefur í slíkum málum. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki VITA er í eigu Icelandair Group. VITA er lífið VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 GROUP Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is ÍS L E N S K A S IA .I S V IT 4 73 29 0 9/ 09 Við vildum að farþegum liði eins og þeir væru heima hjá sér þegar við settum ný sæti og nýtt afþreyingarkerfi í flugflota Icelandair. Hver farþegi hefur sinn eigin skjá þar sem er í boði án endurgjalds fjölbreytt úrval af kvikmyndum, vinsælum sjónvarpsþáttum, tónlist og tölvuleikjum. Hver og einn velur sína eigin dagskrá og getur auk þess sótt upplýsingar um flugferðina sjálfa og margt fleira. Beint morgunflug, glæsilegur flugkostur. Hjá VITA eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins. Auk þess getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum. Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur Verð frá 39.900 kr. * og 15.000 Vildarpunktar Verð frá 19.900 kr. * Eingöngu flug 24. nóv. – 19. des. * Verð án Vildarpunkta 49.900 kr. * Ekki hægt að nota Vildarpunkta. Innifalið: flug og flugvallarskattar. Ótrúlegt verð! Flug fram og til baka Flug aðra leið Verð frá 55.900 kr. * og 15.000 Vildarpunktar Lukkulíf VITA 24. nóv. – 19. des. Á mann miðað við 2 í íbúð/herbergi. * Verð án Vildarpunkta 65.900 kr. Innifalið: flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Í Lukkulífi VITA bókar þú þig í ferð og færð að vita skömmu fyrir brottför á hvaða gististað þú lendir. Ótrúlegt verð! Undir 2.500 kr. dagurinn Birt með fyrirvara um prentvillur. Kanarí í vetur VITA – ný ferðaskrifstofa á traustum grunni Flug til Kanarí 24. nóv. frá 19.900 kr. Nokkur sæti laus í jólaferðina 19.des. - 2.jan. LEIÐIN FRAM Á VIÐ – tækifæri í nýju efnahagsumhverfi * * Kennarar og nemendur verða á staðnum – tilbúnir til að ræða um nám, kennslu og rannsóknir við deildina. Kynntu þér grunnnám við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. , lektor við viðskiptadeild HR, heldur erindi í Háskólanum í Reykjavík um leiðina fram á við og þau tækifæri sem gefast í nýju efnahagsumhverfi , 3. hæð, Ofanleiti 2. ALLIR VELKOMNIR!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.