Fréttablaðið - 21.11.2009, Page 78

Fréttablaðið - 21.11.2009, Page 78
50 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR Rauði minnihlutahópurinn Húð- og hárlitur stafar af litarefninu melaníni sem er myndað í litfrumum húðarinnar. Melanín er til í tveimur megingerðum; annars vegar er eumelanín sem er svart eða brúnt á lit og hins vegar faeómelanín sem er rautt eða gult á lit. Eumelanín stuðlar að hárlit allt frá ljósu yfir í svart. Magn þess er það sem skiptir máli. Dökkt hár inniheldur mikið emelanín en ljóst hár lítið. Faeómelanín kemur síðan inn í myndina og orsakar rautt hár. Því meira sem er af því, þeim mun rauð- ari er hárliturinn. Áhrif allra melaníngenanna sem hver einstaklingur erfir leggjast saman. MC1R-genið er eitt þeirra, en það tekur á móti hormóninu melatóníni frá heiladingli. Melatón- ín veldur því að faeómelaníni er breytt í eumalanín og þess vegna ræðst hárliturinn eingöngu af magni eumelaníns í flestu fólki. Hjá sumu fólki tekur MC1R-genið ekki á móti melatónín-hormóninu. Faeómelaníni er þá ekki breytt í eumalanín en safnast fyrir í hárinu og veldur rauðum lit þess. Þessi stökk- breyttu gen eru víkjandi, sem þýðir að rauðhærður einstaklingur hefur erft hárlitinn frá báðum foreldrum. Heimild: Vísindavefur Háskóla Íslands Hvaðan kemur liturinn? Því hefur verið haldið fram að allir rauðhærðir á Íslandi séu komnir af kóngafólki, en írska prinsessan Mel- korka, frilla Höskulds Dala-Kollssonar, hefur verið nefnd ættmóðir allra rauðhærðra Íslendinga. Í Laxdælu, þar sem segir frá kaupum Höskuldar á Melkorku, kemur raunar ekki fram að Melkorka hafi verið rauðhærð. En fríð sýnum var hún. Höskuldur keypti hana á þrælamarkaði í Noregi af hinum kerska Gilla fyrir þrjár merkur silfra, þrefalt á við verð annarra ambátta. Það þrátt fyrir að hún væri ómála. Á Íslandi eignuðust Höskuldur og Melkorka síðan soninn Ólaf. Síðar kom í ljós að Melkorka kunni vissulega að tala, hún væri dóttir Mýr- kjartans Írakonungs og hefði verið brottnumin fimmtán ára frá Írlandi. Höskuldur var sonur Þorgerðar, dóttur Þorsteins rauðs, sonar Auðar djúpúðgu. Af nafni Þorsteins má áætla að hann hafi verið rauðhærð- ur. Því má leiða að því líkur að frá þeim Melkorku og Höskuldi, sem eignuðust saman soninn Ólaf, liggi löng slóð konungborinna rauðhærðra Íslendinga. Konungbornir Íslendingar með rauða lokka Ýmsu hefur verið haldið fram um rauðhærða í gegnum aldirnar. Víða um heim kemur hræðsla við rauðhært fólk fram í þjóðtrú. Hvergi eru fleiri rauð- hærðir í heiminum en á Bretlandseyjum, en á Írlandi er þó talið ólánsmerki að mæta rauðhærðri konu. Á miðöldum voru rautt hár og græn augu merki um að þar væri norn, varúlfur eða vampíra á ferð og því réttast að vara sig. Sagan segir að Júdas hafi verið rauðhærður, sem skýri vanþóknun sumra á hárlitnum. Líklegra er þó að rautt hár hafi helst sést á barbörum úr norðri, á menningarsvæðum við Miðjarðarhaf þar sem rauði liturinn er sjaldgæfur. Víða er því einnig haldið fram að rauðhærðum sé ekki treystandi, þeir séu skapmiklir, kynóðir og ótrúar eiginkonur eignist rauðhærð börn. Rauða hárið er þó ekki alltaf talið ógæfumerki. Í fjárhættuspilum er talið gott að nudda spilateningunum í hárið á rauðhærðu fólki. Þá er það líka lánsmerki að fara höndum um rautt hár. Heimild: Vísindavefur Háskóla Íslands og Wikipedia Mýtur um rauðhærða „Pabbi, ég má sparka í einhvern rauðhærðan í dag,“ sagði dökkhærður sonur Reykvíkings í gær og brosti englabrosi út að eyrum. Hinum megin í bænum voru aðrir feðgar að fara á fætur. Sonurinn, með eldrautt hár, harð- neitaði að fara í skólann, því hann átti von á að í hann yrði sparkað. Drengirnir höfðu báðir frétt af þeirri hvatningu sem gekk á netinu, þar sem boðað var til svokallaðs „Kick a ginger day“ og fólk með því hvatt til að sparka í rauðhært fólk. Heimili og skóli beindu þeim tilmælum til skóla- stjórnenda að vekja athygli foreldra og nemenda á því að slík háttsemi myndi ekki líðast, enda fælist í skilaboðunum hvatning til ofbeldis sem fæli í sér bæði niðurlægingu og virðingarleysi. Hvatningarsíður til höfuðs deginum spruttu upp í gær, þar sem meðal annars var mælst til þess að rauðhærðir yrðu faðmaðir, eða þeir svöruðu í sömu mynt og spörkuðu til baka. Hvatt til ofbeldis HVAÐ HEFUR HÚN Í HUGA? Rauðhærðir mega þola ýmsa sleggjudóma sem eiga sér ekki endilega stoð í raunveruleikanum. Þar á meðal er mýtan um vergirni rauðhærðra kvenna, sem er sögð mun meiri en þeirra dökk- og ljóshærðu. NORDICPHOTOS/GETTY „Ég get ekki lagt nógu mikla áherslu á að þetta er ekkert flipp og djók hjá okkur,“ segir rauðhærða leikkonan og þokkagyðjan Vigdís Másdóttir. Hún vinnur nú ásamt öðrum listamönnum að nýju leikverki um rauðhærða. Allir eru lista- mennirnir sjálfir rauðhærðir. „Fólk lítur yfirleitt ekki á rauðhærða sem minni- hlutahóp og finnst þetta voðalega fyndin og sæt hugmynd hjá okkur. En það skilur ekki að rauðhærðir hafa flestir fundið fyrir einhvers konar fordómum.“ Sýningin hefur ekki fengið á sig endanlega mynd og ekki orðið ljóst hvort úr verður farsi, drama eða eitthvað allt annað. Upphafsmenn hennar eru, auk Vigdísar, þau Valgerður Rúnarsdóttir dansari og Ragnar Ísleifur Bragason leikrita- skáld. Þau safna nú að sér rauðhærðu fólki til að taka þátt. Vigdís segist finna til samkenndar með öðru rauðhærðu fólki. „Þegar ég mæti rauðhærðri manneskju úti á götu horfi ég ósjálfrátt á hana og finn til sam- kenndar með henni. Ég finn nefnilega sjálf til mikillar sérstöðu og finnst ég vera öðruvísi. Þegar ég var krakki upplifði ég mig oft annars flokks af því að ég var rauðhærð. Í dag fagna ég því bara, en mér sárnar oft hvernig fólk talar um rauðhærða, oft ómeðvitað. Okkur er ekki beinlínis mismunað. En það eru margar mýtur sem ganga um rauðhærða og lifa enn góðu lífi.“ LEIKRIT EFTIR OG UM RAUÐHÆRÐA Þótt þeim sé ekki lengur varpað á galdrabrennur eins og á miðöldum er alveg örugglega ekki alltaf tekið út með sældinni einni að vera rauðhærður. Í tilefni af hinum umdeilda gærdegi, þar sem hvatt var til að sparkað yrði í rauðhærða, kynnti Hólm- fríður Helga Sigurðardóttir sér mýturnar og sann- leikann um fólkið með rauða hárið og freknurnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.