Fréttablaðið - 21.11.2009, Side 92

Fréttablaðið - 21.11.2009, Side 92
64 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR OKKUR LANGAR Í … utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson > EINVERA HELDUR UPP Á AFMÆLI Í dag klukkan 16 heldur verslunin Einvera upp á eins árs afmæli sitt og kynnir um leið nýja fatalínu frá Kalda. Veitingar og tónlist fullkomna fjörið. Fallegt púður með örlitl- um vott af gylltri sanseringu frá Estée Lauder. Varaliturinn Here I am frá Mac er fullkomlega fallegur náttúru- legur litur Geggjaða gyllta peysu fyrir jólateitin frá Topshop. Fyrsta tískuflíkin sem ég lagði mikið kapp á að eignast þegar ég var unglingur var forláta Gaultier-leðurjakki. Aðsniðinn „biker“-jakki með rennilásum og belti í mittið og svo mjúkur, fallegur og ótrúlega töff að hann sótti á mig í draumum. Eftirleiðis hef ég ætíð átt einn eða tvo leðurjakka í fataskápnum og notað óspart bæði hversdags eða yfir fína kjóla til að rokka þá aðeins upp. Ég verð að biðja vegan-fólk og meðlimi PETA forláts þegar ég fúslega viðurkenni að lyktin og áferð- in á leðri hefur alltaf heillað mig, alveg frá því að ég sökkti nefinu ofan í rúskinnsjakka af pabba mínum sem lítil stelpa. Eins og flestir ættu nú að vita þá hefur mannfólkið notað leður til að klæða sig allt frá steinöld en þá lá beint við að nota skinn af dýrum til að halda á sér hita. Egyptar til forna og Rómverjar notuðu leður í fatnað, skó og vopn og það voru einmitt Rómverjarnir sem komu með mikla þekkingu á leðurverkun til hinna myrku alda Evrópu. Á miðöldum var leður notað óspart í fatnað en svo minnk- aði notkun á leðri á klæðum fyrir hefðarfólk á síðari öldum þar sem það var talið dálítið almúgalegt. Leðurjakkinn öðlaðist frægðar- sess eftir að Marlon Brando birtist í svörtum mótorhjólajakka árið 1953 í kvikmyndinni The Wild One. Slíkur jakki varð ómissandi hjá rokkabillí- kynslóðinni á sjötta og sjöunda ára- tugnum og hefur tengst rokktónlist órjúfanlegum böndum allar götur síðan. Aðdáendur leðurs geta tekið gleði sína í vetur þar sem það hefur sjald- an verið jafn mikið í tísku. Hvort sem það eru leðurjakkar, leðurpils, leðurkjólar eða leðurbuxur. Leður- kjólar eins og Balenciaga-kjóllinn sem sást á Kate Moss nýlega eru þó sennilega ekki á færi allra, og leðurbuxur geta verið erfiðar fyrir aukakíló og fellingar. En til dæmis er hnésítt og þröngt leðurpils mjög svalt við peysu eða jafnvel fallega gamaldags blússu – rokkað og eleg- ant í senn. Þeir sem kjósa að snið- ganga leður hvort sem það er af fjárhagsástæðum eða dýravernd- unarsjónarmiðum þá er auðvitað hægt að ganga í pleðri (eða gervi- leðri fyrir þá sem ekki þekkja til). Pleður er yndislegt efni og það eru til flottar pleðurbuxur og kjólar í verslunum eins og TopShop og Zöru. Aftur til steinaldar Miumiu, lína Miucciu Prada, sem er stíluð á yngri konur var sérlega skemmtileg fyrir næsta vor og sumar. Þar gaf að líta stutta stelpulega kjóla alsetta ýmiss konar pallíettum og kristöllum. Bert hold skein í gegnum fallega lagaða fleti eða í gegnum siffonefni og dýramynstur, eins og hundar, kettir og páfagaukar, gáfu fatnaðinum ákveðið barna- legt yfirbragð. „Ég var að velta upp spurningum um sakleysi og ung- dóm,“ útskýrði Prada á sýningunni. Aðeins fullorðinslegri voru svo sval- ar aðsniðnar buxnadragtir sem eiga eflaust eftir að verða mjög vinsælar næsta sumar. - amb FALLEG SMÁATRIÐI HJÁ VORLÍNU MIUMIU LOLITA-KJÓLAR OG GÆLUDÝR HUNDAR OG KISUR Skemmtileg skyrta með kúrekasniði. DEMANTAR Fallega skreytt bleik og svört skyrta. ÞRÖNGT Mjög fallegar svartar buxur við rauða stutterma skyrtu. GEGNSÆTT Siffonkjóll úr beige- lituðu efni með silfur- skreytingu. STUTT Mynstrað pils við skyrtu og keip í ljósum litum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.